Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 9
KYNNING
Ný og poppuð íslensk heilsufæða
ARCTIC BARLEY:
Arctic Barley er nýtt íslenskt vörumerki, en undir því er framleidd heilsufæða sem
samanstendur af loftpoppuðu byggi.
Bak við fyrirtækið standa matvæla-
fræðingarnir Hildur Guðrún Baldurs-
dóttir og Braga Stefaný Mileris sem
stofnuðu fyrirtækið saman.
Hugmyndin kviknaði í náminu
„Hugmyndin kviknaði í námi okkar í
Háskóla Íslands í matvælafræði, í
vöruþróunaráfanga. Þar vorum við
hvött til að hugsa sjálfstætt og koma
með sniðugar hugmyndir sem gætu
nýtt hráefni sem lítið er unnið með á
Íslandi til verðmætasköpunar og út
frá því kom hugmyndin um að poppa
bygg,“ segja þær Hildur og Braga.
„Bygg er eina kornið sem er hægt
að rækta á Íslandi í einhverjum mæli,
en er samt lítið nýtt til manneld-
is. Grunnhugmyndin að verkefninu
var að vinna byggið sem minnst og
viðhalda þannig heilsusamlegum
eiginleikum þess. Hugmyndin þróaðist
síðan áfram, en okkur fannst mikil-
vægt að hafa vörurnar heilsumið-
aðar þar sem byggið er bæði nær-
ingar- og trefjaríkt. Við vorum svo
heppnar að fá styrk frá Matvæla- og
næringarfræðideild háskólans til að
halda áfram vöruþróun um sumarið
til að gera neytendakannanir og klára
nauðsynlegar mælingar. Síðan þá
hefur hugmyndin þróast og vöru-
þróun hefur verið á fullu.“
Tóku þátt fyrir hönd Íslands í alþjóð-
legri keppni
Varan, poppað bygg, var valin til að
taka þátt fyrir hönd Íslands í nýsköp-
unarkeppni vistvænna matvæla,
Ecotrophelia, í París árið 2016. Við
það var þróun vörunnar tekin á
næsta stig og hönnun á umbúðum og
logo var unnið með Birtu Rós Brynj-
ólfsdóttur, nemanda við Listaháskóla
Íslands. „Þetta var ómetanleg reynsla
og við lærðum mikið á því hvað þarf
til að geta komið vöru á markað. Það
skiptir okkur máli að hafa vörurnar
okkar og umbúðir vistvænar, og
notum við því einungis umbúðir sem
brotna niður í náttúrunni. Einnig er
varan vistvæn að því leyti að við
erum að nýta illa nýtt hráefni og gera
eitthvað nýtt og spennandi úr því.“
Arctic Barley er fáanlegt í nokkrum
mismunandi blöndum, en uppistað-
an er lífrænt íslenskt bygg sem búið
er að poppa.
Arctic barley
Hreint poppað bygg, en það býður
upp á marga möguleika í matargerð
og bakstri. Poppaða byggið er gott að
nota ofan á salat, í alls konar heilsu-
blöndur og hægt er að nota það að
mörgu leyti í staðinn fyrir hnetur, en
bragðið á því minnir á millistig milli
hnetu og poppkorns. Með poppun á
bygginu nær það mjög skemmtilegri,
brakandi áferð og hefur því marga
mismunandi notkunarmöguleika.
Arctic snack
Arctic snack er hugsað sem snarl til
að grípa í og njóta beint úr pokanum
og inniheldur poppað bygg, ristaðar
kókosflögur, þurrkuð epli, kasjúhnetur
og kanil.
Arctic muesli
Arctic muesli er múslíblandan okk-
ar og inniheldur hún poppað bygg,
ristaðar kókosflögur, dökkt sykurlaust
súkkulaði og döðlur.
„Byggið sem við notum er stútfullt
af trefjum og þar sem eingöngu
er notað heitt loft til að koma því í
neysluhæft form er varan talin mjög
lítið unnin.“ Stöðug vöruþróun er í
gangi hjá þeim stöllum í Arctic Barley
og má nefna að nokkrar vörur sem
eru væntanlegar í framtíðinni, eins
og til dæmis sykurlausa karamellu
með poppuðu byggi, heilsustangir,
hrökkkex og fleira gómsætt.
Hægt er að fá Arctic Barley á eftir-
farandi stöðum:
Fræinu í Fjarðarkaupum, en Arctic
Barley er væntanlegt á fleiri staði á
næstu mánuðum.
Nánari upplýsingar á www.arct-
icbarley.is
Facebook.com/arcticbarley og
Instagram.com/arctic_barley
Arctic Barley verður með kynningu í Fræinu,
Fjarðarkaupum þann 31. júlí frá kl. 16.
Við hvetjum alla til að koma og smakka íslenskt
poppað bygg!