Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Side 34
26. júlí 201934 FRÉTTIR - EYJAN
Túristi í einn dag í miðborg Reykjavíkur - Þetta kostar göngutúrinn
F
erðamaðurinn byrjar á
morgunmat á hóteli sínu,
sem er í miðbænum, í
göngufæri við helstu kenni
leiti borgarinnar, veitingastaði,
verslanir og mannlíf. Eftir stað
góðan morgunverð sem er inni
falinn í verði hótelgistingarinnar
heldur túristinn síðan spenntur og
glaður út í daginn.
Við þessa úttekt ákváðum við
að bóka herbergi á Centerhotel
Miðgarður sem er á frábærum
stað við Hlemm, í göngufæri við
miðbæinn, Laugardalinn, Perlu og
fleiri staði. Einstaklingsherbergi,
18 fermetrar, í viku frá 24.–31. júlí
kostar 1.313 evrur, sem er 180.735
krónur eða 25.819 krónur nóttin.
Í herberginu er hárblásari, sími,
flatskjár, öryggishólf, minibar,
hitaketill, auk þess sem morgun
verðarhlaðborð er innifalið.
Fyrsta daginn í Reykjavík
ákveður ferðamaðurinn að taka
sér göngu frá hótelinu og um mið
bæinn og því er öllum stöðum
sleppt sem eru fyrir utan þann hr
ing.
Næst hótelinu er Hið
íslenska reðasafn, sem Sigurð
ur Hjartarson, fyrrverandi sögu
og spænskukennari, stofnaði
árið 1997 á Húsavík, safnið var
flutt til Reykjavíkur og nýtur mik
illa vinsælda meðal ferðamanna.
Nauðsynlegur viðkomustaður til
að komast að því hver sé með það
stærsta (og það minnsta) í heimi.
Aðgangseyrir er 1.700 krónur.
Mannlífið á Laugaveginum er
ókeypis að skoða, einstaklega lit
ríkt og skemmtilegt á mörgum
tungumálum, enda segja margir
að engir íslendingar finnist leng
ur í miðbænum. Við Frakkastíg er
tekið á sprett upp götuna að Hall
grímskirkju. Ferð með lyftunni
kostar 900 krónur og er skemmti
legt að eiga orðastað við kirkjunn
ar verði þegar þeir eða ferðamað
urinn henda í klassíska frasann
„Going up?“ sem hver ferðamaður
telur kirkjuvörðinn vera að heyra í
fyrsta sinn.
Eftir að hafa smellt af
ótal mörgum myndum yfir mið
borgina úr turninum, enda ger
ist ekkert nema það sé myndað og
skjalfest á samfélagsmiðlum, og af
styttunni af Leifi Eiríkssyni, sem
enginn hefur haft rænu á (enn
þá) að rukka fyrir aðgang að, er
eitt fallegasta listasafn bæjarins,
Listasafn Einars Jónssonar, hin
um megin við götuna, heimsótt.
1.000 krónur kostar inn á safnið,
en ókeypis er inn í höggmynda
garð hans og er hann því kjörinn
fyrir þá sem þola ekki söfn og/eða
tíma ekki að eyða pening í söfn,
því í garðinum er að finna einstak
an fjársjóð í höggmyndum Einars.
Eftir þrjá viðkomustaði er kall
náttúrunnar orðið hávært og
maginn einnig farinn að krefjast
næringar. Það er því fyrirtak að
á næsta horni er Café Loki, sem
býður upp á alls konar girnilegan
og klassískan íslenskan mat á fínu
verði. Á matseðlinum má meðal
annars finna rúgbrauð með plokk
fiski, kjötsúpu, flatbrauð og skyr.
Tvennt er nauðsynlegt að kynna
sér á Loka: rúgbrauðsísinn og
veggmynd á annarri hæð hússins,
sem listamennirnir Sigurður Valur
Sigurðsson og Raffaela teiknuðu
og máluðu af Ragnarökum og fleiri
sögum úr norrænu goðafræðinni.
Þar koma meðal annars við sögu
æsirnir Baldur, Freyja og Loki og
þannig eru nálægar götur tengd
ar saman: Lokastígur, Baldursgata
og Freyjugata. Fyrir valinu verður
heimabakað flatbrauð með hangi
kjöti, rúgbrauðsís og kaffibolli,
samtals kostar það 2.830 krónur.
Næst á dagskrá er Mekka ís
lensks handverks í miðbænum,
Skólavörðustígurinn. Þar sem
VISAkortið er lítið notað það sem
af er degi er ferðamanninn farið að
kitla svolítið að strauja það og það
er enginn ferðamaður með mönn
um nema kaupa eitthvað fallegt og
einkennandi sem sýnir að hann
hafi heimsótt borgina og landið.
Það er líka „must“ að kaupa
íslenska lopapeysu, enda ekk
ert íslenskara nema ef vera skyldi
kindin sjálf. Þó að margar slíkar
séu handprjónaðar í kínverskum
vélum í dag hefur túristinn ekki
endilega vit eða skoðun á því og
lætur persónulegan smekk, verð
og áferð ráða valinu. Alvöru hand
prjónuð lopapeysa er fundin í
Handprjónasambandi Íslands fyr
ir 27.900 krónur.
Túristinn man allt í einu að
hann steingleymdi ferðahand
bókinni heima á náttborðinu
og nauðsynlegt er að hafa slíka í
ferðinni, því snjallsíminn kemur
ekki alltaf í veg fyrir bókina. Í Ey
mundsson kippir hann með sér
nokkrum íslenskum reyfurum á
ensku og þessar bækur gera hann
11.396 krónum fátækari.
Þrátt fyrir að sólin glenni sig
þennan dag með þeim afleiðing
um að allir Íslendingar eru á hlýra
bol er kominn smá hrollur í ferða
manninn sem hugsar líka til þess
að daginn eftir ætlar hann Gullna
hringinn, því ákveður hann að
splæsa í húfu og vettlinga. Bylur
frá 66°Norður verður fyrir valinu,
enda töff og erfitt að bera fram
(datt engum í hug að nota Eyja
fjallajökull?), 12.400 krónur strau
jast hér léttilega á kortið.
Eftir rúnt um miðbæinn þar
sem Tjörnin, Ráðhúsið, Harpa,
Miðbakkinn og fleira er myndað í
gríð og erg er hungrið aftur farið
að segja til sín og Bæjarins bestu
eru fyrri kvöldmatur dagsins. Þessi
litli krúttlegi skúr hefur staðið af
sér allar framkvæmdir og fegrun í
áratugi og er alltaf eins. Pylsa með
öllu og kók, 730 krónur, takk fyrir
túkall! Svo er auðvitað smellt í sel
fí líkt og Clinton kallinn forðum
daga.
Pönksafnið er neðst í
Bankastræti og kostar 1.000 krón
ur inn, lítið og áhugavert safn
um pönkmenningu borgarinn
ar, þar sem safnverðirnir vita allt
um pönkið og menninguna, enda
þátttakendur í henni þegar hún
blómstraði sem best.
Svo, líkt og við flytjum heim
ýmiss konar varning merktan sól
arlöndum eftir ferðir okkar þang
að, dregur túristinn upp veskið og
kaupir þrjá vinsæla hluti merkta
Íslandi í Lundanum á Laugavegi,
sem samtals kosta hann 6.070
krónur í því sem seinna verða
rykfallnar minjar í geymslunni
(eða Góða hirði hans lands) um
góða Íslandsferð.
Eftir að hafa skolað af sér
gönguna og skipt um galla á hótel
inu er komið að kvöldverði og hót
elstarfsmaðurinn mælir með Old
Iceland, Laugavegi 72. Kjötsúpa,
fiskur dagsins ásamt tveimur bjór
um kosta 8.280 krónur.
Þreyttur eftir frábæran fyrsta
dag í Reykjavík ratar túristinn svo
inn í næstu matvörubúð við hótel
ið, óafvitandi að 10–11 er með dýr
ustu búðum bæjarins og raðar í
einn poka alls konar kræsingum til
að eiga á hótelherberginu. Íslenskt
nammi, snakk, gos, kex og ostar og
kortið straujað í síðasta sinn þenn
an dag fyrir 4.822 krónur.
Kostnaður við fyrsta dag
Íslandsreisunnar er 79.028 krón
ur og VISAkortið rétt að byrja að
hitna. Einn dagur á hótelinu er
síðan 25.819 krónur eins og kom
fram í byrjun, þannig að heildar
kostnaður fyrsta dags er 104.847
krónur. n
Ísland er dýrasta land Evrópu, en neysluverð á Íslandi var
að meðaltali 56% hærra hér en annars staðar í Evrópu
árið 2018. DV ákvað því að leika sér í einn dag sem ferða-
maður í höfuðborginni og athuga hvað dæmigerður fyrsti
dagur gæti kostað ferðamanninn.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Hallgrímskirkja og styttan af Leifi
Eiríkssyni, gjöf Bandaríkjamanna í
tilefni af Alþingishátíðinni árið 1930.
Listaverkið á 2. hæð.
Mynd DV/Sigtryggur Ari Jóhannsson
Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fékk
sér eina með öllu þegar hann var í miðborginni
24. ágúst 2004.
Gunnþór Sigurðsson safnvörður. Mynd: Einkasafn