Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 18
18 26. júlí 2019FRÉTTIR E f eitthvað á leiðinni hefði klikkað, flugvélin bilað eða einhver seinkun hefði orðið, þá væri ég ekki hér í dag,“ seg- ir Aldís Freyja Magnúsdóttir, íbúi í Vestmanneyjum, en hún var lífs- hættulega komin þegar hún fékk utan legsfóstur á seinasta ári og missti hátt í fjóra og hálfan lítra af blóði. Ekki mátti muna nema örfá- um mínútum þegar sjúkraflugvél frá Akureyri lenti í Eyjum og sótti Aldísi. „Ef við værum með okkar eigin sjúkraflugvél hér á Suðurlandi þá hefði ég kannski ekki verið jafn ná- lægt dauðanum og ég var,“ segir Al- dís í samtali við DV. 520 kílómetrar á milli Árið 2010 gengu Sjúkratryggingar Íslandsfrá samkomulagi við Mýflug vegna sjúkraflugs á Vestmannaeyja- svæði. Flugfélag Vestmannaeyja hafði áður sinnt fluginu en síðan misst flugrekstrarleyfið. Sjúkraflug- vél fyrir Vestmannaeyjar er því stað- sett á Akureyri, í um 520 kílómetra fjarlægð. Tilgreindur viðbragðstími hjá Mýflugi er 35 mínútur frá því beiðni berst þar til flugvélin er tilbúin til flugtaks frá Akureyrarflugvelli. Flug- tími til Vestmannaeyja er 40–45 mínútur. Þá eru þyrlur Landhelgis- gæslunnar reiðubúnar að taka að sér sjúkraflug á Vestmannaeyja- svæði ef vél Mýflugs getur ekki lent í Vestmannaeyjum. Kostnaður vegna sjúkraflugs til og frá Vestmannaeyjum árið 2016 nam tæpum 29 milljónum króna en það er um sjö prósent af kostnaði vegna sjúkraflugs á landinu öllu en kostnaður við allt sjúkraflug Mýflugs nam tæpri 391 milljón króna á síð- asta ári. Þá nam kostnaður vegna þyrlu- flugs Landhelgisgæslunnar til Vest- mannaeyja rúmri 1,1 milljón króna. Það samsvarar um 13 prósentum kostnaðar við allt flug Landhelgis- gæslunnar á síðasta ári, en kostn- aður við það var rúmar 8,6 milljón- ir króna. Í nóvember á seinasta ári greindu Eyjafréttir frá því að það sem af var af ári hefði þurft að kalla til sjúkraflug- vél eða þyrlu til sjúkraflutninga milli lands og Eyja í að meðaltali 2,7 skipti á viku. „Það eru komin 110 flug með Mýflugi það sem af er ári. Það er erfiðara að fá tölfræði hjá Land- helgisgæslunni en okkur telst til að það séu um 10–12 þyrluflug það sem af er á þessu ári,“ sagði Styrmir Sigurðarson, yfirmaður sjúkraflutn- inga á Suðurlandi. Þá kom fram að árið 2016 var meðalkostnaður eins sjúkraflugs, miðað við öll sjúkraflug, 584.793 krónur og má búast við að hann hafi hækkað umtalsvert síðan þá. Greiðar samgöngur eru mannréttindi Sara Sjöfn Grettisdóttir, ritstjóri Eyjafrétta, ritaði harðorðan pistil í apríl síðastliðnum þar sem hún gagnrýndi að engin sjúkraflugvél væri til staðar á Suðurlandi. „Í mínum haus er akkúrat ekkert rökrétt við þetta og hreinlega verið að taka óþarfa áhættu með líf fólks,“ ritaði Sara og bætti við á öðrum stað: „Ég velti fyrir mér hversu margar fjölskyldur eiga svona sögur, af bið eftir sjúkraflugi. Hvað þarf að gerast til að laga þetta, þarf fólk að deyja í biðinni svo eitthvað breytist? Ég verð svo reið þegar ég hugsa um þetta! Hvað er verið að bjóða okkur upp á? Eigum við ekki betra öryggi skilið. Ætti ekki að vera algjört forgangsatriði að koma þessu í lag. Örugg heilbrigðisþjónusta og greið- ar samgöngur eru mannréttindi sem ættu að vera aðgengileg hverj- um einasta Íslendingi.“ Missti 90 prósent af blóði sínu Það var um miðjan febrúar á sein- asta ári að Aldís komst að því að hún væri barnshafandi. „Daginn eftir vaknaði ég með gnístandi verk í kviðnum og fór á klósettið þar sem ég endaði á að svitna og engjast um af sársauka. Ég reyndi að kalla á frænku mína sem ég bjó með og það reyndi svo á að ég kastaði upp í sturtuna við hliðina á mér. Um leið fann ég að allt blóð fór úr hausnum á mér. Á endanum kom frænka mín fram og hún fór með mig beint upp á sjúkrahúsið í Eyjum.“ Aldís var lögð inn á sjúkrahúsið í skyndi þar sem henni voru gefin verkjalyf og blóð. „Sem betur fer hafði ég tekið þungunarpróf kvöldið áður, því um leið og ég sagði að ég væri ófrísk þá fattaði hjúkrunarfræðingur strax hvað var í gangi: ég var að missa fóstur. Í staðinn fyrir að blæða niður þá var allt mitt blóð að safnast upp í leginu á mér svo ég var að missa blóð mjög hratt,“ segir Aldís en hún missti rúmlega 90 prósent af blóð- inu og var að eigin sögn sárþjáð þrátt fyrir mikla morfíngjöf. Fór það svo að hún kláraði allar þær blóðbirgðir sem til voru á sjúkrahúsinu, á með- an beðið var eftir sjúkraflugvélinni. Kallað var á sjúkraflugvél á veg- um Mýflugs en en það tók rúmlega 40 mínútur að koma vélinni til Vest- mannaeyja. „Mér var svo skutlað í sjúkrabíl upp á flugvöll og flogið með mig beint í bæinn. Ég var með meðvit- und allan tímann og það eina sem ég heyrði voru orðin „akút“, „ medic bíll“ og „vantar blóð“. Um leið og við lentum í Reykjavík tók á móti mér sjúkrabíll þar sem mér var gefið meira blóð.“ Þegar komið var á Landspítalann var Aldísi rúllað beinustu leið inn á skurðstofu. „Ég áttaði mig ekkert á alvarleika málsins fyrr en ég vaknaði eftir að- gerðina og var tjáð af lækninum að ég hefði verið með utanlegsfóstur sem fékk að dafna of lengi í eggjaleiðara og það bókstaflega sprakk. Um 4,3 lítrar af blóði mínu höfðu safnast fyr- ir í leginu á mér og hún sagði mér að ef ég hefði komið fjórum mínútum seinna inn á skurðstofuna þá hefði ég látið lífið. Hver mannslíkami er bara með rúma fimm lítra af blóði svo það er hægt að ímynda sér hvað ég missti mikið og hratt. En sem betur fer þá lifði ég þetta af, ég var þó mjög slöpp og var frá vinnu í rúma tvo mánuði. Af því að ég frestaði því svo lengi að taka þungunarpróf þá var fóstrið orðið um sjö vikna og þess vegna var þetta einmitt mun stærri aðgerð en venju- leg fóstureyðing með skurðaðgerð. Ég er með þrisvar sinnum stærra ör en eins og eftir keisara. En um mína sögu er tvennt að segja. Í fyrsta lagi: Ekki bíða með að taka þungunarpróf ef ske kynni að fóstrið væri utanlegs. Í öðru lagi: Það er alveg fáránlegt að það skuli ekki vera sjúkravél til stað- ar í Eyjum eða þá að minnsta kosti í Reykjavík.“ n ALDÍS VAR FJÓRUM MÍNÚTUM FRÁ DAUÐANUM Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is n Missti 90 prósent af blóði líkamans n Engin sjúkraflugvél í Eyjum n „Þarf fólk að deyja í biðinni svo eitthvað breytist?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.