Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2005, Blaðsíða 46

Skessuhorn - 23.11.2005, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 §£lé£sijlÍ1i@!£KI Hvaðan koma aðventuljósin? Fyrsta sunnudag í aðventu seil- ast landsmenn niður í geymslur og draga fram aðventuljósin sín til að setja út í glugga. Þegar þessi sérkennilegu ljósaskreyt- ingar eru komnar á sinn stað finnst okkur mörgum jólin vera að sönnu á næsta leyti. En hvað- an koma aðventuljósin? Hér á eftir verður gerð frekari grein fyrir uppruna aðventuljósanna og sögu þeirra hér á landi. Hugmyndin um ljósin sjö er komin úr Gamla testamentinu þar sem sjö arma ljósastikan var mikill helgidómur í musterinu. Þar virðist ljósastikan þó hafa verið lárétt og var ekki á al- mannafæri. Kaupsýslumaður einn í Reykjavík hét Gunnar Asgeirs- son, ættaður úr Önundarfirði. Hann átti mikil skipti við sænsk fyrirtæki og flutti til að mynda bæði inn Volvo og Husquarna. I einni verslunarferð sinni í Stokk- hólmi fyrir jól kringum 1964 rakst hann á einfalda trépýramída með sjö ljósum og allavegana í laginu. Hér var um að ræða nýj- ung í Svíþjóð; lítt þekktir smá- framleiðendur voru að reyna að koma föndri sínu á framfæri í jólavertíðinni. Þessi framleiðsla hafði þá ekki slegið í gegn í Sví- þjóð og mun ekki hafa gert fyrr en um 1980. Jólastjörnur og litlir stjakar voru þar hin hefðbundna gluggaskreyting á aðventu. Gunnari datt hinsvegar í hug að þetta gæti verið sniðugt að gefa gömlum frænkum sínum slík ljós. Hann keypti þrjú lítil ljós og þau gerðu mikla lukku hjá frænkun- um og vinkonum þeirra. Gunnar keypti því fleiri ljós næsta ár til gjafa sem hlutu sömu viðtökur. Þá fyrst fór hann að flytja þetta inn sem verslunarvöru og smám saman þótti það naumast hús með húsi ef ekki er slíkt glingur í gluggum. Þetta fyrirbæri hefur vakið mikla athygli útlendinga sem hingað koma um jólaleytið. Þjóð- minjasafnið fær oft upphringing- ar utan úr heimi vegna þessa og margir Biblíufróðir spyrja hvort gyðingdómur sé mjög rótgróinn á Islandi. Það þykir sannast sagna heldur snautlegt þegar upplýst er hversu ofur ung og veraldleg þessi skreyting í rauninni er. (af Vísindavefnum) Blak krakkar í Grundarfirði Krakkablak hefur verið stundað í Grundarfirði í tvo vetur og eru 45 -50 börn og unglingar að æfa í hverri viku en þau eru á aldrinum 6 til 16 ára. Strax frá fyrsta degi hef- ur verið mikill áhugi hjá krökkun- um að æfa blak. Nýverið fengu síð- an unglingarnir að spreyta sig á sínu fyrsta fullorðins blakmóti, sem haldið var í Stykkishólmi. Þau stóðu sig vonum ffamar og var gaman að sjá hvað þau lögðu sig fram á mótinu. Öll höfðu þau bæði mikið gagn og gaman af þessu og voru harðákveðin í að gera betur á næsta móti. KH _ A Frábœrtframtak Lionsklúbburinn Eðna á Akra- nesi á þakkir skildar fyrir að hafa staðið fyrir minningartónleikum um Karl J. Sighvatsson. Það var löngu tímabært að hans minning yrði heiðruð hér á Akranesi og í Bíóhöllinni á Akranesi, þeim stað þar sem hann kom fyrst ffam opi- berlega eftir því sem ég veit best áriðl958. Tónleikar þessir voru magnaðir og öllum til sóma, ekki bara Lionskonunum heldur líka tónlistarfólkinu sem þar kom ffam. Það fór líka vel á því að hagnaður af tónleikunum rann til Tónlistarkól- ans á Akranesi. I Bíóhöllinni árið 1958 söng Kalli á árshátíð Barna- skóla Akraness með hljómsveit skólans og lék á bassatromu með Lúðrasveitinni. Hann söng upp- hafslag kvikmyndarinnar „79 af stöðinni" við texta eftir sjálfan sig sem ég veit ekki hvort er til á blaði en rifjaðist upp fyrir mér eftir minningartónleikana. Textinn lýsir Kalla vel á þessum tíma. Nú er þessu öllu lokið við þökkum ykkur komuna við vonum að þetta hafi verið við hæfi bamanna. Og héðan öll við höldum heim heim til pahba og mömmu og síðan alla söguna við segjum afa og 'ómmu. Það voru ekki bara þessir tónleik- ar sem hafa gert þessar vikur skemmtilegar á Akranesi. Haldnir voru svokallaðir Vökudagar með margvíslegum uppákomum sem er frábært framtak, leiksýning hjá Grundaskóla á söngleiknum Hun- angsflugum og villiköttum sem er mjög gott verk og vel gert. Við Skagamenn megum vera stolt af öllum þessum listviðburðum. Gunnar Sigurðsson. Bæjarfidtrúi Sjálfstæðisflokksins. Skólahljómsveitin sem um rœðir. Hér er Kalli lengst til hægri. Hér er meistarinn sitjandi við trommuna jyrir miðju. Hvað er raunveruleiki? Um þessar mundir hellast yfir okkur íslenskir og erlendir „raun- veruleika"- þættir sem flestir eiga það sammerkt að höfða til ungs fólks. Skilaboðin í þessum þáttum eru mörg hver á þann veg að laus- læti og skemmtanir séu það sem gefur lífinu gildi. Til viðbótar við þessa þætti eru sýndir snemma á kvöldin íslenskir grínþætti r sem einnig ganga að miklu leyti út á að höfða til lægstu hvata auk þess sem reynt er á margvíslegan hátt að ganga ffam af fólki með heimsku- legri og jafnvel hættulegri hegðun. Síðastliðið vor vöktu Heimili og skóli ásamt Umboðsmanni barna athygli á því að sjónvarpsstöðvar væru í auknum mæli farnar að bjóða upp á efni á kjörtíma á kvöldin sem ekki gæti talist við hæfi barna. Bent var á að tími væri kominn til að staldra við og skoða þessa þróun. Heyrist í foreldrum í gegnum „hávaðann“? Óumdeilt er að foreldrar bera á- byrgð á uppeldi barna sinna og hver og einn getur slökkt á sínu tæki eða sagt upp þeim stöðvum sem bjóða upp á dagskrá af þessu tagi. Ljóst er að sjónvarp er sterkur miðill og reynslan sýnir að það sem börnin horfa á hefur mikil áhrif á þau. Því er mikilvægt að foreldrar séu með- vitaðir um það hvað börnin horfa á en hvert og eitt foreldri getur að- eins tekið ábyrgð á sínu bami en ekki annarra manna börnum. Margir foreldrar spyrja sig þessa dagana hvaða tilgangi það þjónar að vera að sýna svona þætti á þeim tíma sem íjölskyldan vill gjarnan eiga notalega stuiutTyrir framan sjónvarpið? Hvaða siðferðislegu skilaboð viljum við að börnin og unglingarnir fái í gegnum sjónvarp? Hvaða hugmyndir um t.d. hlutverk kynjanna era þau að fá? Foreldrar sem uppalendur miðla til barnanna þeim siðferðislegu gildum sem samfélagið er samstíga um að gildi í okkar þjóðfélagi. Rödd foreldra getur aftur á móti orðið ansi hjáróma þegar önnur skilaboð dynja sífellt á börnunum annars staðar ffá. Stöldrum við! Foreldrar þurfa að vera vakandi yfir því sem börnin og unglingarnir þeirra era að horfa á. Upplagt er að slökkva á sjónvarpinu og nýta þess- ar fáu mínútur sem fjölskyldan hef- ur til umráða eftir langan vinnudag til að gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggilegt saman. Foreldrar vilja samt ekki þurfa að loka sig ffá um- heiminum til þess að vernda börnin gegn þeim óæskilegu skilaboðum sem tröllríða nú öldum ljósvaka- miðlanna. Því er tími til kominn að staldra við og skoða af alvöru hvernig fjölmiðla við viljum hafa og hvort setja þurfi reglur til þess að stoppa þessa þróun af, en þá leið hafa sum nágrannalönd okkar farið. Sagt hefur verið að það þurfi heilt þorp til þess að ala upp barn og ljóst er að allir í samfélaginu bera ábyrgð sem þeir þurfa að axla - líka fjöl- miðlarnir. Elín Thorarensen, framkvæmda- stjóri Heimilis og skóla Hjörtur áfram Hjörtur Hjartarson, framherji ÍA og Knattspymuféiag ÍA hafa komist að samkomulagi um að ieikmað- urinn verði hjá félaginu næsta sumar en samningur hans rann út núna í haust. Hjörtur, sem varð markakóngur úrvalsdeildarinnar 2001 lék vel fyrir-ÍA f sumar og skoraði meðal annars sex mörk. Það er því Ijóst að það er fengur fyrir ÍA að hafa tryggt sér krafta hans áfram og fyrir hann sjáifan því hann hefur lýst því yfir að hann vilji helst hvergi annarsstað- ar spila. Á hinn bóginn liggur fyrir að ÍA vantar framherja fyrir næsta sumar þar sem Sigurður Ragnar Eyjólfsson leikur ekki með næsta ár. GE Víða rólegt hjá brids- félögunum Félagsstarf flestra bridsfélaganna á Vesturlandi er með rólegra móti í haust og svo virðist sem þátt- taka í íþróttinni sé á undanhaldi. Undantekning er þó líflegt starf hjá Bridsfélagi Borgarfjarðar, en þar hófst fyrir tveimur vikum aðal- tvímenningur vetrarins með þátt- töku 40 spilara. Hjá Bridsfélaginu á Akranesi fengust þær upplýs- ingar að undanfarið hefur verið spilað á 4-6 borðum og er það svipuð eða heldur minni þátttaka en undanfarin ár. Þó gerir Einar Guðmuhdsson, formaður félags- ins ráð fyrir því að fleiri muni taka þátt í Akranesmeistaramótunum í sveitakeppni og tvímenningi sem hefjast eftir áramót. Bridsfélagið í Borgarnesi hefur verið líflftið að undanförnu, en nokkrir félagar þaðan sækja Borgfirðinga heim í Logaland. Svipaða sögu er að segja úr Grundarfirði en þar er brids spilað á tveimur borðum í heimahúsi um þessar mundir. Það er því Ijóst að víða þarf að hlúa vel að nýliðun í þessum fé- lögum til að starfsemi þeirra eigi ekki að leggjast endanlega af. MM Gera það gott með Heerenveen Það er óhætt að segja að Skaga- mennirnir tveir hjá hollenska fé- laginu Heerenveen séu að gera það gott þessa dagana. Arnór Smárason lék um helgina með 19 ára liði félagsins sem sigraði ná- granna sína í Groningen 3-2 á úti- velli. Á sama tíma töpuðu keppi- nautarnir hjá Ajax og Feyenoord gerði jafntefli þannig að lið Heer- enveen er nú f 2. sæti deildarinn- ar, tveimur stigum á eftir liði Feyenoord. Arnór lék sem fram- herji í leiknum og stóð sig mjög vel. Björn Jónsson lék á sama tíma með 17 ára liðinu og átti einnig frábæran leik. Þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu lið Ajax 2-1 á heima- velli og skoraði Björn sigurmarkið í leiknum. Með sigrinum skaust liðið upp að hlið Ajax í annað sæti deildarinnar. Það er því Ijóst að þessir ungu Skagamenn eru að gera það gott í Hollandi í firna- sterkum unglingaliðum Heeren- veen sem er að skáka stóru liðun- um í unglingastarfi sem Hollend- ingar eru þekktir fyrir um heim all- an. MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.