Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Síða 4
4 15. mars 2019FRÉTTIR Sadistar hjá Skattinum S varthöfði er skattgreiðandi líkt og aðrir fullveðja Ís- lendingar. Tekur þátt í sam- neyslunni og leggur lóð sitt á vogarskálarnar. Svarthöfði kveinkar sér ekki yfir sköttum þótt þeir séu að sjálfsögðu allt of háir. En Svarthöfði getur ekki varist þeirri hugsun að hjá Ríkisskatt- stjóra starfi fólk sem sé haldið sadisma. Að það hafi gaman af því að pína venjulega smælingja eins og Svarthöfða. Þessi hugsun kem- ur ávallt upp um þetta leyti árs þegar almenningur er neyddur til þess að setjast við heimilistölvuna og skila skattskýrslunni. Þegar skattframtalið er opnað blasir við galli á menntakerfinu okkar. Á Íslandi er skólaskylda og allir landsmenn neyðast til þess að læra náttúrufræði, dönsku og hannyrðir. Aldrei er börnum kennt neitt um skatta eða skatt- skil. Skattframtalið er því ekkert annað en gildra sem ríkisvaldið leggur fyrir þegnana. Íslendingar eru frestunargjörn þjóð og þetta veit ríkisskattstjóri, eða ríkisskrattstjóri eins og hann ætti að vera kallaður. Flestir bíða með þetta kvíðavaldandi verk- efni fram á síðustu stundu, jafnvel rétt fyrir miðnætti áður en bjallan glymur. Fólk veit að það verður að skila þessu. Annars fær það „áætl- un.“ Áætlun er það versta sem til er í augum Íslendingsins. Þá tæm- ir ríkisskattstjóri alla bankareikn- inga og tekur bílinn, sjónvarpið og heimilisköttinn í leiðinni. Nötrandi á beinunum reyn- ir fólk að plægja sig í gegnum framtalið á meðan klukkan tifar. „Reiknað endurgjald“, „Frádráttur frá tekjum“, „Staðgreiðsla af laun- um“, „Starfstengdar greiðslur“, „Önnur hlunnindi.“ Hvað í and- skotanum þýðir þetta allt saman? Síðan er ýtt á „senda“ en þá kemur iðulega upp villa. Villa er eins og kaldur og blautur löðr- ungur. Þá er aðeins tvennt í stöð- unni. 1. Grátbiðja um nokkurra daga frest. Borga svo rándýrum endur- skoðanda fyrir að redda málun- um. 2. Reyna að krafsa sig fram úr villunni upp á von og óvon um að það sem maður sé að senda sé ekki rugl. Þetta er valkosturinn sem flestir taka. Þegar framtalið fer loksins í gegn hjá Svarthöfða fyllist hann skömm og ótta. Skömm yfir því að vera svo heimskur að kunna þetta ekki og ótta við að skatturinn hirði aleiguna. Þetta er sjálfsagt sama tilfinning og fórnarlömb Nígeríu- svindlara upplifa þegar þau gera sér grein fyrir að allt var í plati. Við tekur mest stressandi partur af framtalinu. Að sjá hvort Svarthöfði skuldar skattinum eða öfugt. Þessi stund er eins og að taka þátt í rúllettu, jafn vel rúss- neskri. Og það er ekki laust við að illkvittnishlátur skattstjórans heyrist í hátölurum heimilistölv- unnar. n Svarthöfði Það er staðreynd að… Coulrophobia er fræðiheitið yfir ofsahræðslu við trúða. Árið 1985 var algengasti giftingaraldur Íslendinga 20–24 ára, nú er hann 30–34 ára. Eini sjáanlegi vöðvi líkamans er tungan. Svín geta ekki horft upp til himins. Réttur Cachupa á Grænhöfðaeyjum minnir mjög á kjötsúpu og framburð- urinn svipaður. Hver er hann n Sonur Stefáns Jónssonar, þingmanns og rithöfundar. n Var prófessor við Harvard-háskóla árin 1993 til 1997. n Ræktar hross. n Er taugalæknir. n Forstjóri fyrirtækis í heilbrigðis- geiranum. SVAR: KÁRI STEFÁNSSON YFIRHEYRSLAN Hjúskaparstaða og börn? Eingiftur og við hjónin eigum þrjá stráka. Ég kann ekki að búa til stelpur. Fyrsta atvinnan? Það var verkamannavinna hjá Álverinu í Straumsvík. Ég var þar nokkur sumur. Hefur þú æft einhverja íþrótt? Ég er sérstakur áhugamaður um gamla bíla. Er það ekki bifreiðaíþrótt? Hef skotið handbolta, fyrir svona 35 árum eða svo, en hitti ekki á markið. Uppáhaldshljómsveit? Brimkló, Ríó Tríó, Spilverk þjóðanna, Savannatríóið og fleira í þeim dúr. Hvort er skemmtilegra, veðurfræði eða pólitík? Ég var svo heppinn að hafa í há- skólanámi mínu blandað saman jarðvísindum og veðurfræði og hef því mjög næringarríka sýn á náttúruna hvar sem ég er og það ótrúlega skemmti- legt, eiginlega ólýsanlega skemmtilegt. Pólitíkin er líka skemmtileg. Gaman að geta haft bein áhrif á hvernig samfélagið sem maður býr í þróast áfram. Pólitíkin er samt heldur þyngri, svona almennt séð. Uppáhalds- sjónvarps- efni? Þættir sem sýna náttúru Íslands samtvinnaða við lífið í landinu. Nátt- úruvísindaþættir af ýmsum toga. Þar á eftir kemur fréttatengt efni. Trúir þú á guð? Ég gerði það afdráttarlaust sem krakki, en með árunum hefur sú trú dvínað allsvakalega. Ég þarf greinilega að fá einhverja vitjun svo snúa megi þessu við. Hvort heldur þú með Tomma eða Jenna? Kettir geta verið yndislegir. Mýs síður. Þannig að ég segi Tommi. Mannkostir þínir? Ég er mikill fjölskyldu- maður og vil helst að fjölskyldan sé sem mest saman. Held að það megi flokka það sem mannkosti. En lestir? Ég get orðið fjári reiður ef mér misbýður. Það gerist sjaldan sem betur fer. Klukkan hvað vaknar þú á morgnana? Það er mjög misjafnt. Virka daga um klukk- an 7.30 til 9.00. Um helgar sef ég lengur. Var A-maður framan af ævi en myndi flokkast B-maður í dag. Besta ráð sem þú hefur fengið? Það var ráð frá föð- ur mínum að byrja aldrei að reykja. Ég er ævinlega þakklátur fyrir það. Mörg ráð sem hann hefur gefið mér hafa reynst heilladrjúg. Svo er konan mín enn að ala mig upp og gefa mér góð ráð. Til dæmis að þvo buxur á röngunni. Búinn að ná því. Þvo baðkarið eftir notkun. Búinn að ná því. Fyrsta utanlandsferðin? Til Noregs með Sigga afa og Borgu ömmu. Afi var skipstjóri á millilandaskipum og ég pjakkurinn fékk að fara með. Það var Bodø í Noregi sjö ára gamall. Hvort kanntu betur við þig í hæð eða lægð? Þetta tengi ég nú við veðurfræðina frekar en geðslag. Hæðin er miklu miklu betri. Miklu betra veður, sólríkara og þurrara. Ég vil fleiri hæðir í mitt líf. Fyrsti bíllinn? Ford Cortina, árgerð 1976, kremgul. Verst þegar ég lenti í því að halda á gírstönginni í höndinni á ljósastýrðum gatnamótum í töluverðri umferð. Neyðarlegt. Gott að vera ekki Siggi stormur þá. Hvaða leikari mundi leika þig í kvikmynd? Það er einsýnt. Danny DeVito. Hann hefur allavega hæðina og þyngdina í hlutverkið en kannski aðeins of gamall … eða Dustin Hoffman að leika veðurfræðing. Hoffmann hefur líka hæðina til að bera og getur verið alvarlegur sem þarf þegar maður er að búa til veðurspár í aðdraganda storms. Fyrsti stjórnmála- flokkurinn sem þú kaust? Sjálfstæðisflokkurinn. Ég var mjög virkur þar. Eitthvað að lokum? Núna þegar ég er orðinn 52 ára er að brjótast fram í mér ógurlegur áhugi á ættfræði. Ég átti afa sem hvarf af skipi sínu Belgaum við Grimsby á Englandi 1929 og fannst aldrei svo vitað sé. Mig langar mikið að komast að því hvort hann hafi einhvern tímann fundist. En veit ekk- ert hvernig ég á að snúa mér í því! Er ekki allt hægt í dag?? Jú, svo elska ég konuna mína, Hólm- fríði Þórisdóttur, óstjórnlega. Sigurður var einn ástsælasti veðurfréttamaður landsins og gengur gjarnan undir viðurnefninu Siggi stormur. Á síðasta ári söðlaði hann um og komst í bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir Miðflokkinn. DV tók Sigurð í yfirheyrslu. Sigurður Þ. Ragnarsson 389113

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.