Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 34
26. júlí 201934 FRÉTTIR - EYJAN Túristi í einn dag í miðborg Reykjavíkur - Þetta kostar göngutúrinn F erðamaðurinn byrjar á morgunmat á hóteli sínu, sem er í miðbænum, í göngufæri við helstu kenni­ leiti borgarinnar, veitingastaði, verslanir og mannlíf. Eftir stað­ góðan morgunverð sem er inni­ falinn í verði hótelgistingarinnar heldur túristinn síðan spenntur og glaður út í daginn. Við þessa úttekt ákváðum við að bóka herbergi á Centerhotel Miðgarður sem er á frábærum stað við Hlemm, í göngufæri við miðbæinn, Laugardalinn, Perlu og fleiri staði. Einstaklingsherbergi, 18 fermetrar, í viku frá 24.–31. júlí kostar 1.313 evrur, sem er 180.735 krónur eða 25.819 krónur nóttin. Í herberginu er hárblásari, sími, flatskjár, öryggishólf, minibar, hitaketill, auk þess sem morgun­ verðarhlaðborð er innifalið. Fyrsta daginn í Reykjavík ákveður ferðamaðurinn að taka sér göngu frá hótelinu og um mið­ bæinn og því er öllum stöðum sleppt sem eru fyrir utan þann hr­ ing. Næst hótelinu er Hið íslenska reðasafn, sem Sigurð­ ur Hjartarson, fyrrverandi sögu­ og spænskukennari, stofnaði árið 1997 á Húsavík, safnið var flutt til Reykjavíkur og nýtur mik­ illa vinsælda meðal ferðamanna. Nauðsynlegur viðkomustaður til að komast að því hver sé með það stærsta (og það minnsta) í heimi. Aðgangseyrir er 1.700 krónur. Mannlífið á Laugaveginum er ókeypis að skoða, einstaklega lit­ ríkt og skemmtilegt á mörgum tungumálum, enda segja margir að engir íslendingar finnist leng­ ur í miðbænum. Við Frakkastíg er tekið á sprett upp götuna að Hall­ grímskirkju. Ferð með lyftunni kostar 900 krónur og er skemmti­ legt að eiga orðastað við kirkjunn­ ar verði þegar þeir eða ferðamað­ urinn henda í klassíska frasann „Going up?“ sem hver ferðamaður telur kirkjuvörðinn vera að heyra í fyrsta sinn. Eftir að hafa smellt af ótal mörgum myndum yfir mið­ borgina úr turninum, enda ger­ ist ekkert nema það sé myndað og skjalfest á samfélagsmiðlum, og af styttunni af Leifi Eiríkssyni, sem enginn hefur haft rænu á (enn þá) að rukka fyrir aðgang að, er eitt fallegasta listasafn bæjarins, Listasafn Einars Jónssonar, hin­ um megin við götuna, heimsótt. 1.000 krónur kostar inn á safnið, en ókeypis er inn í höggmynda­ garð hans og er hann því kjörinn fyrir þá sem þola ekki söfn og/eða tíma ekki að eyða pening í söfn, því í garðinum er að finna einstak­ an fjársjóð í höggmyndum Einars. Eftir þrjá viðkomustaði er kall náttúrunnar orðið hávært og maginn einnig farinn að krefjast næringar. Það er því fyrirtak að á næsta horni er Café Loki, sem býður upp á alls konar girnilegan og klassískan íslenskan mat á fínu verði. Á matseðlinum má meðal annars finna rúgbrauð með plokk­ fiski, kjötsúpu, flatbrauð og skyr. Tvennt er nauðsynlegt að kynna sér á Loka: rúgbrauðsísinn og veggmynd á annarri hæð hússins, sem listamennirnir Sigurður Valur Sigurðsson og Raffaela teiknuðu og máluðu af Ragnarökum og fleiri sögum úr norrænu goðafræðinni. Þar koma meðal annars við sögu æsirnir Baldur, Freyja og Loki og þannig eru nálægar götur tengd­ ar saman: Lokastígur, Baldursgata og Freyjugata. Fyrir valinu verður heimabakað flatbrauð með hangi­ kjöti, rúgbrauðsís og kaffibolli, samtals kostar það 2.830 krónur. Næst á dagskrá er Mekka ís­ lensks handverks í miðbænum, Skólavörðustígurinn. Þar sem VISA­kortið er lítið notað það sem af er degi er ferðamanninn farið að kitla svolítið að strauja það og það er enginn ferðamaður með mönn­ um nema kaupa eitthvað fallegt og einkennandi sem sýnir að hann hafi heimsótt borgina og landið. Það er líka „must“ að kaupa íslenska lopapeysu, enda ekk­ ert íslenskara nema ef vera skyldi kindin sjálf. Þó að margar slíkar séu handprjónaðar í kínverskum vélum í dag hefur túristinn ekki endilega vit eða skoðun á því og lætur persónulegan smekk, verð og áferð ráða valinu. Alvöru hand­ prjónuð lopapeysa er fundin í Handprjónasambandi Íslands fyr­ ir 27.900 krónur. Túristinn man allt í einu að hann steingleymdi ferðahand­ bókinni heima á náttborðinu og nauðsynlegt er að hafa slíka í ferðinni, því snjallsíminn kemur ekki alltaf í veg fyrir bókina. Í Ey­ mundsson kippir hann með sér nokkrum íslenskum reyfurum á ensku og þessar bækur gera hann 11.396 krónum fátækari. Þrátt fyrir að sólin glenni sig þennan dag með þeim afleiðing­ um að allir Íslendingar eru á hlýra­ bol er kominn smá hrollur í ferða­ manninn sem hugsar líka til þess að daginn eftir ætlar hann Gullna hringinn, því ákveður hann að splæsa í húfu og vettlinga. Bylur frá 66°Norður verður fyrir valinu, enda töff og erfitt að bera fram (datt engum í hug að nota Eyja­ fjallajökull?), 12.400 krónur strau­ jast hér léttilega á kortið. Eftir rúnt um miðbæinn þar sem Tjörnin, Ráðhúsið, Harpa, Miðbakkinn og fleira er myndað í gríð og erg er hungrið aftur farið að segja til sín og Bæjarins bestu eru fyrri kvöldmatur dagsins. Þessi litli krúttlegi skúr hefur staðið af sér allar framkvæmdir og fegrun í áratugi og er alltaf eins. Pylsa með öllu og kók, 730 krónur, takk fyrir túkall! Svo er auðvitað smellt í sel­ fí líkt og Clinton kallinn forðum daga. Pönksafnið er neðst í Bankastræti og kostar 1.000 krón­ ur inn, lítið og áhugavert safn um pönkmenningu borgarinn­ ar, þar sem safnverðirnir vita allt um pönkið og menninguna, enda þátttakendur í henni þegar hún blómstraði sem best. Svo, líkt og við flytjum heim ýmiss konar varning merktan sól­ arlöndum eftir ferðir okkar þang­ að, dregur túristinn upp veskið og kaupir þrjá vinsæla hluti merkta Íslandi í Lundanum á Laugavegi, sem samtals kosta hann 6.070 krónur í því sem seinna verða rykfallnar minjar í geymslunni (eða Góða hirði hans lands) um góða Íslandsferð. Eftir að hafa skolað af sér gönguna og skipt um galla á hótel­ inu er komið að kvöldverði og hót­ elstarfsmaðurinn mælir með Old Iceland, Laugavegi 72. Kjötsúpa, fiskur dagsins ásamt tveimur bjór­ um kosta 8.280 krónur. Þreyttur eftir frábæran fyrsta dag í Reykjavík ratar túristinn svo inn í næstu matvörubúð við hótel­ ið, óafvitandi að 10–11 er með dýr­ ustu búðum bæjarins og raðar í einn poka alls konar kræsingum til að eiga á hótelherberginu. Íslenskt nammi, snakk, gos, kex og ostar og kortið straujað í síðasta sinn þenn­ an dag fyrir 4.822 krónur. Kostnaður við fyrsta dag Íslandsreisunnar er 79.028 krón­ ur og VISA­kortið rétt að byrja að hitna. Einn dagur á hótelinu er síðan 25.819 krónur eins og kom fram í byrjun, þannig að heildar­ kostnaður fyrsta dags er 104.847 krónur. n Ísland er dýrasta land Evrópu, en neysluverð á Íslandi var að meðaltali 56% hærra hér en annars staðar í Evrópu árið 2018. DV ákvað því að leika sér í einn dag sem ferða- maður í höfuðborginni og athuga hvað dæmigerður fyrsti dagur gæti kostað ferðamanninn. Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Hallgrímskirkja og styttan af Leifi Eiríkssyni, gjöf Bandaríkjamanna í tilefni af Alþingishátíðinni árið 1930. Listaverkið á 2. hæð. Mynd DV/Sigtryggur Ari Jóhannsson Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fékk sér eina með öllu þegar hann var í miðborginni 24. ágúst 2004. Gunnþór Sigurðsson safnvörður. Mynd: Einkasafn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.