Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Síða 28
Stóra ferðablaðið 29. mars 2019KYNNINGARBLAÐ Hótel Laki, eitt glæsilegasta og notalegasta sveita- hótel landsins, kúrir í Land- brotshólunum rétt hjá Kirkju- bæjarklaustri og bíður eftir gestum og gangandi. Hótelið er í miðri hring- iðu alls kyns afþreyinga og er tilvalið að fara þaðan í fjöruferðir eða dagsferðir að skoða þjóðgarðinn Skaftafell og hið ætíð tilkomumikla Jökulsárlón. Hér eru einnig dásamlegar gönguleiðir þar sem hægt er að skella sér í fjölbreyttar gönguferðir í fallegu umhverfi. „Það er alltaf nóg að gera og þegar komið er aftur á hótelið þá er hér frábær veitingastaður þar sem úrvals matreiðslumenn töfra fram dýrindis krásir með hráefnum af bæjunum hér í kring,“ segir Lilja Hrund Harðardóttir, hótelstýra á Hótel Laka. Vortilboð „Vorið er handan við hornið og því fögnum við á Hót- el Laka með því að bjóða gesti velkomna, um leið og farfuglana sem brátt syngja í móanum, með frábæru til- boði í gistingu, mat og drykk,“ segir Lilja. Nú er tækifærið til að njóta kyrrðar áður en sumarævintýrið brestur á! Tvær nætur á verði einn- ar og morgunmatur inni- falinn ásamt fríum fordrykk. Tilboðið gildir aðeins í apríl og maí á meðan laust er í dekur hjá okkur, samtals 29.000 krónur. Frítt fyrir börn undir 6 ára. Verið hjartanlega velkomin til okkar. Fjölskyldan, Hótel Laka. Hótel Laki er staðsett að Efri-Vík, 880 Kirkjubæjar- klaustri. Hafa má samband í síma 412-4600 eða með netpósti hotellaki@hotellaki.is Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu hótelsins hotellaki.is en þar er einnig hægt að bóka herbergi. HÓTEL LAKI: Glæsilegt sveitahótel í faðmi náttúrunnar Upplifðu norðurljósin í allri sinni dýrð, fjarri ljósmengun borgarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.