Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Qupperneq 44
FÓKUS 26. júlí 201944 D iljá Hvannberg er ung og efnileg skáldkona og hún gaf nýverið út bókina Í skugga baráttunnar. Þar fjallar hún um kynferðisofbeldi á hispurslausan hátt en rauður þráður bókarinnar hverfist í kring- um sterkar konur og gallað kerfi. „Sagan segir frá vinkonum sem eru að stíga sín fyrstu skref inn í full- orðinsárin. Í upphafi bókarinnar er annarri stúlkunni nauðgað eft- ir skemmtun í miðbænum og fjall- ar sagan um ferlið sem hún geng- ur í gegnum í kjölfarið. Stelpurnar fara saman í gegnum kæruferli sem reynir á áður óþekktar hliðar en fljótlega spinnst hávær orðróm- ur um atburðarásina og í kjölfarið koma upp erfiðar áskoranir innan fjölskyldna stelpnanna sem finnst þær þurfa að fullorðnast helst til of fljótt.“ Skapa með skrifum Fjögur ár eru nú síðan Diljá byrj- aði að skrifa söguna en hún segir vitundarvakninguna #konurtala, #eftirkynferðisofbeldi og #metoo hafa hvatt sig til verksins. „Þessi umræða fyllti alla samfélagsmiðla og ég hafði lesið ótrúlegt magn af sögum sem sterkir þolendur kyn- ferðisofbeldis höfðu skrifað, sumir eftir margra ára þögn. Þessi bylting hefur verið rosaleg vitundarvakn- ing og hefur hjálpað mörgum að stíga fram og segja frá. Ég hef haft gaman af því að skrifa frá því ég man eftir mér. Á unglingsárunum átti ég við þung- lyndi og kvíða að stríða, en þegar ég skrifaði fannst mér ég komast í burtu. Ég fann mikið frelsi í því að komast burtu frá raunveruleikan- um og skapa eitthvað með skrif- um. Það fékk þó enginn að lesa það sem ég skrifaði og því var það stórt skref fyrir mig þegar bróð- ir minn fékk loksins að lesa fyrstu kaflana úr þessari sögu. Mark- mið mitt var að skrifa skáldsögu sem spannar allt ferlið sem getur komið í kjölfar kynferðisofbeldis. Þetta tilfinningalega, að fara inn á Neyðarmóttökuna, kæruferlið, þegar annað fólk fer að mynda sér skoðanir og auðvitað margt fleira.“ Gallað kerfi Diljá setti sig fljótlega í samband við lögreglu og heilbrigðisstarfs- fólk sem reyndist henni vel þegar kom að því að afla heimilda fyr- ir handritsgerðina. „Berglind Eyj- ólfsdóttir, lögregluþjónn hjá Bjark- arhlíð, hjálpaði mér mjög mikið við að skilja hvernig kæruferlið er og Hrönn Stefánsdóttir, hjúkr- unarfræðingur hjá Neyðarmót- tökunni, svaraði öllum mínum spurningum sem ég hafði varð- andi komuna upp á spítala. Stað- reyndin er sú að kynferðisofbeldi er gríðarlega algengt hér á landi og kæruferlið hefur í alltof mörg- um tilfellum nær ekkert að segja. Þetta er svo gallað kerfi og því vildi ég beina sjónum að með þessari bók.“ Draumurinn að stofna bóka- forlag Nú er ár liðið síðan handritið var fullmótað en bókaforlögin sýndu því lítinn áhuga. Diljá tók því til sinna ráða og ákvað að gefa bók- ina út sjálf. „Eftir miklar rannsókn- ir komst ég að því að það er langs- niðugast og hagstæðast að gefa út í gegnum Amazon Kindle Direct Publishing. Eina vandamálið við það var að ég þurfti að gera allt sjálf, sem er meira en að segja það. Eftir að ég byrjaði á þessu verk- efni var ekki aftur snúið, ég fór að skoða á internetinu hvernig á að setja upp bók, hanna kápuna og fleira sem ég hafði ekki einu sinni hugsað út í áður. Ég vildi gera þetta vel og vanda til verka. Ferlið hef- ur verið ótrúlega skemmtilegt og lærdómsríkt, ég er nú þegar orðin spennt yfir að vinna í næstu bók. Draumurinn er að stofna bókafor- lag ásamt vinkonu minni, nafnið er þegar komið: „Fyrstu skrifin“ og markmiðið að hjálpa nýjum rit- höfundum að koma sér á framfæri, við fáum vonandi að upplifa þann draum einn daginn. Annars er ég alveg óendanlega þakklát mann- inum mínum, fjölskyldu minni og nánustu vinum fyrir allan stuðn- inginn, yfirlestur og góðu ráðin.“ n Bókin spratt úr byltingunni n Diljá ætlar sér stóra hluti n Skrifar um sterkar konur og gallað kerfi Diljá dreymir um að stofna bókaforlag „Markmiðið er að hjálpa nýjum rithöfundum að koma sér á framfæri“ Mynd: Eyþór Árnason Efnileg skáldkona „Þetta er svo gallað kerfi og því vildi ég beina sjónum að með þessari bók.“ Mynd: Eyþór Árnason Íris Hauksdóttir irish@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.