Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 35
KYNNING Opnar aftur í Glæsibæ og á Dalvegi eftir glæsilegar endurbætur SAFFRAN 10 ÁRA: Veitingastaðurinn Saffran hefur verið opnaður aftur í Glæsibæ og á Dalvegi í Kópavogi eftir allsherjar endurbætur. Nýju staðirnir eru hannaðir af Nicola Fellerini hjá Costagroup í Ítalíu og þykja afar bjartir og glæsilegir og endurspegla gæðin og ferskleikann sem Saffran stendur fyrir. Nýir tímar kalla á breytta hönnun „Saffran fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir og því voru inn- réttingar og hönnun staðanna komin á tíma. Staðirnir voru opnaðir í upphafi 2009 og voru standsettir með mjög litlum tilkostnaði sem féll vel að þeim tíðaranda sem þá ríkti. Nú eru breyttir tímar og nýir straumar og stefnur sem ráða ríkjum í hönnun veitingastaða þar sem aukin áhersla er lögð á hönnun, umhverfi og upp- lifun viðskiptavinanna en áður hefur tíðkast,“ segir Bjarni Gunnarsson framkvæmdastjóri. Alltaf vinsælt og alltaf jafn gott „Saffran hefur notið gríðarlegra vinsælda frá upphafi og á sér stóran hóp fastakúnna sem eru meðvit- aðir um hollustu, hreyfingu og gott mataræði. Einnig sækir stór hópur afreksíþróttafólks staðina okkar sem við erum afskaplega stolt af. Staðirnir tveir voru lokaðir í tíu daga á meðan endurbætur stóðu yfir en Saffran rekur fjóra veitingastaði og því þurftu fastagestir ekki að örvænta. Nú höf- um við opnað dyrnar aftur á Dalvegi og í Glæsibæ og bjóðum alla matar- gesti velkomna,“ segir Bjarni. Saffran er staðsettur í Glæsibæ, Dalvegi 4 í Kópavogi, Bæjarhrauni 16 í Hafnarfirði og Bíldshöfða 12 í Reykjavík. Pantaðu matinn heim á saffran.is Sími: 578-7874 Fylgstu með á Facebook: Saffr- an veitingastaður og Instagram: Saffran veitingastaður Myndir: Eyþór Árnason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.