Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 38
FÓKUS 26. júlí 201938 Leigir röppurum og leikurum lúxuskerrur í Beverly Hills É g sé ekki eftir neinu. Ég veit ekki hvar ég væri í dag ef ég hefði haldið áfram að búa á Íslandi. Ég væri örugglega að gera skemmtilega hluti, en ég væri ekki manneskjan sem ég er í dag,“ segir hin 24 ára gamla Magnea Björg Jónsdóttir. Magnea dýfði sér svo sannarlega í djúpu laugina fyrir fimm árum þegar hún flutti nítján ára gömul til Los Angeles í Bandaríkjunum. Það má segja að Magnea hafi lifað draumalífinu þessi fimm ár, rekið lúxusbílaleigu fyrir fræga fólkið í Los Angeles og kynnst því hvernig er að standa á eigin fótum. Magnea er nýjasti gestur hlaðvarpsþáttar dægur- máladeildar DV, föstudagsþáttar- ins Fókuss. Týnd og leið ekki vel Magnea sleit barnsskónum í Breiðholti, gekk í Hólabrekku- skóla og Fjölbraut í Breiðholti og æfði knattspyrnu með Leikni í átta ár. Hún á tvö yngri systkini og hef- ur ávallt verið opin og átt auðvelt með að tala við hvern sem er um daginn og veginn. Á síðustu önn- inni í FB var hún komin með nóg af Íslandi og þráði breytingar. Þá kallaði borg draumanna, Los Ang- eles. „Ég þurfti smá breytingu og taldi að það að flytja í burtu og skipta um umhverfi myndi kannski breyta hvernig mér leið. Ég held að við Íslendingar vitum allt um það hvernig maður verður þunglyndur á veturna á Íslandi, svo hamingj- una sem fylgir sumrinu og síðan detta allir aftur í dvala. Ég myndi segja að ég hafi verið týnd og mér leið ekki alltof vel andlega,“ seg- ir Magnea um hvernig það kom til að hún flutti svo ung vestur um haf. Hún byrjaði á því að skrá sig í skólann Santa Monica College og útskrifaðist eftir þrjú ár með AA- -gráðu í samskiptafræði. Hún segir námið hafa þroskað hana mikið. Það kostaði hins vegar sitt. „Ég og LÍN [Lánasjóður ís- lenskra námsmanna] erum ekki bestu vinir,“ segir Magnea og hlær. „Fyrstu viðbrögð þegar ég byrj- aði að fá reikningana frá LÍN voru bara: „Guð minn góður.“ En þetta nám gaf mér ofboðslega mikið og ég sé ekki eftir því.“ Dýrasti bíllinn á 62 milljónir Eftir útskrift fékk Magnea ólaun- að starfsnám hjá snyrtistofunni Secret Beauty í þrjá mánuði. Strax í framhaldinu fékk hún ólaunað starfsnám hjá bílaleigunni sem hún rekur í dag, Royal Exotic Car Rental í Beverly Hills. Fyrst um sinn átti Magnea aðeins að sjá um sýningarsal bílaleigunnar en var fljótt farin að ganga í öll verk. „Ég gerði markaðsefni fyrir fyr- irtækið, allar auglýsingar, vefsíð- una og fleira. Svo endaði þetta þannig að ég var farin að gera allt í fyrirtækinu, allt frá því að borga reikningana yfir í að læra á alla bíl- ana,“ segir Magnea. Í dag eru átján lúxusbílar í boði á leigunni, til dæmis Rolls Royce, Lamborghini, Ferrari, Benz og Maybach. Dýr- asti bíllinn kostar um hálfa milljón dollara, rúmar 62 milljónir króna. Dagsleiga á ódýrasta bílnum er um þrjátíu þúsund krónur en á þeim dýrasta um þrjú hundruð þúsund krónur. Eins og gefur að skilja getur ýmislegt gerst í þess- um bransa. „Ég fór með einn Lamborghini í tökur um daginn og þá var búið að brjótast inn í sýningarrýmið og ræna öllum bíllyklunum. Það kost- aði sitt enda kostar hver lykill um hundrað þúsund krónur. Bílunum hefur einnig verið rænt. Það gerð- ist síðast bara um daginn. Þá kom eldri maður inn og leigði bíl. Ég hélt að hann væri traustsins verð- ur. Hann sagði mér að hann þyrfti flottan bíl því hann væri að fara á fund og þyrfti að líta vel út. Síðan hafði hann bílinn aðeins lengur en samið var um og hætti að svara símanum. Loks tók hann staðsetn- ingartækið úr bílnum. Ég er nátt- úrlega algjör leynilögregla þannig að ég athugaði hvert hann fór áður en hann tók tækið úr bílnum, keyrði þar um en fann hann ekki. Síðan fann ég bílinn á páskadag. Sem betur var ég með lykilinn á mér þannig að ég tók einfaldlega bílinn,“ segir Magnea og brosir. Að hitta fræga er daglegt brauð Fallegt útsýni Vinsælt er að fara í gönguferðir upp hæðirnar í Hollywood. Mynd: Úr einkasafni Stærsti kúnnahópur Magneu er rapparar, fólk í grasbransanum, þar sem gras er löglegt í Kaliforníu, frægt fólk, leikarar og Instagram- -fyrirsætur. Aðspurð hvort það sé ekki mikil pressa að hugsa um svo dýra bíla fyrir fólk sem kallar ekki allt ömmu sína segir hún það vissulega vera svo. „Þetta eru bara eins og litlu börnin mín,“ segir hún og rifjar upp eina skiptið sem hún hefur klesst bíl. „Það var algjört óhapp. Ég var ekki einu sinni úti í um- ferðinni, ég bara bakkaði á kant. Bíllinn þurfti að vera í viðgerð í tvo mánuði. Að lokum seldi eig- andinn bílinn, en það óheppi- lega var að ég var ekki einu sinni í vinnunni þegar þetta gerðist held- ur var ég á leið í afmælispartí hjá Chris Brown,“ segir hún og hlær. Tónlistarmaðurinn Chris Brown er ekki eini þekkti einstaklingur- inn sem Magnea hefur hitt í Los Angeles. Hún hefur einnig hitt Justin Bieber, glaumgosann Dan Bilzerian, rapparana Migos og far- ið í teiti hjá Drake og Leonardo DiCaprio svo fáir einir séu nefnd- ir. En hefur hún einhvern tímann orðið „star struck“? „Já, þegar Kylie Jenner hélt upp á afmæli sitt á litlum kokteilklúbbi sem heitir Delilah. Ég elska hana,“ segir hún. Varðandi framtíðina er Magnea með stór plön. „Mig langar að stofna mitt eig- ið fyrirtæki, vegna vel og gera eitt- hvað flott í lífinu. Mig langar líka í fjölskyldu, en ég er ekki tilbúin í það núna. Eitt af því, þegar mað- ur býr svona langt í burtu og fylgist með öllu á Íslandi, er að maður hugsar: „Ég væri til í að eignast ís- lenskan kærasta og stofna fyrir- tæki og kaupa öll þessi Ittala-glös. Þetta góða skandinavíska líf.“ Mér finnst það rosalega spennandi.“ „Ég og LÍN erum ekki bestu vinir“ n Klessti bíl á leið í afmæli Chris Brown n Magnea flutti 19 ára til Los Angeles n Rekur lúxusbílaleigu Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.