Skessuhorn - 23.11.2005, Blaðsíða 7
r
Vegna stækkunar álvers Norðuráls viljum við
ráða fólk til almennra starfa við álframleiðsluna.
í boði eru tímabundin störf og framtíðarstörf.
Einnig óskum við eftir rafvirkjum, vélvirkjum
og aðstoðarfólki á rannsóknarstofu.
Til hvers ætlumst við af þér?
Við leitum að áhugasömu fólki sem vill vinna
að krefjandi verkefnum og vaxa í starfi. Lipurð
í samskiptum, metnaður til að ná árangri og
vilji til að axla nýja ábyrgð eru skilyrði.
Hvað veitum við þér?
Við bjóðum þér gott og gefandi starf hjá
nútímalegu fyrirtæki (miklum vexti. Þú vinnur
mikilvæg verk með góðu samstarfsfólki og við
tökum vel á móti þér. Sérstök áhersla er lögð
á starfsþjálfun. Atvinnuöryggi er mikið, tekjur
traustar og laun þín eru að hluta árangurs-
tengd. Ennfremur greiðir fyrirtækið þér aukið
framlag í séreignasjóð.
Jafnrétti
Áhersla er lögð á jafna möguleika karla og
kvenna til starfa hjá Norðuráli.
Norðurál á Grundartanga er einn af stærstu vinnustöðum á Vesturlandi og fyrirtækið skipar öfiugan sess f samfélaginu.
Norðurál leggur ríka áherslu á öryggismál og er ströngum öryggisreglum fylgt á öllum sviðum starfseminnar. Um þessar
mundir er unnið að stækkun Norðuráls sem felur í sér meira en tvöföldun á framleiðslugetu álversins. Áætlað er að gangsetning
hins nýja hluta álversins hefjist um miðjan febrúar 2006.
Hvenær þurfum við að fá umsókn þína?
Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir
30. nóvember n.k. Þú getur sótt um á vef
fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn
þína á netfangið umsokn@nordural.is. eða
póstlagt umsóknina, merkta: Atvinna.
Trúnaður
Við förum með umsókn þína og allar persónu-
legar upplýsingar sem trúnaðarmál.
NORÐURÁL
CenturyALUMiNUM
Grundartanga 301 Akranesi - Sími 430 1000 ■ Fax 430 1001 * nordural@nordural.is - www.nordural.is