Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Side 9
KYNNING Ný og poppuð íslensk heilsufæða ARCTIC BARLEY: Arctic Barley er nýtt íslenskt vörumerki, en undir því er framleidd heilsufæða sem samanstendur af loftpoppuðu byggi. Bak við fyrirtækið standa matvæla- fræðingarnir Hildur Guðrún Baldurs- dóttir og Braga Stefaný Mileris sem stofnuðu fyrirtækið saman. Hugmyndin kviknaði í náminu „Hugmyndin kviknaði í námi okkar í Háskóla Íslands í matvælafræði, í vöruþróunaráfanga. Þar vorum við hvött til að hugsa sjálfstætt og koma með sniðugar hugmyndir sem gætu nýtt hráefni sem lítið er unnið með á Íslandi til verðmætasköpunar og út frá því kom hugmyndin um að poppa bygg,“ segja þær Hildur og Braga. „Bygg er eina kornið sem er hægt að rækta á Íslandi í einhverjum mæli, en er samt lítið nýtt til manneld- is. Grunnhugmyndin að verkefninu var að vinna byggið sem minnst og viðhalda þannig heilsusamlegum eiginleikum þess. Hugmyndin þróaðist síðan áfram, en okkur fannst mikil- vægt að hafa vörurnar heilsumið- aðar þar sem byggið er bæði nær- ingar- og trefjaríkt. Við vorum svo heppnar að fá styrk frá Matvæla- og næringarfræðideild háskólans til að halda áfram vöruþróun um sumarið til að gera neytendakannanir og klára nauðsynlegar mælingar. Síðan þá hefur hugmyndin þróast og vöru- þróun hefur verið á fullu.“ Tóku þátt fyrir hönd Íslands í alþjóð- legri keppni Varan, poppað bygg, var valin til að taka þátt fyrir hönd Íslands í nýsköp- unarkeppni vistvænna matvæla, Ecotrophelia, í París árið 2016. Við það var þróun vörunnar tekin á næsta stig og hönnun á umbúðum og logo var unnið með Birtu Rós Brynj- ólfsdóttur, nemanda við Listaháskóla Íslands. „Þetta var ómetanleg reynsla og við lærðum mikið á því hvað þarf til að geta komið vöru á markað. Það skiptir okkur máli að hafa vörurnar okkar og umbúðir vistvænar, og notum við því einungis umbúðir sem brotna niður í náttúrunni. Einnig er varan vistvæn að því leyti að við erum að nýta illa nýtt hráefni og gera eitthvað nýtt og spennandi úr því.“ Arctic Barley er fáanlegt í nokkrum mismunandi blöndum, en uppistað- an er lífrænt íslenskt bygg sem búið er að poppa. Arctic barley Hreint poppað bygg, en það býður upp á marga möguleika í matargerð og bakstri. Poppaða byggið er gott að nota ofan á salat, í alls konar heilsu- blöndur og hægt er að nota það að mörgu leyti í staðinn fyrir hnetur, en bragðið á því minnir á millistig milli hnetu og poppkorns. Með poppun á bygginu nær það mjög skemmtilegri, brakandi áferð og hefur því marga mismunandi notkunarmöguleika. Arctic snack Arctic snack er hugsað sem snarl til að grípa í og njóta beint úr pokanum og inniheldur poppað bygg, ristaðar kókosflögur, þurrkuð epli, kasjúhnetur og kanil. Arctic muesli Arctic muesli er múslíblandan okk- ar og inniheldur hún poppað bygg, ristaðar kókosflögur, dökkt sykurlaust súkkulaði og döðlur. „Byggið sem við notum er stútfullt af trefjum og þar sem eingöngu er notað heitt loft til að koma því í neysluhæft form er varan talin mjög lítið unnin.“ Stöðug vöruþróun er í gangi hjá þeim stöllum í Arctic Barley og má nefna að nokkrar vörur sem eru væntanlegar í framtíðinni, eins og til dæmis sykurlausa karamellu með poppuðu byggi, heilsustangir, hrökkkex og fleira gómsætt. Hægt er að fá Arctic Barley á eftir- farandi stöðum: Fræinu í Fjarðarkaupum, en Arctic Barley er væntanlegt á fleiri staði á næstu mánuðum. Nánari upplýsingar á www.arct- icbarley.is Facebook.com/arcticbarley og Instagram.com/arctic_barley Arctic Barley verður með kynningu í Fræinu, Fjarðarkaupum þann 31. júlí frá kl. 16. Við hvetjum alla til að koma og smakka íslenskt poppað bygg!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.