Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Qupperneq 60
60 FÓKUS 8. mars 2019
Dragháls 14-16 Sími 412 1200
110 Reykjavík www.isleifur.is
Straumhvörf
í neysluvatnsdælum
Grundfos Scala 3-45
Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýsting og
hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra
Innbyggð þurrkeyrsluvörn
Afkastar 8 aftöppunar stöðvum
GÓÐIR SÝNA Á SÉR
SKUGGAHLIÐINA
L
eikarar þurfa að jafnaði að bregða sér
í allra kvikinda líki, hins vegar er raun-
in sú að margir þeirra festast í ákveðnu
fari, sem að okkur sem áhorfendum lík-
ar við að þeir séu í. Sem dæmi má nefna einn
okkar allra skemmtilegasta; Þórhall Sigurðs-
son, Ladda, sem hefur verið helsti grínisti
þjóðarinnar, síðan hann steig fram í sviðs-
ljósið.
En svo bregðast krosstré sem önnur tré og
nokkrir leikarar sem við höfum bara þekkt
af góðu og fyndnu einu, hafa skipt um gír og
sýnt sínar myrkari hliðar, með frábærum ár-
angri. Hér skoðum við nokkra þeirra.
Edda Björgvinsdóttir hefur skemmt landanum með glensi, gríni og
sprelli lengur en elstu menn muna (sem er samt ekki svo langt).
Það hefur verið samheiti á milli Eddu og gríns í orðabókum
landsmanna, hún hefur verið í fjölmörgum áramótaskaupum,
óborganleg í Orlofi og fleira og fleira. Í fyrra sýndi Edda þó á
sér nýja hlið sem Inga í kvikmyndinni Undir trénu. Inga var
bitur, orðljót og útsmogin og vakti frammistaða Eddu mikla
athygli og lof bæði hér heima og erlendis. Vonandi verður
alheimsathyglin þó ekki til þess að Edda fari alfarið yfir í
að vera vonda konan.
Guðjón Davíð Karlsson (Gói) var hvers barns hugljúfi sem Gói í Stund-
inni okkar. Hann lék líka með Sveppa í nokkrum kvikmyndum um
ævintýri Sveppa og vina hans. Gói hefur nýlega sýnt á sér dekkri
hlið bæði í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Hann lék
eiturlyfjasalann og hrottann Dodda drullu í kvikmynd
Baldvins Z, Lof mér að falla, svæsnustu atriðin voru
meira að segja klippt út áður en myndin fór í sýn-
ingu. „Þetta er eitt mesta ógeð sem ég hef komist í
kynni við, það er alveg þannig, bæði á sviði og á filmu,
blessaður maðurinn,“ sagði Gói um hlutverk sitt. Og í
annarri þáttaröð Ófærðar lék hann verkstjórann Finn,
sem kúgaði undirmenn sína. Finnur uppskar eins og
hann sáði, líkt og Gói sem er einn af fremstu leikur-
um þjóðarinnar.
Jóhann G. Jóhannsson varð fyrst þekktur sem Júlli smaladrengur árið
1988, þá 17 ára gamall, í sjónvarpsþáttunum um Nonna og Manna
sem gerðir voru eftir sögum Jóns Sveinssonar. Jói hélt áfram að vera
góði gaurinn meðal annars sem Bárður í Stundinni okkar og lög-
reglumaður í Eiðinum. Jói sýndi þó á sér nýja hlið sem ofbeldismað-
urinn Gísli í sjónvarpsþáttunum Hrauninu árið 2014. Síðan þá hefur
Jói leikið jöfnum höndum góða gæjann og gæjann sem er ekki allur
þar sem hann er séður, bæði hér heima og í erlendum sjónvarps-
þáttaröðum.
Þórhallur Sigurðsson (Laddi) hefur líkt og Edda séð um að skemmta
landanum í áratugi. Hann hefur skapað fjölda karaktera sem lifa
munu með þjóðinni um ókomna tíð; Eirík Fjalar, Magnús og Þórð
húsvörð svo aðeins nokkrir séu nefndir. Laddi fékk fálkaorðuna um
síðustu áramót og vilja margir Hafnfirðingar að hann verði næsti
bæjarlistamaður í Firðinum. Í farsanum Fullir vasar sem sýndur var
í fyrra sýndi Laddi á sér nýja hlið sem hættulegasti maður landsins,
sjálfur Gulli bílasali. Áður hafði Laddi leikið einn af skúrkum bók-
menntanna á sviði, þjófakónginn Fagin í Oliver Twist.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Guðjón Davíð í
hlutverki sínu í
Lof mér að falla.
Guðjón Davíð í hlutverki
sínu í Lof mér að falla.
Jóhann í hlutverki sínu í Hrauninu.
Laddi við
tökur á Fullir
vasar, ásamt
aðalleikaran-
um, Hjálmari
Erni Jóhanns-
syni.