Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Side 2
2 15. mars 2019FRÉTTIR
sem hefðu getað tekið við sem dómsmálaráðherra
Sigríður Andersen
sagði af sér embætti
dómsmálaráðherra vegna
dóms Mannréttindadómstóls
Evrópu í vikunni. Dómar Lands-
réttar eru í uppnámi og málið
hefur valdið Íslendingum niður-
lægingu á alþjóðavísu. Við emb-
ættinu tók Þórdís Kolbrún
Gylfadóttir Reykfjörð
sem nú þegar gegnir
glás af ráðherraemb-
ættum. Hér eru
fimm einstak-
lingar sem hefðu
getað tekið við
lyklunum að
dómsmála-
ráðuneytinu.
Brynjar Níelsson
Brynjar hefur langað
í ráðherraembætti
lengi og dómsmála-
ráðuneytið myndi
henta honum vel.
Reyndar var Arnfríður
Einarsdóttir, eiginkona
hans, einn af þeim
dómurum sem Sigríður
skipaði í Landsrétt. En
hei, þetta er
Ísland.
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Allir varaformenn
Sjálfstæðisflokks-
ins hafa setið sem
ráðherrar á einhverjum
tímapunkti, nema
Áslaug Arna. Áslaug
gegndi stöðunni árin
2017 til 2018 og er
nafn hennar stílbrot á
listanum. Það verður
að laga sem fyrst.
Jón Gunnarsson
Jón fór í rokna fýlu
þegar samgöngu-
ráðuneytið var tekið
af honum. Brást hann
við með því að ögra
eftirmanni sínum,
Sigurði Inga, með veg-
tollahugmynd sinni.
Hægt hefði verið að
friða Jón með dóms-
málaráðuneytinu.
Birgir
Ármannsson
Birgir hefur setið á Al-
þingi síðan árið 2003.
Sama ár og Íraks-
stríðið hófst, Finding
Nemo var frumsýnd
og mannkynið lærði
að temja eldinn. Aldrei
hefur hann komið til
greina í ráðherrastól
sem er vandræðalegt
fyrir bæði hann og
flokkinn. Nú hefði
verið lag að
leiðrétta
það.
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson
Vilhjálmur var
maðurinn sem fór með
Landsréttarmálið til
Mannréttindadóm-
stólsins og kom þar
með upp um ráðherra.
Ef ríkisstjórnin hefði
það í sér að sýna iðrun
væri tilvalin og tákn-
ræn yfirbót að bjóða
Vilhjálmi sjálfum að
taka að sér embættið
sem utan-
þingsráð-
herra.
Á þessum degi,
15. mars
44 f.Kr – Júlíus Sesar, keisari Róma-
veldisins, er stunginn til bana af Marcus
Junius Brutus, Gaius Cassius Longinus,
Decimus Junius Brutus og nokkrum
öðrum meðlimum öldungaráðsins.
1493 – Kristófer Kólumbus kemur til
Spánar að lokinni fyrstu för sinni til
Ameríku.
1877 – Fyrsti opinberi krikketleikurinn
fer fram. Ástralía keppir við England
á MCG-leikvanginum í Melbourne í
Ástralíu.
1985 – Fyrsta internetlénið er skráð –
symbolics.com.
1990 – Mikhail Gorbachev er kjörinn
fyrsti forseti Sovétríkjanna.
Síðustu orðin
„Allar eigur mínar fyrir eitt
stutt andartak“
– Elísabet I. Englandsdrottning
(1533–1603)
M
MA-bardagakappi var
handtekinn fyrir alvar-
lega líkamsárás um síð-
ustu helgi. Árásin átti
sér stað fyrir utan skemmti-
staðinn SPOT í Kópavogi og var
árásarmaðurinn handtekinn á
vettvangi. Fjölmörg vitni voru að
árásinni og hlaut fórnarlambið
margvíslega áverka. Árásarmað-
urinn á nokkra bardaga að baki er-
lendis sem áhugamaður í MMA.
Fjölmörg vitni að árásinni
Árásin átti sér stað aðfaranótt
sunnudagsins 10. mars síðast-
liðinn við skemmtistaðinn SPOT
í Kópavogi, eins og áður segir. Þá
voru gestir að streyma út af fjöl-
mennu balli þar sem landsþekktir
listamenn, eins og Páll Óskar og Jói
Pé og Króli tróðu upp. Samkvæmt
heimildum DV var árásin tilefn-
islaus með öllu en árásarmaður-
inn réðst til atlögu í reykrými beint
fyrir utan skemmtistaðinn. Hann
lét höggin dynja á fórnarlambinu
og hlaut sá margvíslega áverka,
meðal annars kjálka- og kinn-
beinsbrot. Fjölmörg vitni voru
að árásinni og var þeim verulega
brugðið.
Mun berjast á Bretlands-
eyjum í apríl
Lögreglan var kölluð á vettvang rétt
fyrir fjögur og var bardagakappinn
handtekinn á vettvangi. Hann var
látinn dúsa í fangageymslu lög-
reglu þar til daginn eftir og þá var
tekin af honum skýrsla. Reiknað er
með að hann verði ákærður fyrir
alvarlega líkamsárás á næstunni
og gæti átt yfir höfði sér allt að
þriggja ára fangelsi.
Umræddur bardagakappi á að
baki nokkra bardaga í blönduðum
bardagaíþróttum á erlendri
grundu. Árangurinn hans hefur
verið með ágætum hingað til og er
ráðgert að hann muni aftur stíga
í hringinn í Bretlandseyjum um
miðjan apríl.
DV hefur þó heimildir fyrir því
að hann sé ekki vel liðinn innan
MMA-samfélagsins á Íslandi og
hafi átt þar í ítrekuðum útistöðum
við aðra iðkendur. Meðal annars
fyrir hrottafengna framgöngu.
Þannig æfir umræddur einstak-
lingur á eigin vegum og er ekki
innan vébanda hinna þriggja bar-
dagafélaga á höfuðborgarsvæð-
inu, Mjölnis, RVK MMA og VBC
MMA íþróttafélags. n
MMA-BARDAGAKAPPI
HANDTEKINN VEGNA
ALVARLEGRAR
LÍKAMSÁRÁSAR
n Á að baki nokkra áhugamannabardaga erlendis
n Stígur aftur í hringinn í apríl
Árásin átti
sér stað fyrir
utan skemmi-
staðinn SPOT
í Kópavogi
Árásarmað-
urinn hefur
barist í áhuga-
mannabardög-
um erlendis.