Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Síða 23
FÓKUS - VIÐTAL 2315. mars 2019
annarra, enda er hún það. Hann
hefur líka alltaf verið stoltur af því
sem hann á.“
María: „Ingileif kenndi mér líka
að verða betri mamma. Ég var bara
átján ára þegar ég átti hann og var
alls ekki tilbúin. Var gengin næst-
um því átján vikur þegar ég komst
að því að ég var ólétt og þetta kom
upp á mjög erfiðu tímabili í mínu
lífi.“
Ingileif: „Hún var að ganga í
gegnum málaferli við stjúppabba
sinn.“
María: „Já, og þetta gerðist allt
saman á sama árinu. Ég sagði frá
kynferðisofbeldinu í janúar og
komst að því að ég var ólétt í júní.
Þetta var stórt og erfitt ár. Ég var
með áfallastreituröskun á háu
stigi og var rosalega veik. Ég faldi
það vel, mætti alltaf í skólann og
kláraði stúdentsprófið á réttum
tíma. Var alltaf fullkomin út á við
en var algjörlega dofin og dáin að
innan. Þá er maður auðvitað ekki
í besta forminu til þess að sinna
barni líka. Ég veit ekkert hvernig
ég hefði orðið ef ég hefði ekki haft
hann. Ég þurfti að standa mig og
vildi standa mig fyrir hann. Gefa
honum gott líf. Þess vegna kláraði
ég skólann og fór í háskólann. Ég
veit ekki hvort ég hefði endilega
komist alla leið þangað ef ég hefði
ekki haft hann, af því að ég var það
veik. Langaði oft ekki til þess að
lifa. Þetta var svona tímabil sem ég
sé bara í móðu í dag, en var mjög
mikilvægt og lærdómsríkt.
Fékk flogakast eftir mikið álag
Talið berst að núverandi með-
göngu þeirra hjóna, en Ingileif
gengur nú með þeirra annað barn.
Á síðasta ári greindist Ingileif með
flogaveiki sem hefur haft mikil
áhrif á líf þeirra. Hún þarf því að
hugsa vel um sig á meðgöngunni
og varast að ofgera sér svo flogin
haldist niðri.
Ingileif: „Það er auðvitað alls
konar sem að María upplifði í
gegnum sitt fyrra ferli, sem við
þurftum að fara yfir áður en að við
fórum út í þetta. Við líka róuðum
líf okkar niður í fyrra af því að ég
greindist með flogaveiki, svo ég
var svolítið þvinguð til þess að
taka lífið á annað tempó. Þrátt
fyrir að ég hafi aldrei verið mikill
djammari þá hef ég samt alltaf
sökkt mér aðeins of mikið í vinnu
og skóla og haft mikinn metnað
fyrir því. Ég ofkeyrði mig á síðasta
ári og þá neyddumst við til þess að
róa okkur niður. Við hættum báðar
að drekka og höfum verið rosalega
rólegar síðustu mánuði. Þetta ger-
ir það líka að verkum að við erum
með allar kjöraðstæður fyrir lítið
kríli sem er á leiðinni og við erum
alveg tilbúnar í það.“
María: „Já, mann langar líka
bara að vera til taks ef eitthvað
kemur upp á. Hún má til dæmis
ekki keyra svo það var ekki mikil
praktík í því að ég væri að drekka.
Við erum líka að passa upp á
rútínuna okkar. Í rauninni þving-
aði þetta okkur í heilbrigðan lífs-
stíl sem er ekki svo slæmt. Var bara
fínt spark í rassinn. Ef að þetta allt
er í lagi og hún tekur lyfin sín þá á
þetta ekkert að gerast, en auðvitað
ef þú ferð eitthvað að „djöggla“ þá
ertu bara að taka áhættu og það er
undir manni sjálfum komið.“
Ingileif: „Einmitt í þessi tvö
skipti sem ég hef fengið flog þá
hefur það verið þannig. Fyrsta
flogið fékk ég fyrir ári. Þá vorum
við bara sofandi heima og Mar-
ía vaknaði upp við það að ég var
eins og atriði úr The Exorcist.
Þetta var náttúrlega mjög hræði-
legt og María hélt að ég væri að
deyja. Ég man ekki eftir neinu
af því að ég var bara í einhverju
meðvitundarleysi á meðan þetta
átti sér stað. Þarna var ég búin að
vera að „djöggla“ of mörgum bolt-
um. Var bæði að skrifa BA-ritgerð
og að klára nám, var að gera þætti
og gefa út lag. Það var allt of mikið
að gera og ég svaf hvorki né borð-
aði. Það gerði það að verkum að ég
náði einhverjum þröskuldi.“
María: „Við erum öll með floga-
þröskuld, ef þú svæfir ekki í viku
þá fengir þú líklega flog. Hann er
mishár hjá fólki og um leið og þú
ert búinn að fá eitt flog þá lækkar
hann. Í brúðkaupsferðinni okkar
í Mexíkó fékk Ingileif svo seinna
flogið. Við vorum í tíu klukku-
stunda dagsferð í rútu og það
voru tvær klukkustundir búnar
af ferðinni. Það var ekki hægt að
snúa við og lá hún á lærunum á
mér alla ferðina. Við fórum á spít-
alann í Mexíkó og fengum lyf og þá
áttuðum við okkur á því að þetta
væri sjúkdómur. Ég man að ég var
alveg pínu pirruð. Fannst líf okk-
ar svo gott og skildi ekki af hverju
þetta þurfti að koma fyrir okkur.
Ég fékk smá áfallastreitu og þurfti
að tækla hana núna í haust. Ég átti
erfitt með að sofa og var ótrúlega
hrædd um að þetta myndi gerast
aftur. Ég var alltaf viðbúin.“
Áhugavert að vera „pabba
megin“ við línuna
Við tók hræðsluástand þar sem
Ingileif gekkst undir rannsóknir
og grunur um heilaæxli fór vax-
andi hjá þeim hjónum.
María: „Fyrst náttúrlega vissi
ég ekkert hvað var að gerast og
það var spurning hvort hún væri
með heilaæxli. Í annað skiptið var
ég rólegri. Ég er með mjög lágan
óvissuþröskuld og fyrir mér er
óvissa það versta sem er til. Sem
er ekki mjög gott af því að lífið
er ein stór óvissa. En ég er alltaf
að þjálfa mig í því, þetta er bara
partur af minni áfallasögu vegna
slæmra uppeldisskilyrða. Það að
þetta geti gerst hvenær sem er, er
það sem er erfiðast fyrir mig og
sérstaklega núna á meðgöngunni
og þegar hún verður með lítið
barn.“
Til þess að verða barnshafandi
leituðu hjónin til frjósemisstof-
unnar Livio þar sem tekin var
ákvörðun um sæðisgjafa og í kjöl-
farið fór Ingileif í uppsetningu.
María: „Við fórum í tækni-
sæðingu en ekki glasafrjóvgun.
Það er svona fyrsta skrefið, þá er
í raun bara sprautað inn þessu
stöffi. Eitthvað sem við hefðum
þess vegna getað gert heima, en
það var fínt að gera þetta svona.“
María hlær við tilhugsunina.
Ingileif tekur undir hláturinn
og segir: „Já, þetta var mjög róm-
antísk stund. Ég lá þarna á þess-
um bekk og María spurði mig
hvort ég vildi að hún héldi í
höndina á mér. Við vorum alveg
ótrúlega heppnar.“
María: „Það er líka svolítið
áhugavert að vera þeim megin
sem ég er núna, hafandi geng-
ið sjálf með barn áður. Nú er ég
á þessari „pabbahlið“ og ég held
að margir karlmenn upplifi sig
svolítið utangátta í þessu ferli.
Ég hef alveg tekið eftir því að það
er mjög oft sem fólk óskar bara
Ingileif til hamingju þrátt fyrir að
ég standi við hliðina á henni. Ég
held að þetta sé alveg ótrúlega
„María hélt að
ég væri að deyja
„Þrátt fyrir að við séum samkyn-
hneigt par þá þýðir það ekki að
við séum slæmir foreldrar.“
Hamingjusöm fjölskylda