Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Qupperneq 28
Stóra ferðablaðið 29. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Hótel Laki, eitt glæsilegasta og notalegasta sveita-
hótel landsins, kúrir í Land-
brotshólunum rétt hjá Kirkju-
bæjarklaustri og bíður eftir
gestum og gangandi.
Hótelið er í miðri hring-
iðu alls kyns afþreyinga og
er tilvalið að fara þaðan í
fjöruferðir eða dagsferðir að
skoða þjóðgarðinn Skaftafell
og hið ætíð tilkomumikla
Jökulsárlón. Hér eru einnig
dásamlegar gönguleiðir þar
sem hægt er að skella sér
í fjölbreyttar gönguferðir í
fallegu umhverfi.
„Það er alltaf nóg að
gera og þegar komið er
aftur á hótelið þá er hér
frábær veitingastaður þar
sem úrvals matreiðslumenn
töfra fram dýrindis krásir
með hráefnum af bæjunum
hér í kring,“ segir Lilja Hrund
Harðardóttir, hótelstýra á
Hótel Laka.
Vortilboð
„Vorið er handan við hornið
og því fögnum við á Hót-
el Laka með því að bjóða
gesti velkomna, um leið og
farfuglana sem brátt syngja
í móanum, með frábæru til-
boði í gistingu, mat og drykk,“
segir Lilja. Nú er tækifærið
til að njóta kyrrðar áður en
sumarævintýrið brestur á!
Tvær nætur á verði einn-
ar og morgunmatur inni-
falinn ásamt fríum fordrykk.
Tilboðið gildir aðeins í apríl
og maí á meðan laust er
í dekur hjá okkur, samtals
29.000 krónur. Frítt fyrir
börn undir 6 ára.
Verið hjartanlega velkomin
til okkar.
Fjölskyldan, Hótel Laka.
Hótel Laki er staðsett að
Efri-Vík, 880 Kirkjubæjar-
klaustri.
Hafa má samband í síma
412-4600 eða með netpósti
hotellaki@hotellaki.is
Nánari upplýsingar má
finna á vefsíðu hótelsins
hotellaki.is en þar er einnig
hægt að bóka herbergi.
HÓTEL LAKI:
Glæsilegt sveitahótel
í faðmi náttúrunnar
Upplifðu norðurljósin í allri sinni dýrð,
fjarri ljósmengun borgarinnar.