Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Page 18
18 SPORT 15. mars 2019
Afgreiðum HÁDEGISMAT Í BÖKKUM
alla daga ársins til fyrirtækja og stofnana
GÆÐA BAKKAMATUR
Mismunandi réttir
ALLA DAGA VIKUNNAR
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
Þ
að eru ekki allir ánægðir
með það hvaða leið
knattspyrnan í heiminum
hefur farið á síðustu árum
og áratugum, peningar ráða öllu,
félögin mörg hver eiga digra sjóði
og leikmenn þéna ótrúlegar upp-
hæðir í viku hverri. Á árum áður
var knattspyrnan leikur verka-
mannsins en það hefur breyst,
margt hefur orðið betra en ann-
að ekki. Eitt af því sem vekur hvað
mesta furðu og reiði, er oft á tíð-
um eignarhald félaga. Tvö stór fé-
lög í hinum stóra heimi eru hvað
umdeildust, eigendur þeirra hafa
dælt fjármunum í félagið, því er
haldið fram að þar hafi ekki verið
farið eftir öllum reglum. Um er að
ræða Manchester City á Englandi
og Paris Saint-Germain í Frakk-
landi.
Farið í kringum reglur FIFA:
Ekki eru mörg ár síðan FIFA, al-
þjóða knattspyrnusambandið,
setti upp reglur sem félög verða
að fara eftir. Samkvæmt þeim
má ekki reka félag með tapi yfir
nokkurra ára tímabil, þetta var
gert til að koma í veg fyrir skulda-
söfnun félaga. Ástandið var orðið
slæmt og er enn í dag, félög höfðu
skuldsett sig upp í topp, í von um
að ná árangri, stundum heppnað-
ist það en oft gekk það ekki upp.
Rannsókn er nú í gangi á bókhaldi
Manchester City, þar sem félagið
þarf að svara hvort félagið hafi
brotið þessar reglur. PSG á í vand-
ræðum með að standast þær og
þarf að grípa til aðgerða í sumar.
Rannsókn hjá City
Manchester City er nú rannsakað
í bak og fyrir en FIFA hefur grun
um að félagið hafi farið á svig
við reglurnar um fjármál félaga.
Sheikh Mansour, eigandi félags-
ins, er frá Sameinuðu arabísku
furstadæmunum. Hann hefur
dælt peningum inn í félagið og
gert það sigursælt, ekki er víst að
hann og starfsmenn hans hafi far-
ið eftir öllum reglum. Þannig er
talið að félagið hafi farið í kring-
um reglur með því að borga hluta
af greiðslum til leikmanna í gegn-
um annað félag og gefi ekki upp
alla samninga, og að Mansour
hafi í gegnum fyrirtæki í heima-
landi sínu gert samninga við Man-
chester City. Þannig hafi hann
komið háum fjárhæðum inn í
reksturinn úr eigin vasa, í gegnum
félög annarra. FIFA skoðar nú allt
bókhald félagsins og búast má við
niðurstöðu á næstu mánuðum.
Fari allt á versta veg kynni City að
verða bannað að taka þátt í Meist-
aradeild Evrópu.
PSG þarf að búa til fjármagn
Rekstur PSG hefur verið til rann-
sóknar og til að komast í gegn-
um reglur FIFA þarf félagið að
búa til fjármagn í sumar. Þannig
hefur félagið keypt dýrustu leik-
menn heims án þess að hafa tekj-
ur til að komast í gegnum reglur
FIFA. Búist er við að félagið þurfi
að selja nokkra leikmenn í sum-
ar og ná sér þannig í um 15 millj-
arða íslenskra króna til að kom-
ast í gegnum regluverkið. Annars
kynni félaginu að verða refsað. n
Svindla hinir
sterkefnuðu?
n Grunur leikur á að svindlað sé í fótboltanum n Farið á svig við reglurnar
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
GHETTYIMAGES
Harmleikur Hamren á enda?
Dómarinn:
Erik Hamren er á leið í sitt stærsta
próf sem landsliðsþjálfari Íslands, prófið
gæti einnig orðið það síðast ef illa fer.
Undankeppni Evrópumótsins hefst á
föstudag í næstu viku og fer Ísland í
heimsókn til Andorra og Frakklands
þremur dögum síðar. Tap gegn Andorra
myndi setja mikla pressu á Hamren í
starfi og Guðni Bergsson, formaður KSÍ,
yrði að íhuga stöðu hans. Hamren hefur
ekki unnið leik í starfi; átta leikir og ekki
einn sigur. Ísland hefur annars
mætt Andorra fimm sinnum og
unnið alla leikina.
Svíinn valdi hóp sinn fyrir
verkefnið í gær (fimmtudag),
það kom fátt á óvart í vali
Hamren, nema sú staðreynd
að hann velur aðeins tvo
hreinræktaða framherja. Jón
Daði Böðvarsson er meiddur
og Viðar Örn Kjartansson gefur
ekki kost á sér. Skilaboðin sem
aðrir framherjar, sem höfðu von-
ast eftir því að verða valdir,
fá, eru fremur einföld frá
Hamren, þeir eru
ekki nógu góðir
að hans
mati.
Kjartan Henry Finnbogason, Hólmbert
Aron Friðjónsson og Andri Rúnar Bjarna-
son eru menn sem koma upp í hugann,
þeir eru ekki nógu góðir að mati Hamren
til að geta nýst íslenska landsliðinu,
þegar meiðsli herja á aðra framherja.
Andorra leikur heimaleiki sína á gervi-
grasi sem veldur talsverðum áhyggjum
enda hafa lykilmenn verið að
glíma við meiðsli. Alfreð
Finnbogason er einn
þeirra og Aron Einar
Gunnarsson hefur
ekki farið í felur með
að líkami hans hefur
ekki verið alveg heill,
þótt hann spili flesta
leiki með Cardiff.
Það gæti því gerst
og er ansi líklegt að
Aron verði ekki í byrj-
unarliðinu í Andorra,
heilsunnar vegna.