Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Page 22
22 UMRÆÐA
Sandkorn
29. mars 2019
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
H
eimurinn fórst ekki í gær.
Sólin mun rísa á morgun.
Lífið heldur áfram,
krakkarnir fara í skólann,
bátum verður siglt á miðin,
strætisvagnarnir liðast um götur
borgarinnar og Landinn verður
á sínum stað á sunnudagskvöld.
Brátt kemur heiðlóan til að syngja
inn vorið.
Auðvitað eru endalok WOW air
áfall og margir sitja eftir í sárum.
Allir Íslendingar geta sammælst
um að hafa samúð með starfsfólki
WOW, fjölskyldufólki sem stendur
uppi atvinnulaust eftir tíðindi
vikunnar. Sjálfsagt mun þetta hafa
slæm áhrif á þjóðarbúskapinn,
til lengri eða skemmri tíma.
Það verður dýrara að ferðast og
mjólkurpotturinn mun hækka um
nokkrar krónur. Krónan okkar litla
velkist um í öldurótinu og nánast
öruggt er að það verður aðeins
dýrara að panta á Aliexpress á
næstu dögum en verið hefur.
Því er heldur ekki að neita að
fall WOW kemur á slæmum tíma.
Hér eru kjaraviðræður á viðkvæmu
stigi. Ofan á það bætist undarlega
lítt um talaður loðnubrestur sem,
eins og góður maður sagði, sýn-
ir hversu illa við erum tengd við
frumatvinnugreinarnar í landinu.
Fátt er þó svo með öllu illt
að ekki boði nokkuð gott. Á
spítölum og í skólum landsins
hefur verið mikil mannekla
undanfarin ár og starfsfólk
flúið þaðan inn í flugfélögin.
Ef starfsfólk snýr þangað aftur gæti
bæði heilsa og menntun landans
batnað. Þá verðum við líka að
muna eftir að gera vel við fólkið
svo það flýi ekki aftur í næsta
flugævintýri.
Hér á Íslandi er gott að búa
og þjóðin hefur gengið í gegnum
margfalt meiri áföll en þetta. Á
síðustu öld skriðum við út úr
moldarkofunum og inn í velsæld
nútímasamfélagsins. Engu að
síður gengum við í gegnum stráfelli
spænsku veikinnar, ótal sjóskaða
og eldsumbrot sem eyddu nærri
heilu byggðarlagi. Ef rennt er yfir
fréttir úr hagsögunni mætti halda
að hér ætti að vera örbirgð vegna
atvinnuleysis, óðaverðbólgu,
gengisfellinga, gjaldþrota og átaka
á vinnumarkaði. En hér hefur
byggst upp sæmilega burðugt
velferðar þjóðfélag. Ekki gallalaust
frekar en önnur. En nógu gott til að
snúa glataðri stöðu bankahruns-
ins á undraskömmum tíma.
Hversu stórt högg fall WOW er
mun tíminn vitaskuld leiða í ljós.
Það er samt erfitt að sjá fyrir sér
að höggið verði eitthvað í líkingu
við þau áföll sem hér eru áður
upp talin. Sennilega aðeins léttur
löðrungur í stóra samhenginu.
Áminning um að við höfum verið
fordekruð og kannski helst til
hrokafull.
Ég vil ekki gera lítið úr stóru
tíðindum vikunnar. Værukærð
er sjaldnast af hinu góða.
Hins vegar skiptir máli hvernig
við, almenningur, bregðumst við.
Það er engin ástæða til þess að
hætta að ferðast. Við getum notað
tækifærið og ferðast meira um
landið okkar fagra og stórbrotna.
Þar með glæðum við innlenda
verslun og höldum gjaldeyrinum
í landinu. Tenerife er hvort eð er
fyrir löngu orðið þreytt pleis. n
Seðlabankastjórn ekki
kvennastarf
Umsóknir um stöðu seðla-
bankastjóra vöktu talsverða
undrun í vikunni. Af sextán
umsækjendum voru aðeins
tvær konur, þar af einn nemi
sem litla sem enga möguleika
á að hreppa stöðuna. Katrín
Ólafsdóttir, lektor við Háskól-
ann í Reykjavík, er eina konan
sem á raunhæfa möguleika á
að taka við í haust.Brast þá sú
von margra að karlaveldið yrði
rofið, en hingað til hafa allir
tuttugu bankastjórar Seðla-
bankans verið karlar og oft
fyrrverandi stjórnmálamenn.
Vonir höfðu verið bundnar við
að sjá Liljurnar tvær, Alfreðsdóttur
og Mósesdóttur, á lista umsækj-
enda.
Rótlaus Vilhjálmur
Vilhjálmur
Bjarnason,
fyrrverandi
þingmaður
Sjálfstæðis-
flokksins, er
meðal umsækj-
enda um stöðu
bankastjóra Seðlabankans.
Vilhjálmur var einnig á með-
al umsækjenda um stöðu að-
stoðarseðlabankastjóra á síð-
asta ári en fékk ekki.
Vilhjálmur virðist því nokkuð
rótlaus innan bankans en Eyj-
an greindi frá því síðasta sum-
ar að hann hefði fengið vinnu
hjá bankanum, en samkvæmt
heimildum hafi það starf ekki
verið skilgreint við ráðninguna.
Að lokum fengust þau svör að
Vilhjálmur væri tímabund-
ið ráðinn í sérstök verkefni,
sem meðal annars tengdust
fullveldisafmælinu og bæklingi
um sparnað. Vilhjálmur er við-
skiptafræðingur.
Spurning vikunnar Gætir þú hugsað þér að flytja út á land?
„Nei, ég bý erlendis og langar ekki að búa á
Íslandi.“
Hjörtur Jónsson
„Nei.“
Stefán Óskarsson
„Já, á Siglufjörð.“
Sigríður Dröfn Tómasdóttir
„Já, ef ég fengi góða vinnu.
Mér finnst Eyjafjörðurinn og Skaga-
fjörðurinn spennandi.“
Ásta Lára Sigurðardóttir
„Ef rennt er yfir fréttir úr
hagsögunni mætti halda
að hér ætti að vera örbirgð vegna
atvinnuleysis, óðaverðbólgu,
gengisfellinga, gjaldþrota og
átaka á vinnumarkaði.
Heimurinn fórst ekki í gær
Leiðari
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is