Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 28
Sérblaðið 26. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ Náttúruunnandi sem eyðir óværu?? EDA MEINDÝRAVARNIR: Meindýravertíðin fór vel af stað og hófst með úðun garða gegn óværu sem herjar á trjágróður. Þessa dagana er mest að gera í geitungi, silfurskottu og rottu. Það er klárlega meira að gera á góðu og hlýju sumri sem þessu en til dæmis síðasta sumar, sem gerði alla borgarbúa gegndrepa. Lífríkið nær sér mun betur á strik þegar veðrið er hagstætt,“ segir Björn Ananíasson hjá EDA Meindýravörnum. Meindýraeyðir fjölskyldunnar til margra ára Björn stofnaði EDA Meindýravarn- ir eftir að hafa sótt námskeið hjá Landbúnaðarháskóla Íslands í meindýravörnum og garðaeitrun á vormánuðum. „Ég er nú að stíga mín fyrstu skref í þessum bransa en er síður en svo reynslulaus, enda hef ég verið formlegur hirðmeindýraeyðir stórfjölskyldunnar til margra ára. Þegar þarf að losna við geitungabú, rottugang, silfurskottur eða hvaðeina þá er hringt í mig.“ Ekki gott að eiga við lúsmýið Björn sérhæfir sig í hvers kyns mein- dýravörnum og eyðingu. „Ég losa fólk við köngulær, silfurskottur, geit- ungabú, starafló/fuglafló, veggjalús, maðka á trjám og runnum, blaðlús, rottur og mýs. Heitasta umræðuefnið í meindýrabransanum í sumar hefur varla farið framhjá neinum, og þá meina ég lúsmýið. Þessi flugutegund er að ná sér vel á strik vegna hag- stæðra veðurskilyrða, þ.e. hýtt veður og logn. Fæstir vilja hafa lúsmýið í híbýlum sínum eða nálægt sér enda getur það verið sérlega meinfýsið. En lúsmýinu náum við ekki að útrýma frekar en öðrum meindýrum sem eru mikilvæg lífríkinu. Þó virðist vera hægt að halda því í skefjum sums staðar en ekki er hægt að ábyrgjast árangur. Annars verðum við bara að læra að lifa með þessu eins og aðrar þjóðir í kringum okkur. Passa að loka húsunum á kvöldin og setja upp net í gluggana.“ En hvenær er kominn tími til þess að kalla á meindýraeyði? „Þegar vandamálið er orðið stærra en þú sjálfur ræður við. Til þess að ná bestu áhrifunum þá þarf að nota réttu efnin á réttu staðina og gera það skynsamlega til að lágmarka skaðann sem eitrið hefur á náttúr- una. Það er hægt að kaupa alls konar fælur og eitur sem er ætlað fyrir almenning, en stundum þarf bara að nota önnur sterkari efni, tæki og tól sem ætluð eru fagmönnum og fleira. Þeir sem vilja bjarga sér sjálfir geta líka alltaf hringt og fengið ráð- leggingar.“ Ræktar býflugur en eyðir geitung- um Björn er ekki eingöngu í því að eyða óværu heldur er hann alsæll bý- flugnaræktandi, en það hlýtur að teljast frekar fyndið að meindýraeyð- ir rækti býflugur. „Ég hef fengið að heyra frá mörgum að þeim þyki þetta undarlegt uppátæki hjá mér. En ég nýt þess mjög að umgangast þessar harðduglegu flugur. Mér þykir þetta líka fara ágætlega saman, enda hef ég alltaf verið náttúrubarn og með- vitaður um heilbrigði náttúrunnar, sem hlýtur að teljast kostur fyrir meindýraeyði.“ Eins og fleiri af hans tegund er Björninn alsæll með upp- skeruna. „Á haustin fæ ég svo allra besta hunang í Kjósahreppi.“ EDA Meindýravarnir – Garðaúðun Nánari upplýsingar á Facebook: EDA Meindýravarnir Sími: 896-9994 Netpóstur: bjorn@meindyr.is Björn Ananíasson. Er maðkur í trjánum? Iðnar býflugur. Geitungabú.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.