Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Síða 38
FÓKUS 26. júlí 201938
Leigir röppurum og leikurum lúxuskerrur í Beverly Hills
É
g sé ekki eftir neinu. Ég veit
ekki hvar ég væri í dag ef ég
hefði haldið áfram að búa á
Íslandi. Ég væri örugglega að
gera skemmtilega hluti, en ég væri
ekki manneskjan sem ég er í dag,“
segir hin 24 ára gamla Magnea
Björg Jónsdóttir. Magnea dýfði
sér svo sannarlega í djúpu laugina
fyrir fimm árum þegar hún flutti
nítján ára gömul til Los Angeles í
Bandaríkjunum. Það má segja að
Magnea hafi lifað draumalífinu
þessi fimm ár, rekið lúxusbílaleigu
fyrir fræga fólkið í Los Angeles og
kynnst því hvernig er að standa
á eigin fótum. Magnea er nýjasti
gestur hlaðvarpsþáttar dægur-
máladeildar DV, föstudagsþáttar-
ins Fókuss.
Týnd og leið ekki vel
Magnea sleit barnsskónum í
Breiðholti, gekk í Hólabrekku-
skóla og Fjölbraut í Breiðholti og
æfði knattspyrnu með Leikni í átta
ár. Hún á tvö yngri systkini og hef-
ur ávallt verið opin og átt auðvelt
með að tala við hvern sem er um
daginn og veginn. Á síðustu önn-
inni í FB var hún komin með nóg
af Íslandi og þráði breytingar. Þá
kallaði borg draumanna, Los Ang-
eles.
„Ég þurfti smá breytingu og
taldi að það að flytja í burtu og
skipta um umhverfi myndi kannski
breyta hvernig mér leið. Ég held að
við Íslendingar vitum allt um það
hvernig maður verður þunglyndur
á veturna á Íslandi, svo hamingj-
una sem fylgir sumrinu og síðan
detta allir aftur í dvala. Ég myndi
segja að ég hafi verið týnd og mér
leið ekki alltof vel andlega,“ seg-
ir Magnea um hvernig það kom
til að hún flutti svo ung vestur um
haf. Hún byrjaði á því að skrá sig í
skólann Santa Monica College og
útskrifaðist eftir þrjú ár með AA-
-gráðu í samskiptafræði. Hún segir
námið hafa þroskað hana mikið.
Það kostaði hins vegar sitt.
„Ég og LÍN [Lánasjóður ís-
lenskra námsmanna] erum ekki
bestu vinir,“ segir Magnea og hlær.
„Fyrstu viðbrögð þegar ég byrj-
aði að fá reikningana frá LÍN voru
bara: „Guð minn góður.“ En þetta
nám gaf mér ofboðslega mikið og
ég sé ekki eftir því.“
Dýrasti bíllinn á 62 milljónir
Eftir útskrift fékk Magnea ólaun-
að starfsnám hjá snyrtistofunni
Secret Beauty í þrjá mánuði. Strax
í framhaldinu fékk hún ólaunað
starfsnám hjá bílaleigunni sem
hún rekur í dag, Royal Exotic Car
Rental í Beverly Hills. Fyrst um
sinn átti Magnea aðeins að sjá um
sýningarsal bílaleigunnar en var
fljótt farin að ganga í öll verk.
„Ég gerði markaðsefni fyrir fyr-
irtækið, allar auglýsingar, vefsíð-
una og fleira. Svo endaði þetta
þannig að ég var farin að gera allt
í fyrirtækinu, allt frá því að borga
reikningana yfir í að læra á alla bíl-
ana,“ segir Magnea. Í dag eru átján
lúxusbílar í boði á leigunni, til
dæmis Rolls Royce, Lamborghini,
Ferrari, Benz og Maybach. Dýr-
asti bíllinn kostar um hálfa milljón
dollara, rúmar 62 milljónir króna.
Dagsleiga á ódýrasta bílnum er
um þrjátíu þúsund krónur en á
þeim dýrasta um þrjú hundruð
þúsund krónur. Eins og gefur að
skilja getur ýmislegt gerst í þess-
um bransa.
„Ég fór með einn Lamborghini
í tökur um daginn og þá var búið
að brjótast inn í sýningarrýmið og
ræna öllum bíllyklunum. Það kost-
aði sitt enda kostar hver lykill um
hundrað þúsund krónur. Bílunum
hefur einnig verið rænt. Það gerð-
ist síðast bara um daginn. Þá kom
eldri maður inn og leigði bíl. Ég
hélt að hann væri traustsins verð-
ur. Hann sagði mér að hann þyrfti
flottan bíl því hann væri að fara á
fund og þyrfti að líta vel út. Síðan
hafði hann bílinn aðeins lengur
en samið var um og hætti að svara
símanum. Loks tók hann staðsetn-
ingartækið úr bílnum. Ég er nátt-
úrlega algjör leynilögregla þannig
að ég athugaði hvert hann fór
áður en hann tók tækið úr bílnum,
keyrði þar um en fann hann ekki.
Síðan fann ég bílinn á páskadag.
Sem betur var ég með lykilinn á
mér þannig að ég tók einfaldlega
bílinn,“ segir Magnea og brosir.
Að hitta fræga er daglegt brauð
Fallegt útsýni Vinsælt er að fara
í gönguferðir upp hæðirnar í
Hollywood. Mynd: Úr einkasafni
Stærsti kúnnahópur Magneu
er rapparar, fólk í grasbransanum,
þar sem gras er löglegt í Kaliforníu,
frægt fólk, leikarar og Instagram-
-fyrirsætur. Aðspurð hvort það
sé ekki mikil pressa að hugsa um
svo dýra bíla fyrir fólk sem kallar
ekki allt ömmu sína segir hún það
vissulega vera svo.
„Þetta eru bara eins og litlu
börnin mín,“ segir hún og rifjar
upp eina skiptið sem hún hefur
klesst bíl. „Það var algjört óhapp.
Ég var ekki einu sinni úti í um-
ferðinni, ég bara bakkaði á kant.
Bíllinn þurfti að vera í viðgerð í
tvo mánuði. Að lokum seldi eig-
andinn bílinn, en það óheppi-
lega var að ég var ekki einu sinni í
vinnunni þegar þetta gerðist held-
ur var ég á leið í afmælispartí hjá
Chris Brown,“ segir hún og hlær.
Tónlistarmaðurinn Chris Brown
er ekki eini þekkti einstaklingur-
inn sem Magnea hefur hitt í Los
Angeles. Hún hefur einnig hitt
Justin Bieber, glaumgosann Dan
Bilzerian, rapparana Migos og far-
ið í teiti hjá Drake og Leonardo
DiCaprio svo fáir einir séu nefnd-
ir. En hefur hún einhvern tímann
orðið „star struck“?
„Já, þegar Kylie Jenner hélt upp
á afmæli sitt á litlum kokteilklúbbi
sem heitir Delilah. Ég elska hana,“
segir hún.
Varðandi framtíðina er Magnea
með stór plön.
„Mig langar að stofna mitt eig-
ið fyrirtæki, vegna vel og gera eitt-
hvað flott í lífinu. Mig langar líka
í fjölskyldu, en ég er ekki tilbúin í
það núna. Eitt af því, þegar mað-
ur býr svona langt í burtu og fylgist
með öllu á Íslandi, er að maður
hugsar: „Ég væri til í að eignast ís-
lenskan kærasta og stofna fyrir-
tæki og kaupa öll þessi Ittala-glös.
Þetta góða skandinavíska líf.“ Mér
finnst það rosalega spennandi.“
„Ég og LÍN erum ekki
bestu vinir“
n Klessti bíl á leið í afmæli Chris Brown n Magnea flutti 19 ára til Los Angeles n Rekur lúxusbílaleigu
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is