Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR 26. júlí 2019 J óhann Jónas Ingólfsson, dæmdur nauðgari og fíkni- efnasmyglari, hefur stofnað nýtt félag í kringum verktaka- fyrirtæki sitt, Já Iðnaðarmenn. DV hefur fjallað ítarlega um viðskipta- hætti Jóhanns Jónasar undanfarin misseri og greint frá tveimur gjald- þrotum rekstrarfélaga Já Iðnaðar- manna. Fram hefur komið að Jó- hann hefur skilið eftir sig sviðna jörð í viðskiptum en ávallt haldið rekstrinum áfram með kennitölu- flakki. Þann 2. júlí síðastliðinn var einkahlutafélagið Málning Múr og Meira ehf. skráð í fyrirtækjaskrá og er Jóhann Jónas Ingólfsson skráð- ur sem stjórnarmaður þess. Er starfsemi félagsins flokkuð undir múrhúðun. DV hefur undanfarna daga borist ábendingar um að auglýs- ingabæklingi frá Já Iðnaðarmönn- um hafi verið dreift á heimili á víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Um- ræður hafa sprottið upp á Face- book þar sem einstaklingar hvetja fólk til að vara sig á viðskiptum við fyrirtækið. „Mér finnst alveg furðulegt að svona menn geti haldið áfram að stofna nýja kennitölu, nýtt VSK- -númer. Er ekkert í kerfinu sem getur komið í veg fyrir þetta? Ég get ekki ímyndað mér annað en að hann sé bara við sama hey- garðshornið. Hann er að pretta. Hann rukkar fólk og gengur hart eftir því að fá fyrirframgreiðsl- ur. Hann er gjörsamlega siðlaus,“ segir Elías Vífilsson, eigandi og framkvæmdastjóri Múr og Mál ehf. í samtali við DV. Elías er einn af þeim sem segja farir sínar ekki sléttar af viðskiptum sínum við Jó- hann. 26 milljóna þrot Í marslok 2017 stefndi félag Jó- hanns, Já Iðnaðarmenn ehf. í gjaldþrot. Var nafni félagsins þá breytt í Verktakar og endurbæt- ur ehf. Félagið var síðan úrskurð- að gjaldþrota nokkrum vikum síð- ar eða þann 12. apríl og lauk þar með rúmlega tveggja ára rekstrar- sögu þess. Á þeim tíma hafði félag- ið komið að margs konar verktaka- starfsemi. Þá var rekstur félagsins fluttur yfir í félagið Já iðnaðarmenn Art2b verkstæði ehf. Félagið hélt áður utan um rekstur listagallerís í and- dyri Bónusverslunarinnar í Kaup- túni en tilgangi félagsins var síðar breytt í fyrirtækjaskrá á þann veg að fyrirtækið væri einnig í verk- takastarfsemi. Í júlí 2017 skrifaði Jóhann undir leigusamning við eigend- ur atvinnuhúsnæðis að Þverholti 18 í Reykjavík. Var leiguverðið 1.650.000 krónur á mánuði. Fast- eignin var þó aðeins að litlu leyti notuð sem skrifstofa félagsins, þar gistu einnig erlendir verkamenn sem komu til starfa hjá Já Iðnaðar- mönnum. Þann 11. desember sama ár lauk skiptum í þrotabúinu. Lýstar kröfur voru um 126 milljónir króna en engar eignir fundust í búinu. Jóhann færði því Já Iðnaðar- menn yfir á aðra kennitölu og hélt áfram rekstri. DV greindi frá því í desember 2017 að Jóhann hefði undanfarna mánuði aug- lýst grimmt eftir starfsmönnum, til dæmis smiðum, málurum, bif- vélavirkjum, verkstjóra og traust- um og ábyggilegum fjármála- stjóra. Fram kom í frétt DV á sínum tíma að samkvæmt heimildum blaðsins hefðu margar kvartanir vegna starfseminnar borist til eft- irlitsaðila mánuðina á undan. Þá hafi fyrirtækið verið kært til lög- reglu vegna meints brots á iðnað- arlögum. Fólust brotin í því að ófaglærðir starfsmenn hefðu sinnt verkefnum sem þeir höfðu engin réttindi til að vinna. Fram kom að margir viðskipta- vinir sætu eftir með sárt ennið eftir viðskipti sín við Já Iðnaðarmenn, og birgjar sömuleiðis. „Ég er búinn að vera í þessum bransa í þrjátíu ár og ég hef aldrei kynnst öðrum eins siðblindingja,“ sagði Ingólfur Steingrímsson, eig- andi Kvarna ehf. ,sem leigir með- al annars út vinnupalla fyrir verk- taka. Hann fordæmdi einnig framgang lögreglu og eftirlitsað- ila í málinu. „Ég kærði Jóhann fyr- ir löngu en hann er ekki einu sinni kallaður til skýrslutöku. Á meðan fær hann að halda áfram óáreittur og skilja eftir sig sviðna jörð,“ seg- ir Ingólfur. Í júní 2018 var nafni fyrirtækis- ins breytt í Verktakar Já Art2b ehf. Þremur mánuðum síðar var félag- ið lýst gjaldþrota. DV hafði á sín- um tíma samband við Jóhann vegna gjaldþrotsins og tók hann fyrirspurn blaðamanns óstinnt upp. Vildi hann meina að blað- ið hefði kippt fótunum undan rekstrinum með því að fjalla um fyrra gjaldþrot og rifja upp langan og skuggalegan afbrotaferil hans. Svikinn um laun Í lok júlí 2018 var greint frá því að sérsveit lögreglunnar hefði hand- tekið einstakling sem var vopnað- ur hnífi í húsnæði við Þverholt 18. Húsnæðið sem um ræðir var fyrr- greint atvinnuhúsnæði sem Jó- hann hafði á leigu undir skrifstofu Já Iðnaðarmanna. Maðurinn sem var handtekinn var egypskur hæl- isleitandi sem taldi sig hafa verið svikinn um laun af vinnuveitanda sínum, Já Iðnaðarmönnunum. Í byrjun nóvember 2018 var reksturinn kominn á þriðju kenni- töluna: yfir í Já iðnaðarmenn verk- stæði ehf. Það félag hét áður Diddi annar ehf. en heitinu var breytt yfir í núverandi nafn fyrirtækisins í lok desember 2017, skömmu eftir að fyrsta fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota. Um miðjan desember 2018 greindi DV frá því að eigendur at- vinnuhúsnæðisins að Þverholti 18 hefðu höfðað mál gegn Jóhanni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í þeim tilgangi að fá hann borinn út úr fasteigninni. Hafði þá leigu- samningnum verið rift vegna van- efnda. Þegar hér var komið sögu var Jóhann skráður í Þjóðskrá með óþekkt heimilisfang í Danmörku. Dæmdur nauðgari Jóhann hefur margoft komið við sögu lögreglu undanfarna ára- tugi, meðal annars vegna þjófn- aða. Í frétt Pressunnar í september 1992 kemur fram að Jóhann, sem þá var 35 ára gamall, hefði komist yfir tuttugu sinnum í kast við lögin á átján árum. Í upphafi tíunda áratugarins hlaut hann sex mánaða fangels- isdóm fyrir nauðgun og sat inni í Hegningarhúsinu við Skólavörðu- stíg í þrjá mánuði. Í afplánuninni kynntist hann afbrotamanninum Steini Ármanni Stefánssyni og tókst með þeim vinskapur. Steinn Ármann trúði Jóhanni fyrir því að hann ætti von á stórri kókaínsendingu til lands- ins. Þær upplýsingar ákvað Jóhann að nýta sér til hins ítrasta. Hann var í erfiðri stöðu því í febrúar 1991 hafði hann verið handtekinn með þrjú kíló af hassi. Ákæra í málinu hafði verið gefin út og átti Jóhann því þungan dóm yfir höfði sér. Um leið og hann lauk af- plánun nauðgunardómsins gaf hann sig fram við lögreglu, sagði allt af létta og tók að sér að þykj- ast ætla að kaupa efnið með það að markmiði að grípa Stein Ár- mann með það undir höndum. Áætlunin gekk upp og var málið, sem fékk mikla fjölmiðlaumfjöll- un, þekkt sem Stóra Kókaínmálið. Fram kom að Jóhann hafi freistað þess að fá mildari dóm í hassmáli sínu í staðinn fyrir uppljóstrunina. Árið 1993 var Jóhann dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir innflutn- ing á fíkniefnum og kynferðisbrot. Í kjölfarið ákvað hann að yfirgefa landið. Í mars 1999 greindi DV síðan frá því að Jóhann væri aftur kom- inn til Íslands eftir að dómurinn gegn honum hafði fyrnst. Starfaði hann þá fyrir breskt heildsölufyrir- tæki sem lét til sín taka hérlendis. Í frétt blaðsins kom fram að íslensk yfirvöld hefðu leitað til Interpol til þess að hafa uppi á Jóhanni en án árangurs. n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is „Hann er gjörsamlega siðlaus“ Árið 1993 var Jóhann dæmdur í sjö mánaða fang- elsi fyrir innflutning á fíkniefnum og kynferðis- brot. Í kjölfarið ákvað hann að yfirgefa landið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.