Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 8
8 26. júlí 2019FRÉTTIR BJÖRN BÝR VIÐ EINANGRUN Í ÞJÓNUSTUÍBÚÐ ALDRAÐRA n Einangraður og einmana n Margra mánaða bið eftir hjólastól við hæfi n Sjúkratryggingar neituðu að greiða fyrir hjálpartæki„Ekki tekur fólk þessa stóla með sér í gröfinaB jörn Birgir Berthelsen fylltist mikilli tilhlökkun í vor þegar hann fékk úthlutað íbúð að Furugerði 1 í Reykjavík eftir að hafa beðið lengi eftir þjónustu- íbúð. Að sögn systur hans, Ragn- heiðar, hlakkaði hann mikið til að kynnast öðrum eldri borgurum og rjúfa félagslega einangrun sem hann hafði búið lengi við á heim- ili sínu. Annað kom þó á daginn og dvelur Björn alla daga einn og ein- mana í íbúð sinni á meðan hann bíður í marga mánuði eftir hjóla- stól við hæfi. Blaðamaður og ljósmyndari DV bönkuðu upp á hjá Birni sól- ríkan miðvikudag í júlí. Íbúðin er upp á níundu og efstu hæð, innst á ganginum, björt og rúmgóð, og samanstendur af stofu, svefnher- bergi, eldhúsi og baðherbergi. „Ég flutti hingað 4. maí,“ segir Björn, sem situr á skrifborðsstól, sem hann notar til að ýta sér á um íbúðina. Út á svalirnar kemst hann þó ekki, þar sem hann treystir sér ekki til að ýta stólnum yfir þrösk- uldinn út á svalirnar. Björn fer því líka á mis við góða veðrið og stór- kostlegt útsýni af svölunum, með- an hann er innilokaður í íbúð sinni. Björn bjó áður í eigin íbúð í blokk í Þangbakka í Breiðholti, en sú íbúð hentaði honum ekki lengur vegna veikinda auk þess sem Björn var farinn að þurfa aðstoð við dag- legar athafnir og farinn að einangr- ast þar. Þar komst hann þó út úr húsi og ferðaðist um á rafskutlu í nálægan þjónustukjarna, en gat þó ekki farið á henni inn í verslanir. „Þegar ég flutti hingað var sagt við mig að ég gæti ekki notað hana hér, hvorki inni né geymt hana inni. Bæði eru gangarnir hérna mjóir og ekki hægt að mæta hjólastól og svo er hvergi hægt að geyma hana nema inni í íbúðinni, þar sem gangarnir eiga að vera auðir. Þannig að það var ekkert hægt að gera nema losa sig við skutluna.“ Tvisvar farið úr íbúðinni á tæpum þremur mánuðum Björn leigir íbúðina í Furugerði og innifalið í leigunni er hiti og raf- magn. Mat greiðir hann fyrir sér- staklega, um 700 krónur máltíðina. Aðspurður hvort eitthvað fleira sé innifalið í leigunni svarar hann: „Það er náttúrulega félagslíf, en ég bara veit ekki hvað.“ Á þeim tæpu þremur mánuð- um sem Björn hefur búið í Furu- gerði hefur hann tvisvar farið niður á fyrstu hæð hússins, þar sem er matsalur, félagsstarf og aðrir íbúar hússins sem hægt er að hitta og tala við um daginn og veginn. „Ég fór fyrsta sunnudaginn eftir að ég flutti, þá fór dóttir mín niður með mig til að sjá hvernig væri. Þá var vöfflukaffi niðri og við keyptum okkur vöfflur. Síðan fór ég í annað sinn þegar var vorhátíð og grillað, þá kom dóttir mín og keyrði mig niður á þessum,“ segir hann og klappar á skrifborðsstólinn. Björn er 69 ára, fæddur og upp- alinn í Hafnarfirði og var sjómaður frá unga aldri. „Um 16–17 ára fór maður að fara á bátana og kom heim bara milli vertíða. Svo fór ég alveg að heiman 19 ára til Ólafsvíkur, kynntist konunni minni og við fórum að basla þar.“ Árið 2000 hætti Björn til sjós, 50 ára gamall, en þá var hann kominn á sjó í Noregi. „Ég hætti á sjónum því ég var kominn með slitgigt í hnén, var alltaf kvalinn í hnjánum,“ segir Björn og bætir við að hann hafi aldrei farið í aðgerð vegna þess. „Kominn í land fór ég að keyra sementsflutningabíla um allt land og það var ekki það gáfu- legasta fyrir mann sem verkjar í hnén, að sitja á rassinum allan daginn. Þá fór ég að þyngj- ast meira, en ég byrjaði að þyngjast þegar við vorum á flæmska hattin- um, þar vorum við með listakokk og lítil vinna.“ Björn á þrjú uppkomin börn sem heimsækja föður sinn eins og þau geta, einu heimsóknirnar þess utan eru frá starfsfólki sem færir honum mat tvisvar á dag: „Svo kíkja þær inn um þrjúleytið. Allt starfsfólkið sem ég hef hitt er mjög elskulegt og allt af vilja gert.“ Einnig heimsækir einn íbúi hússins, fyrr- verandi sjómaður eins og Björn, hann reglulega þar sem þeir ræða sjómennskuna og liðna tíð. Mánaðarbið lengist sífellt Þegar Björn flutti í Furugerði var óskað eftir aðstoð iðjuþjálfa til að koma og sækja um hjólastól fyrir hann. Að sögn systur Björns kom iðjuþjálfinn tveimur vikum seinna, mældi hvernig hjólastól hann þyrfti og pantaði hann, biðin átti að vera mánuður þar sem stólinn yrði að panta að utan. Þrátt fyrir tillögu iðju- þjálfans neituðu sjúkratryggingarn- ar að greiða fyrir þann stól, þar sem hann væri of dýr og því þurfti að finna annan stól. „Iðjuþjálfinn má ekki segja neitt nema það sem hann getur staðið við. En núna er búið að panta stól frá Svíþjóð,“ segir Björn og segist hafa spurt sölumanninn hvort hann myndi ekki bara skutla stólnum í flug næsta morgun. „Án ábyrgðar var sagt að stólinn kæmi í ágúst. Ég veit ekki af hverju þetta tekur svona langan tíma, sölumaðurinn sagði að það væri búið að panta hjólastól, svo þyrfti að breyta honum. Síðasti stóll var frá Öryggismiðstöðinni, það þurfti að breyta honum, svo þegar hann kom þá kostaði hann of mikið,“ segir Björn, og bætir við: „Þeir fara varla að væla yfir hálfri milljón,“ þegar blaðamaður spyr hvað slíkur stóll kosti. „Þetta ræksni kostaði um 100 þúsund krónur,“ segir hann og á við skrifborðsstólinn sem hann situr á: „Það er bremsa á honum svo hann skjótist ekki undan mér svo er hægt að hækka og lækka.“ Eftir heimsóknina til Björns fékk hann loksins tölvupóst, mánu- daginn 22. júlí, um að sjúkra- tryggingar væru búnar að sam- þykkja stólinn, það ætti eftir að panta hann og honum tjáð að það gæti tekið nokkrar vikur. Biðin og fé- lagsleg einangrun Björns lengist því bara enn frekar og segir hann að það sé ekki bætandi á þunglyndi sem hrjáir hann líka. „Það fór með hjóna- bandið.“ Þekkt slagorð Happdrættis DAS, sem er Dvalarheimili aldraðra sjó- manna/Hrafnista, er: „Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld.“ Það slagorð er þó löngu búið að breytast í innihaldslausan frasa eins og mál Björns ber vitni um, þó að Furugerði 1 tilheyri ekki DAS, en þjónustuíbúðirnar eru á vegum Reykjavíkurborgar. „Ég bara skil þetta ekki og það er eitt sem ég skil ekki. Sjálfsagt deyr fólk frá þessum stólum eins og öðru og hvað verður um þá? Af hverju finnst ekki stóll til að nota alla- vega til bráðabirgða. Ekki tekur fólk þessa stóla með sér í gröfina,“ segir Björn sem má bíða enn einhverja mánuði með að komast út fyrir íbúð sína, kynnast öðrum íbúum Furugerðis 1 og rjúfa félagslega ein- angrun sína. n Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Furugerði 1 Inngangurinn að þjónustuíbúðunum. Mynd: Eyþór Árnason Fær ekki að njóta til fulls Öflugt félagsstarf er á fyrstu hæð hússins, sem Björn hefur enn ekki náð að verða hluti af. Mynd: Eyþór Árnason Rafskutlan Björn á rafskutlunni við Þangbakka árið 2017. Mynd: Facebook

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.