Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Blaðsíða 48
48 FÓKUS 29. mars 2019
FEGURÐ
ENDING
MÝKT
Kostirnir eru ótvíræðir:
• Fallegra hús
• Ekkert viðhald
Ál er okkar mál • Fossaleyni 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 4100 • altak.is
VEGGKLÆÐNINGAR
Fyrir allar gerðir húsa, ný
jafnt sem gömul, fjöldi lita og gerða
Frægir Íslendingar á fermingardaginn
Fermingar eru
framundan, en þær
fyrstu verða 24. mars.
Samkvæmt tölum
Hagstofunnar eru
einstaklingar sem verða
14 ára í ár um 4.300 talsins
og því ljóst að mikill fjöldi
mun fermast, þó að alltaf
séu einhverjir sem kjósi að
sleppa því.
Þau okkar sem hafa fermst
eiga minningar um ferm-
ingardaginn; góðar, slæm-
ar, vandræðalegar, fyndnar
og allt þar á milli.
DV fékk nokkra þekkta
einstaklinga til að rifja upp
fermingardaginn og deila
með lesendum mynd
og minningu frá þessum
merkisdegi.
Margrét Erla Maack danskennari og veislu-
stjóri, 26. apríl 1998, Dómkirkjan
„Ég var mikill lúði í kringum ferminguna mína og vildi ekki
fylgja tískustraumum og er gríðarlega þakklát fyrir það í dag.
Ég fermdist í klassískum brúðarkjól móður minnar og hann-
aði fermingargreiðsluna með hárgreiðslu-
konunni upp úr nokkrum myndum úr
tískublöðum, en ekki í kínakjól og
kuldaskóm eins og margar vin-
konur og mamma setti á mig
eyeliner í fyrsta sinn. Veislan
var geggjuð og stóð yfir
næstum að miðnætti, stútfull
af skemmtiatriðum og ræð-
um, dansatriði og frábær-
um heimatilbúnum mat úr
ástareldhúsi
foreldra
minna.“
Birgir Örn Guðjónsson, lögreglumaður, 12. apríl 1990
„Af einhverjum ástæðum man ég nánast ekkert eftir þessum degi.
Ég held samt að þetta sé rétt fermingardagsetning. Ég veit ekki
hvort þetta minnisleysi sé vegna þess
að dagurinn var svona nauðaó-
merkilegur eða að hann hafi
verið svo hræðilegur að þetta
séu náttúruleg verndarvið-
brögð sálarinnar. Kannski tók
svona á að segja „hénna, takk
fyrir komuna og gjörið þið svo
vel“ við gestina. Ég man samt
að veislan var heima og að ég
fékk meðal annars for-
láta fyrstu kynslóð af
Hyundai PC tölvu
með grænum
skjá c:\gelgju-
skeið>dir.“
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Listamaðurinn Odee, Oddur Ey-
steinn Friðriksson, 6. apríl 1997
„Það var eftirminnilegur dagur
því amma mín fótbrotnaði í kirkj-
unni og sjúkrabíll þurfti að sækja
hana í miðri athöfn. Hún sagði að
það hefðu verið djöflar í kirkjunni.
Í veislunni heima var ég í dökk-
blárri skyrtu og með fyrsta
bindið mitt. Bindið hafði ég
valið sjálfur en það var
rautt með teikningum
af sólum með sólgler-
augum.“
Þráinn Freyr Vigfús-
son kokkur og eig-
andi ÓX og Sumac
Grill + Drinks,
9. mars 1995
„Man bara eftir glæsi-
legu hlaðborði í veisl-
unni. Já og ég spurði séra
Hjálmar Jóns hvaða viku-
dag pálmasunnudagur væri
eiginlega.“