Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2019, Page 57
TÍMAVÉLIN 5715. mars 2019
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Rangt lík í
kistulagningu
H
austið 1997 urðu
vandræðaleg mistök
hjá Útfararstofu kirkju-
garðanna þegar lík víxluð-
ust fyrir athöfn. Voru þetta mis-
tök sem koma örsjaldan fyrir að
sögn útfararstjóra.
Mistökin áttu sér stað um
miðjan októbermánuð árið 1997
í Fossvogskapellu. Uppgötvuð-
ust þau í kistulagningu, það er að
rangt lík var í kistunni. DV greindi
frá málinu þann 20. október en
Ísleifur Jónsson útfararstjóri vildi
ekki ræða þetta tiltekna mál. DV
hafði heimildir fyrir því að líkleg-
asta skýringin væri sú að kistur
hinna látnu hafi verið merktar
sömu upphafsstöfum. Nöfnin
voru hins vegar ekki þau sömu.
Ekki rukkað
Ísleifur sagði hins vegar að jafn
alvarleg mistök sem þessi væru
mjög sjaldgæf og gerðust aðeins
á margra ára fresti. Einnig sagði
hann að hafa bæri í huga að
Útfararstofa kirkjugarðanna sæi
um allt að eitt þúsund athafnir á
ári hverju og heilmikið ferli lægi
að baki hverri athöfn.
En hver voru viðbrögðin í
svona tilfellum? Ísleifur sagði að
hið fyrsta væri að halda fund með
öllum þeim sem tengdust útför-
inni. Þar væri komist til botns í
því hvernig mistökin hefðu gerst
og unnið að því að koma í veg
fyrir að þau endurtækju sig.
Einnig væri fundað með að-
standendum hins látna og allar
rukkanir felldar niður. Fara væri
varlega því að málið væri að sjálf-
sögðu viðkvæmt. n
Fossvogskapella Líkum var víxlað fyrir slysni.
Elskaðir og hataðir
útvarpsmenn
Álitsgjafar Pressunnar völdu árið 1993
S
umarið 1993 valdi
Pressan lista yfir bestu
og verstu útvarps-
mennina. Leitað var
til nokkurra valinkunnra Ís-
lendinga til að gefa álit og
kjósa. Sumir útvarpsmennirn-
ir enduðu á báðum listum.
Elskaðir
Illugi Jökulsson – RÚV
„Hættir til að hafa einum of neikvæðar
skoðanir en tekst þó oftast að koma
þeim skemmtilega neyðarlega fyrir.“
Jón Múli Árnason – RÚV
„Uppáhaldsútvarpsröddin.“
Pétur Tyrfingsson – RÚV
„Þekking, kímni og þægileg rödd í
bland við einlægt blústrúboð.“
Snorri Sturluson - RÚV
„Einn fárra plötusnúða á launaskrá
útvarpsstöðvanna sem kunna
bæði að snúa plötum og tala
íslensku.“
Stefán Jón Hafstein - RÚV
„Sá í nútíma sem rímar við það sem
Jón Múli gerði áður.“
Ævar Kjartansson – RÚV
„Mjög góður í að laða fram hjá fólki
kjarnann í máli þess.“
Stjáni Stuð – Útrás
„Slær í gegn með taumlausri gleði yfir að
vera í útvarpi.“
Besta par: Radíusbræður
ásamt Jakobi Bjarnar
„Hafa vit á því að höfða ögn meira
til vitsmuna fólks en aðrir sem
standa að svipuðum þáttum.“
Hataðir
Hataðir og elskaðir
Tveir með öllu/Jón Axel og Gulli
Helga – Bylgjan
„Sjálfumglaðir monthanar.“
Valdís Gunnarsdóttir – FM 957
„Væmin og tilgerðarleg, svo úr hófi
keyrir.“
Jónas Jónasson
– RÚV
„Sumir menn eiga að
þekkja sinn
vitjunar-
tíma.“
Bjarni Dagur Jónsson – Bylgjan
„Kemur út sem sífelld kók- og
marsípanauglýsing.“
Kristján Þorvaldsson – RÚV
„Svo þvoglumæltur að hann færi
líklega betur í textavarpi.“
Ingibjörg Gréta Gísladóttir –
Bylgjan
„Talar jafnverstu íslensku sem heyrst
hefur í útvarpi.“
Versta par: Erla Friðgeirs og
Siggi Hlö – Bylgjan
„Óþolandi rembingur fólks, sem virtist
trúa því að breiða mætti yfir húmors-
leysi og andleysi með hamagangi og
píkuskrækjum.“
Eiríkur Jónsson –
Bylgjan
„Blæs allur út ef
viðmælandinn er
feiminn og veður
yfir viðkomandi
með offorsi.“
Þorsteinn J. – RÚV
„Frumlegastur útvarpsmanna“ –
„Óþolandi tilgerðarlegur“
Páll Óskar – Aðal-
stöðin
„Lætur allt flakka“ –
„Virðist standa í þeirri
trú að útvarp hafi
verið fundið upp
fyrir hans eigin
persónu.“
Sigurður G. Tómasson – RÚV
„Mátulega ögrandi“ – „Einhver sá
forpokaðasti.“