Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2005, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 23.11.2005, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 23. NOVEMBER 2005 ■■r.viliii... J Grundarfíörður - valkostur í verslim Það kemur mörgum á óvart sem koma til Grundarfjarðar hversu margar verslanir er að finna í ekki stærra byggðarlagi. Það má einnig telja góðan kost að þótt þær séu ekki allar undir sama þaki er stutt á milli þeirra. Því ætti í þokkalegu veðri ekki að vera mikið mál, þ.e. ef menn eru ekki að kaupa þeim mun meira, að leggja bílnum á góðum stað og taka síðan rúnt á milli versl- ananna gangandi. Við gerum það í þetta sinn, leggjum bílnum á lóð Sögumiðstöðvarinnar við gamamót Hrannarstígs og Grundargötu og röltum síðan yfir Grundargötuna á nýlagðri upphækkaðri gangbraut. Við Hrannarstíginn sem liggur þvert á Grundargötuna niður að höfn, er fyrst á vinstri hönd að finna Essó - Hraðbúð þar sem bíleigend- ur finna auk eldsneytis flest það sem nauðsynlega þarf til bílreksturs en þar er einnig að finna fjölmargt matarkyns, famað, skyndibita og margt fleira. I átt að höftiinni Nokkru nær höfninni á hægri hönd eftir að við höfum gengið ffamhjá Heilsugæslustöðinn kom- um við í Hrannarbúðina sem er bóka- og ritfangaverslun en þar er ekki síður að finna úrval af leik- föngum, tölvu- og tæknivörum ýmis konar þ.m.t. símum. Þá er þar gam og lopi, prjónar og þess háttar fýrir hannyrðafólk auk þess sem dýraunnendur finna þar ýmislegt fýrir gæludýr sín og hesta. Þar má einnig endurnýja öll happdrættin á sama stað. I næsta húsi og enn nær höfninni era þrjár verslanir. Fyrst er það Lyfja með sína heilsu- og snyrtivöru að ógleymdum lyfjunum fýrir þá sem til læknis leita. Næsm dyr leiða okkur inn í Blómabúð Maríu þar sem auk blóma og skreytinga af ýmsu tagi og dýrðleg- an ilm, kennir ýmissa grasa í gjafa- vörum. Innaf blómabúðinni er síð- an komið inn á yfirráðasvæði Ríkis- stjórans Ama Halldórssonar sem stendur keikur innan um áfengi af ýmsu tagi og alla jafha seinnipart dags. Áfram höldum við niður Hrann- arstíginn og við beygjum til vinstri og þar við hornið finnum við Versl- unina Hamra sem stendur við Nes- veg. I þessari verslun geta verk- lagnir menn og -konur sótt sér ým- islegt til viðhalds og viðgerða á húsakosti sínum auk þess er þarna er til sölu ýmiss hlífðar- og regn- famaður, þar má fá rafmagnsvörur stórar og smáar auk ýmis konar gjafavöru svo fátt eitt sé nefnt. I þessu húsnæði verslaði í eina tíð og fýrir margt löngu Emil Magnússon með matvöru og ýmsan varning og hét þá verslunin Grund en flutti sig seinna um set er hann byggði húsið sem hýsir nú Sögumiðstöðina. Og það er hægt að gista hka Út höldum við aftur á Nesveginn en áður en við beygjum til vinstri blasir Hótel Framnes við á hægri hönd þar sem hægt væri að fá gist- ingu í hlýlegu umhverfi ef langt er heim. En við ætlum ekki að gista svo við förum í næsta hús eftir að við höfum beygt til vinstri. Þetta er nýlegt hús, sem byggt var eftir að gamla húsið Götuprýði sem þar stóð var rifið, og þar finnum við rafeindafýrirtækið Mareind og Gallerí Tínu. Mareindarmenn sem eru tveir sérhæfa sig í sölu og við- haldi á tæknibúnaði fýrir skip og báta auk þess að sinna viðhaldi raf- og skrifstofutækja. Eiginkonur þeirra sinna skapandi listþörf sinni og bjóða til sölu handgerðan vam- ing af ýmsu tagi úr leir bæði til skrauts og nytja. Við göngum út ffá brosmildum listakonum og erum nú stödd á Eyrarvegi, sem við þræðum áfram uns númerið 17 birtdst en baka til í því húsi í kjall- ara, ræður hárgreiðslukonan á staðnum ríkjum og býður upp á klippingu og greiðslu og ýmsan varning tengdan þeim geira ffá Ice in a bucket. Þegar þaðan er haldið og aftur út á Eyrarveginn erum við búin að ganga í U á stuttum tíma. Gamla Kaupfélagið Einn útúrdúr hefðum við getað farið þegar við komum út ffá versl- uninni Hömrum. Ef beygt hefði verið til hægri þegar út var komið hefði verið hægt að halda áffam eft- ir Nesvegi og horfa í leiðinni á at- hafnalífið við höfnina, en þegar komið er út á horn þar sem Nes- vegur mætir Borgarbraut erum við komin að gamla kaupfélagshúsinu sem byggt var í áföngum og yngri hlutinn á sér merkilega sögu um lyftingu á steyptri loftplötu í heilu lagi. Þarna verslar nú Samkaup - Strax matvöruverslun, en áformar að byggja nýtt hús og tengja rekst- urinn við Essóstöðina von bráðar og verður þá komin inn í hringinn. En höldum áfram þar sem ffá var horfið við hárgreiðslustofuna Hár- sport og röltum upp að Grundar- götu og beygjum til hægri en áður en við göngum ffamhjá Fjölbrauta- skólanum nýja horfum við niður að heimilislega fjölskylduveitinga- staðnum Krákunni en engin getur sleppt því að líta við á þessum frá- bæra matsölustað, það gerum við síðar og komum næst að Pósthús- inu en þar uppi á annarri hæð sýsla menn við tölvur hjá fyrirtækinu TSC en það selur ýmsan varning sem tengist þeirri starfsemi. Auk þess starfrækir TSC þráðlaust netkerfi fýrir fýr- irtæki og einstak- linga í Grundar- firði og víðar á Snæfellsnesi. En höldum nú áffam með Grundargöt- unni og yfir gatnamót Sæbóls og Grundargötu og færum okkur yfir á gangstéttina vinstramegin. Þar komum við fýrst að veitingastaðn- um Kaffi 59 þar sem líkt og í Krákunni er boðið upp á mat og ýmsar veigar. Auk þess geta fót- boltafiklar fýlgst þar með enska boltanum. En við ætlum ekki að stoppa þar að þessu sinni enda eng- inn leikur svo haldið er í næsta hús sem er mjög nýlegt og hýsir þrjú fyrirtæki. Fataverslunin Lindin með tískufatnað á alla fjölskylduna er staðsett í austurenda hússins en síðan er það hreinlætis- og rekstrar- vöruverslunin Besta sem rekin er í samvinnu við þvotta og hreingem- ingafýrirtækið Snæþvott og er ekki komið að tómum kofanum á þeim bænum þegar hreingerningar fýrir jólin standa fýrir dyrum auk þess sem þar er að finna rekstrarvörar fýrir fýrirtæki. Nú er rétt að snúa við Þarna í húsnæði Snæþvotts er komið að endamörkum Grundar- fjarðarverslunar í vestri og hægt að halda til baka sömu leið. Við göng- um nú til baka um þrenn gatnamót uns komið er að mótum Borgar- brautar og Grundargöm. En Borg- arbrautin liggur upp að Grunnskól- anum og einnig að íþrótta- og út- vistarsvæði Grundfirðinga þar sem meira segja má finna skfðalyftu. En við erum semsagt stödd á hominu í gömlu húsi sem eitt sinn var símstöð en þar á eftir Samvinnubanki er nú Videóleigan og sölutuminn Kósý með ýmsan þann vaming sem ffeist- ar og stundum er 50% afsláttur á nammibarnum. En við skulum nú láta allt sælgæti vera og að endingu rölta upp Borgarbrautina uns við komum að gatnamótum þar sem Hh'ðarvegur sker Borgarbrautina og um leið og við göngum yfir á gang- braut horfum við á reisulegt húsið vinstramegin skáhallt á móti en þar er rekið Farfúglaheimili í dag og þar höfum við annan valkost í gistingu. Þegar við erum komin yfir götuna beygjum við til hægri ffam hjá einu húsi og að því næsta en þá blasir við skiltið Stellubúð sem er staðsett í bílskúr við hús númer tvö. Þar inni kennir margra grasa í föndur- og hannyrðavörum, auk þess selt er til- búið handverk af ýmsum toga. Við látum þessu búðarrölti þar með lokið og göngum út í kvöld- húmið, beygjum til vinstri og dá- umst að Grundarfjarðarkirkju sem ber við himinn og senn erum við komin að Hrannarstíg sem við göngum nú niður í átt að bílnum okkar við Sögumiðstöðina og það er ekki amalegt að enda þennan göngutúr í heimsókn á nýstárlegt og stórmerkilegt safn sem komið hefur verið fýrir í húsi sem eitt sinn var matvöruverslunin Grund eins og áður er getið. GK Efiir búðarröltið veröur svo aö kíkja niður að höfii; lífieð bœjarins. Verslun og þjónusta í Smefellsbæ Það hefur verið mín skoðun að í- búar Snæfellsbæjar búi við mjög gott þjónustustig varðandi verslun og almenna þjónustu. Mín von er sú að ég geti haldið áffam að halda þeirri skoðun á lofri um ókomin ár. En blikur eru á loftí í verslun og þjónustu hjá okkur eins og víða. Hefur það ekki alltaf verið á undan- fömum árum að hlutimir breytast hratt? Það sem okkur þótti sjálfsagt í gær, er óþarfi í dag. Þannig hafa árin þotið áffam og nýjungar og ný- breytni birtíst okkur daglega í okk- ar nánasta umhverfi. En hvemig er staðan hjá okkur í dag? Jú, við erum ekki lengur bundin í heimahögunum. Vegabæt- ur hafa m.a. verið svo hraðar að við förum milli byggðarlaga eins og ekkert sé. Ekkert er sjálfsagðara en að skreppa t.d. tíl Reykjavíkur að morgni og vera komin heim aftur fýrir kvöldmat. Þar af leiðandi get- um við sótt bæði verslun og þjón- ustu þar sem okkur sýnist. Þessa möguleika nýta íbúar Snæfellsbæjar sér eins og aðrir. En það er ekki bæði haldið og sleppt segir máltækið. Hvað er það sem íbúamir vilja halda í? Og hverju vilja þeir sleppa og sækja annað? Vflja íbúar Snæfellsbæjar halda því þjónustustigi sem við höf- um haff í okkar byggðarkjömum undanfarin ár? Hvað er þetta þjón- ustustig annars? Og hvað gerir það svo sem fýrir íbúana? Það er nú það.. Frá hendi verslunar- og þjón- ustuaðila ætla ég að nefna örfá at- riði sem mér finnast vega þungt. Eg gleymi kannski einhverju en þá get- um við bara spjallað um það og kannski reynt að halda fleimm já- kvæðum atriðum á lofri. Við höfúm mjög góða og per- sónulega þjónustu í matvöruversl- unum okkar. Ef eitthvað vantar eða þig langar í eitthvað sérstakt er hægt að biðja um það og því er oft- ast reddað eins fljótt og hægt er. T.d. má nefna að kjötborð sjást varla í verslunum á landsbyggðinni og á fáum stöðum í sjálffi Reykjavík - en við höfum þessa þjónustu hér í Snæfellsbæ. Veitinga- og matsölustöðum er guði sé lof aftur að fjölga - ekki þótti okkur nógu gott, þegar þessi þjónusta næstum því lagðist af tímabundið. Gjafavara, famaður, búsáhöld, blóm, bækur, ritföng, bakarí, tölvu- þjónusta, snyrtivömr, lyf, þjónusta við bíla. Málninga og byggingar- vömr. Allir þessi þjónusmaðilar og fleiri bjóða upp á mjög breiða, per- sónulega og góða þjónusm. En þá er sagt: Verðlagið er ekki það sama! Það er alveg rétt. Það er oftar en ekki betra og smndum líka verra. Það era mjög margir íbúar Snæfellsbæjar sem gera sér grein fýrir þessu og kynna sér verð og þjónustu hér heima áður en þeir sækja lengra. Eitt finnst mér þó vanta. Það vantar að þeir sem stjórna aðal stofnun okkar bæjarbúa, Snæfells- bæ, sem hefur sínar tekjur af okkur íbúunum og okkar fýrirtækjum, hafi þá stefnu í öllum sínum stofnunum að versla heima. Búa þannig til virðisauka, auka velm, nota þjón- usmaðila og halda þannig öllum þeim störfúm sem hægt er hér heima í Snæfellsbæ. Ef það er ekki bæjarfélagið sjálft sem gengur í fararbroddi að efla sig sjálft, með því að nota það sem í því býr... þá hvað? Þetta á bara að vera „prinsip“ atriði. Hvernig skyldu önnur bæjarfélög í kringum okkur hafa þetta? Eg veit að þeir sem reka verslun og þjónusmfýrirtæki í Snæfellsbæ vilja gera allt sem þeir geta fýrir í- búana. Þeir em í þessum skrifuðum orðum sem og alltaf að reyna að bregðast við þeim breytíngum sem verða dag frá degi og hefur bara tekist það bærilega vel, ennþá, að mér sýnist. Eg segi að lokum; skoðum vel það sem við höfum í dag, bemm saman sambærilegar verslanir í verðum og skoðum þau þjón- usmgæði sem við fáum. Því enginn veit hvað átt hefúr, fýrr en misst hefúr. Með bestu óskum um gleðilega jólahátíð og farsælt komandi ár. Drífa Skúladóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.