Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 28
Sérblaðið 26. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Náttúruunnandi sem eyðir óværu??
EDA MEINDÝRAVARNIR:
Meindýravertíðin fór vel af stað og hófst með úðun garða gegn óværu sem herjar á
trjágróður. Þessa dagana er mest að
gera í geitungi, silfurskottu og rottu.
Það er klárlega meira að gera á
góðu og hlýju sumri sem þessu en til
dæmis síðasta sumar, sem gerði alla
borgarbúa gegndrepa. Lífríkið nær
sér mun betur á strik þegar veðrið er
hagstætt,“ segir Björn Ananíasson hjá
EDA Meindýravörnum.
Meindýraeyðir fjölskyldunnar til
margra ára
Björn stofnaði EDA Meindýravarn-
ir eftir að hafa sótt námskeið hjá
Landbúnaðarháskóla Íslands í
meindýravörnum og garðaeitrun á
vormánuðum. „Ég er nú að stíga mín
fyrstu skref í þessum bransa en er
síður en svo reynslulaus, enda hef ég
verið formlegur hirðmeindýraeyðir
stórfjölskyldunnar til margra ára.
Þegar þarf að losna við geitungabú,
rottugang, silfurskottur eða hvaðeina
þá er hringt í mig.“
Ekki gott að eiga við lúsmýið
Björn sérhæfir sig í hvers kyns mein-
dýravörnum og eyðingu. „Ég losa fólk
við köngulær, silfurskottur, geit-
ungabú, starafló/fuglafló, veggjalús,
maðka á trjám og runnum, blaðlús,
rottur og mýs. Heitasta umræðuefnið
í meindýrabransanum í sumar hefur
varla farið framhjá neinum, og þá
meina ég lúsmýið. Þessi flugutegund
er að ná sér vel á strik vegna hag-
stæðra veðurskilyrða, þ.e. hýtt veður
og logn. Fæstir vilja hafa lúsmýið í
híbýlum sínum eða nálægt sér enda
getur það verið sérlega meinfýsið.
En lúsmýinu náum við ekki að útrýma
frekar en öðrum meindýrum sem
eru mikilvæg lífríkinu. Þó virðist vera
hægt að halda því í skefjum sums
staðar en ekki er hægt að ábyrgjast
árangur. Annars verðum við bara að
læra að lifa með þessu eins og aðrar
þjóðir í kringum okkur. Passa að loka
húsunum á kvöldin og setja upp net í
gluggana.“
En hvenær er kominn tími til þess
að kalla á meindýraeyði?
„Þegar vandamálið er orðið stærra
en þú sjálfur ræður við. Til þess að
ná bestu áhrifunum þá þarf að nota
réttu efnin á réttu staðina og gera
það skynsamlega til að lágmarka
skaðann sem eitrið hefur á náttúr-
una. Það er hægt að kaupa alls konar
fælur og eitur sem er ætlað fyrir
almenning, en stundum þarf bara
að nota önnur sterkari efni, tæki og
tól sem ætluð eru fagmönnum og
fleira. Þeir sem vilja bjarga sér sjálfir
geta líka alltaf hringt og fengið ráð-
leggingar.“
Ræktar býflugur en eyðir geitung-
um
Björn er ekki eingöngu í því að eyða
óværu heldur er hann alsæll bý-
flugnaræktandi, en það hlýtur að
teljast frekar fyndið að meindýraeyð-
ir rækti býflugur. „Ég hef fengið að
heyra frá mörgum að þeim þyki þetta
undarlegt uppátæki hjá mér. En ég
nýt þess mjög að umgangast þessar
harðduglegu flugur. Mér þykir þetta
líka fara ágætlega saman, enda hef
ég alltaf verið náttúrubarn og með-
vitaður um heilbrigði náttúrunnar,
sem hlýtur að teljast kostur fyrir
meindýraeyði.“ Eins og fleiri af hans
tegund er Björninn alsæll með upp-
skeruna. „Á haustin fæ ég svo allra
besta hunang í Kjósahreppi.“
EDA Meindýravarnir – Garðaúðun
Nánari upplýsingar á Facebook:
EDA Meindýravarnir
Sími: 896-9994
Netpóstur: bjorn@meindyr.is
Björn Ananíasson.
Er maðkur í trjánum?
Iðnar býflugur.
Geitungabú.