Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Qupperneq 56
56 29. mars 2019
10 manneskjur voru sendar yfir móðuna miklu af Banda-ríkjamanninum Dennis Lynn Rader. einnig þekktum sem BTK-morðingjannum. Rader, sem lýst var sem sadista
og var einnig haldinn blæti af mishugnanlegum toga, stundaði
sína miður geðslegu iðju á árunum 1974–1991 og hvort tveggja
kyrkti fórnarlömb sín og stakk til bana.
Yngsta fórnarlamb Rader var 9 ára drengur, Joseph Otero, og það
elsta var Dolores E Davis, 62 ára. Árið 2004 var rannsókn lög-
reglunnar komin í öngstræti, en þá tók Rader upp á því að senda
henni bréf. Hófst þá bréfasamband milli Rader og lögreglunnar og
að lokum sendi Rader diskling í þeirri fullvissu að ekki væri hægt
SAKAMÁL
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
MÆÐUR SEM MYRTU BÖRN SÍN
„Skömmu
síðar myrti
hún börn sín því
þau „þroskuðust
ekki rétt“ og af
því að Guð sagði
henni að gera það.
Þær mæður eru til sem hafa
fyrirkomið eigin börnum og þykja
slík mál, af mörgum ástæðum,
með þeim óhugnanlegri. En slíkt
gerist, og mæður myrða syni sína
og dætur og beita til þess hinum
ýmsu aðferðum. Ástæðurnar
geta verið mismunandi, andlegt
niðurbrot, fjárhagslegir örðugleik-
ar, flókin ástamál og ótal margt
fleira. Einnig kann að vera um
hreina og klára sjálfselsku að
ræða.
Því skal þó haldið til haga að
þessi morð, sem að margra mati
ganga þvert gegn náttúrulögmál-
inu, má einnig rekja til geðrænna
sjúkdóma af ýmsum toga. Enda
er oft spurt hvaða lausn, og á
hvaða vandamáli, felst í því að
verða barni sínu að bana – við-
komandi móðir hljóti að hafa
verið veik á geði. A
nnað var uppi á ten-
ingnum hjá Andreu
Yates, einnig frá Texas.
Þann 20. júní, 2001,
fyllti hún baðkarið og drekkti
síðan fimm börnum sínum, á
aldrinum sex mánaða til sjö
ára, einu á fætur öðru.
Andrea var vel menntuð,
kom frá fyrirmyndarfjöl-
skyldu og hafði unnið sem
hjúkrunarfræðingur áður en
hún giftist eiginmanni sínum.
Þegar leið á hjónabandið
dró hún sig inn í skel sína,
fylltist af hugarórum, varð
þunglynd og gældi við sjálfs-
vígshugsanir.
Inn og út af geðdeild
Þrátt fyrir að hún dveldi
ítrekað innan veggja geð-
deilda virtist enga lækningu
að finna fyrir Andreu. Hún
veitti sér sjálfsáverka og átti
einnig til að neita að gefa sex
mánaða dóttur sinn brjóst.
Í síðasta sinn sem hún
var útskrifuð af geðdeild var
henni ráðlagt að „hugsa á já-
kvæðum nótum og hitta sál-
fræðing.“ Skömmu síðar myrti
hún börn sín því þau „þrosk-
uðust ekki rétt“ og af því að
Guð sagði henni að gera það.
Að loknum þriggja vikna
réttarhöldum, í mars 2002,
var Andrea sakfelld fyrir morð
og fékk hún lífstíðardóm,
þrátt fyrir staðfest geðræn
veikindi hennar. Árið 2006 var
dómurinn ógiltur og úrskurð-
að að Andrea væri ekki sak-
hæf sökum geðveiki.
E
in slíkra mæðra er Banda-
ríkjakonan Susan Smith.
Árið 1994 ók hún bifreið
sinni út í stöðuvatn í Suður-
Karólínu. Hún bjargaði sjálfri sér
en skildi barnunga syni sína eft-
ir í bílnum og lét þá mæta örlög-
um sínum á meðan bílinn fylltist
af vatni. Almenningur stimplaði
Susan sem skrímsli án þess að
hugsa sig tvisvar um.
Við réttarhöldin kom hinn sári
sannleikur í ljós. Susan var einkar
viðkvæm og óstöðug ung kona og
hafði verið útskúfað af sinni eig-
in fjölskyldu. Ástæðan var sú að
Susan hafði gert opinbera þá mis-
notkun sem hún hafði sætt af hálfu
stjúpföður síns til fjölda ára.
Tvær sjálfsvígstilraunir
Kornið sem fyllti síðar mælinn
hjá Susan og varð kveikjan að
fyrrnefndu voðaverki, var bréf sem
hún fékk sent frá elskhuga sín-
um. Sá ku hafa sagt berum orðum
að hann kærði sig ekki um börn
hennar, eða börn yfirhöfuð.
Susan, sem hafði gert tilraun til
sjálfsvígs tvisvar, fyrst þegar hún
var þrettán ára, sá fram á að verða
hafnað, eina ferðina enn og greip
til þess örþrifaráðs að fórna son-
um sínum til að koma í veg fyrir
það.
Susan fékk lífstíðardóm og
meðan á afplánun hennar stóð var
tveimur fangavörðum refsað fyrir
að hafa við hana samræði. Hver
veit nema Susan hafi í þeim tilfell-
um farið örvæntingarfulla leið til
að afla sér aukins sjálfsmats.
SJÁLF FÓRNARLAMB
AÐ BOÐI GUÐS„Kornið sem fyllti síðar
mælinn hjá Susan og varð
kveikjan að fyrrnefndu voða-
verki, var bréf sem hún fékk
sent frá elskhuga sínum.
Susan
Smith
Glímdi við
afleiðingar
misnotk-
unar.
Andrea Yates
Missti tengingu við
raunveruleikann.