Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 18
18 FÓKUS 29. mars 2019
U
mskurður ungra drengja
hefur verið mikið í um
ræðunni hérlendis undan
farið með misjöfnum
skoðunum fólks til aðgerðarinnar.
Í mörgum löndum er umskurður
nýfæddra drengja mjög algengur
þrátt fyrir að fjöldi tilfella hafi farið
minnkandi undanfarin ár. Má þar
nefna að í Bandaríkjunum voru
um 83 prósent nýfæddra drengja
umskorin árið 1960 en 77 prósent
árið 2010. Sums staðar er aðgerðin
framkvæmd vegna trúarlegra
ástæðna en annars staðar vegna
hreinlætisástæðna.
Hér á Íslandi hefur það almennt
ekki tíðkast að láta umskera unga
drengi nema vegna læknisfræði
legra ástæðna. Til dæmis vegna of
þröngrar forhúðar eða ítrekaðrar
forhúðarsýkingar.
Þegar umskurður er fram
kvæmdur er forhúð limsins skorin
af en tilgangur hennar er að verja
reðurhúfuna eða kónginn, eins og
hann er oftast kallaður í daglegu
máli, fyrir þvagi, hægðum og nún
ingi. Samkvæmt Vísindavef Há
skóla Íslands er talið að forhúð
in skipi stórt hlutverk í kynsvörun
karlmanna bæði í samförum sem
og sjálfsfróun. Þar er einnig sagt
frá því að sögusagnir gangi þess
efnis að umskornir menn séu
betri elskhugar en aðrir þar sem
kóngurinn verður með tímanum
ónæmari fyrir snertingu og örvun
sem getur leitt til þess að karlmað
urinn sé lengur að fá fullnægingu.
Það telji einhverjir til bóta.
Umræðan um umskurð hér
lendis hefur í flestum tilfellum ver
ið á neikvæðum nótum sem getur
gert að verkum að karlmenn sem
eiga við einhvers konar vanda
mál að stríða sem snýr að getnað
arlim þeirra gætu óttast að ræða
um vandamálið og jafnvel talið sig
eina um það. Það gæti jafnframt
leitt til þess að í mörg ár beri þeir
vandamál sitt í hljóði og þori ekki
að leita sér ráða.
Blaðakona leitaði til tveggja
karlmanna sem eiga það sameigin
legt að hafa farið í umskurð á full
orðins aldri vegna læknisfræði
legra ástæðna og fékk að ræða
við þá um ástæðu aðgerðarinnar,
reynslu þeirra af umræðunni um
umskurð og ferlið sjálft. Voru þeir
báðir sammála um að opna þyrfti
á almenna umræðu um vandamál
drengja sem snýr að getnaðarlim
þeirra svo enginn þurfi að ganga
um og skammast sín.
Áhyggjurnar voru óþarfar
Halldór Ingólfsson er 23 ára gam
all. Hann stundar nám við marg
miðlunarhönnun í Danmörku þar
sem hann býr með kærustu sinni,
Jönu Maríu. Halldór fór í aðgerð í
maí árið 2017 eftir að hafa fundið
fyrir miklum þurrki á forhúðinni
sem gerði að verkum að hann átti
erfitt með að stunda samfarir.
„Til að byrja með fór ég til lækn
is til þess að láta laga þurrkinn.
Hann gaf mér sterakrem sem
ég átti að nota einu sinni á dag í
smá tíma. Eftir þann tíma þá var
vandamálið horfið en um tveim
ur vikum seinna kom það verra til
baka. Ég leitaði því aftur til lækn
is og skoðaði þá möguleika sem
voru í boði fyrir mig. Mér fannst
sniðugast að fara í fullan um
skurð og láta þannig fjarlægja allt
sem hrjáði mig,“ segir Halldór sem
segist hafa verið heppinn að hafa
þekkt nokkra karlmenn sem þegar
höfðu farið í aðgerðina og gátu
gefið honum góðar upplýsingar.
„Það hjálpaði mér að taka
þessa ákvörðun og var ég aðal
lega stressaður svona viku fyrir að
gerðina. Ég vann á veitingastað á
þessum tíma og það sem hræddi
mig mest var að ég hafði aðeins
þrjá daga til þess að jafna mig áður
en ég þurfti að fara að vinna aftur.
Að hlaupa upp og niður stiga með
beina snertingu við nærbuxurn
ar var ekki eitthvað sem ég hlakk
aði til.“
Halldór segir aðgerðina hafa
verið mjög einfalda og að áhyggjur
hans hafi verið óþarfar.
„Þú sofnar með kragann og
vaknar svo án hans. Ég man eftir
því að hafa verið mjög lyfjaður
fyrsta klukkutímann eftir aðgerð,
en kærasta mín keyrði mig í apó
tekið og svo heim. Alla ferðina
svitnaði ég lítrum og ég varð að
vera sitjandi því ef ég hefði stað
ið hefði ég kastað upp. Þegar
heim var komið þurfti ég að sofa
með handklæði undir mér vegna
svita. Fyrstu dagana þurfti ég að
vera með umbúðir sem voru að
eins fjarlægðar þegar ég þurfti
að kasta af mér vatni. Þær voru á
þar til saumarnir hurfu og ég fékk
verkjatöflur sem ég átti að taka
ef ég varð virkilega verkjaður en
það kom aldrei til þess. Þetta var
miklu minna mál en ég bjóst við
og áhyggjur mínar yfir því að fá
standpínu voru óþarfar, það var
ekki svo slæmt. Í dag er allt eins
og það á að vera, hann er notaður
meira en nokkru sinni fyrr og engir
örðugleikar. Hann bara lítur betur
út og það sem er best af öllu er að
engin tilfinning hvarf. Ef eitthvað
er þá er hún meiri og betri.“
Mikilvægt að karlmenn
skammist sín ekki
Halldór telur umræðuna um um
skurð ekki vera tabú og segir hann
mjög mikilvægt að karlmenn
skammist sín ekki þegar talið berst
að kynfærum. Þau séu hinn eðli
legasti hlutur og að það skipti máli
ef drengir upplifi einhvers konar
vandræði með getnaðarlim sinn
að hræðast ekki að leita ráða.
„Þetta er hluti af eðlilegu lífi.
Sumir þurfa að gera þetta, sumir
vilja gera þetta. Sumir gera þetta
vegna trúarbragða og það er hið
eðlilegasta mál. Forhúð er ekkert
nema auka tilgangslaust skinn.
SKÖMMIN FÆR
KARLMENN
TIL ÞESS AÐ
BERA HARM
SINN Í HLJÓÐI
Umskurður má ekki vera tabú umræða
„Ég stundaði
kynlíf án örv-
unar í raun og veru
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is
„Þetta var miklu minna
mál en ég bjóst við
Halldór og Jana
María Aðgerðin var
lítið mál.
Umskurður Forhúð
limsins er skorin af.