Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 60

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 60
60 FÓKUS 8. mars 2019 Dragháls 14-16 Sími 412 1200 110 Reykjavík www.isleifur.is Straumhvörf í neysluvatnsdælum Grundfos Scala 3-45 Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýsting og hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra Innbyggð þurrkeyrsluvörn Afkastar 8 aftöppunar stöðvum GÓÐIR SÝNA Á SÉR SKUGGAHLIÐINA L eikarar þurfa að jafnaði að bregða sér í allra kvikinda líki, hins vegar er raun- in sú að margir þeirra festast í ákveðnu fari, sem að okkur sem áhorfendum lík- ar við að þeir séu í. Sem dæmi má nefna einn okkar allra skemmtilegasta; Þórhall Sigurðs- son, Ladda, sem hefur verið helsti grínisti þjóðarinnar, síðan hann steig fram í sviðs- ljósið. En svo bregðast krosstré sem önnur tré og nokkrir leikarar sem við höfum bara þekkt af góðu og fyndnu einu, hafa skipt um gír og sýnt sínar myrkari hliðar, með frábærum ár- angri. Hér skoðum við nokkra þeirra. Edda Björgvinsdóttir hefur skemmt landanum með glensi, gríni og sprelli lengur en elstu menn muna (sem er samt ekki svo langt). Það hefur verið samheiti á milli Eddu og gríns í orðabókum landsmanna, hún hefur verið í fjölmörgum áramótaskaupum, óborganleg í Orlofi og fleira og fleira. Í fyrra sýndi Edda þó á sér nýja hlið sem Inga í kvikmyndinni Undir trénu. Inga var bitur, orðljót og útsmogin og vakti frammistaða Eddu mikla athygli og lof bæði hér heima og erlendis. Vonandi verður alheimsathyglin þó ekki til þess að Edda fari alfarið yfir í að vera vonda konan. Guðjón Davíð Karlsson (Gói) var hvers barns hugljúfi sem Gói í Stund- inni okkar. Hann lék líka með Sveppa í nokkrum kvikmyndum um ævintýri Sveppa og vina hans. Gói hefur nýlega sýnt á sér dekkri hlið bæði í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Hann lék eiturlyfjasalann og hrottann Dodda drullu í kvikmynd Baldvins Z, Lof mér að falla, svæsnustu atriðin voru meira að segja klippt út áður en myndin fór í sýn- ingu. „Þetta er eitt mesta ógeð sem ég hef komist í kynni við, það er alveg þannig, bæði á sviði og á filmu, blessaður maðurinn,“ sagði Gói um hlutverk sitt. Og í annarri þáttaröð Ófærðar lék hann verkstjórann Finn, sem kúgaði undirmenn sína. Finnur uppskar eins og hann sáði, líkt og Gói sem er einn af fremstu leikur- um þjóðarinnar. Jóhann G. Jóhannsson varð fyrst þekktur sem Júlli smaladrengur árið 1988, þá 17 ára gamall, í sjónvarpsþáttunum um Nonna og Manna sem gerðir voru eftir sögum Jóns Sveinssonar. Jói hélt áfram að vera góði gaurinn meðal annars sem Bárður í Stundinni okkar og lög- reglumaður í Eiðinum. Jói sýndi þó á sér nýja hlið sem ofbeldismað- urinn Gísli í sjónvarpsþáttunum Hrauninu árið 2014. Síðan þá hefur Jói leikið jöfnum höndum góða gæjann og gæjann sem er ekki allur þar sem hann er séður, bæði hér heima og í erlendum sjónvarps- þáttaröðum. Þórhallur Sigurðsson (Laddi) hefur líkt og Edda séð um að skemmta landanum í áratugi. Hann hefur skapað fjölda karaktera sem lifa munu með þjóðinni um ókomna tíð; Eirík Fjalar, Magnús og Þórð húsvörð svo aðeins nokkrir séu nefndir. Laddi fékk fálkaorðuna um síðustu áramót og vilja margir Hafnfirðingar að hann verði næsti bæjarlistamaður í Firðinum. Í farsanum Fullir vasar sem sýndur var í fyrra sýndi Laddi á sér nýja hlið sem hættulegasti maður landsins, sjálfur Gulli bílasali. Áður hafði Laddi leikið einn af skúrkum bók- menntanna á sviði, þjófakónginn Fagin í Oliver Twist. Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Guðjón Davíð í hlutverki sínu í Lof mér að falla. Guðjón Davíð í hlutverki sínu í Lof mér að falla. Jóhann í hlutverki sínu í Hrauninu. Laddi við tökur á Fullir vasar, ásamt aðalleikaran- um, Hjálmari Erni Jóhanns- syni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.