Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Síða 27
Stóra bílablaðið 15. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
Fjölskyldufyrirtæki í 50 ár!
Bílaklæðningar Ragnars Valssonar er sannkallað fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið
starfandi í hálfa öld, en fyrirtækið
stofnaði Ragnar Valsson árið 1968.
„Ég rek fyrirtækið með honum föður
mínum í dag og hef gert í um 25 ár.
Hann er orðinn 75 ára gamall og er
hvergi nærri hættur,“ segir Sveinn
Ragnarsson.
Bílaklæðningar sjá um alls kyns
breytingar og viðbætur sem tengj
ast yfirbyggingu, klæðningu og
breytingum á bílum. Hjá fyrirtækinu
starfa um 10 manns, allir með mikla
reynslu í faginu. „Við erum mikið til að
þjónusta fyrirtæki með fyrirtækjabif
reiðar og vinnubíla, en einnig einstak
linga. Við erum bæði með staðlaðar
lausnir og vinnum að séróskum
viðskiptavina okkar, allt eftir því hvað
hentar hverju sinni. Flestir okkar
viðskiptavina eru fastakúnnar sem
koma til okkar þegar þarf að innrétta
nýja bíla eða breyta eldri bílum,“ segir
Sveinn.
Sérhæfðar breytingar
Ásamt því að smíða hestakerrur,
húsbíla og ýmislegt fleira þá sjá
Bílaklæðningar meðal annars um
viðgerðir og ísetningu á sætum
fyrir ýmiss konar sérhæfðar vinnu
bifreiðar. Þar á meðal má nefna
hjólastólabifreiðar.
Þá hafa þeir verið að klæða og
einangra bíla sem ætlaðir eru til
kæliflutninga á matvörum. Að auki
hafa þeir gert breytingar á bifreiðum
fyrir iðnaðarmenn og sett upp
innréttingar þannig að bílarnir verða
þá eins og verkstæði á hjólum.
„Nú nýverið vorum við að breyta
nýjustu Volkswagen Transporter
lögreglubílunum. Þá smíðuðum við
allar innréttingarnar og sáum um
ísetningu og frágang á þeim.“
Gert til að endast
Bílaklæðningar bjóða einnig upp
á heitklæðningu á pöllum á öllum
gerðum pallbíla og hestakerrum
ásamt sendibílum og farþegabílum.
„Heitklæðningin er gúmmíkennd
húð sem sprautað er heitri á fleti
og hefur gríðarlega viðloðun og
styrkleika. Þetta efni er gríðarsterkt
og endingargott og lengir líftíma á
þeim flötum sem húðin er sett á svo
um munar.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
bkl.is
Kársnesbraut 100, 200 Kópavogi.
Sími: 5540040 og 5546144
Netpóstur: bkl@bkl.is
BÍLAKLÆÐNINGAR RAGNARS VALSSONAR:
Sérsmíðuð hestakerra
smíðuð frá grunni.
Byrjuðum að smíða
hestakerrur árið 2001.
Verkstæði á hjólum.
Ferðaþjónustubíll.
Sérsmíðaðir pallar á pickup.
Lokaður pallur. Hægt að opna allar
hliðar. Tókum orginal pallinn og
settum nýjan í staðinn.
Húsbíll. Settum upp innréttingar
og sæti.