Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2005, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 23.11.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 23. NOVEMBER 2005 Framkvæmdir fyrir um hálfan milljarð Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti í síðusm viku með níu samhljóða atkvæðum að vísa fjár- hagsáætlun bæjarins og stofnana hans til seinni umræðu í bæjarstjórn og er áætlað að sú umræða fari ffam 13. desember. I framsöguræðu Guðmundar Páls Jónssonar, bæjar- stjóra kom fram að á næsta ári sé gert ráð fyrir ffamkvæmdum á veg- um bæjarins og stofaana hans fyrir um hálfan milljarð króna, ef stærri viðhaldsverkefai eru talin með, og telur hann því óhætt að fallyrða að sjaldan eða aldrei hafi áður verið jafamiklar framkvæmdir á vegum kaupstaðarins. 16 milljónir til Strætó bs Af helstu framkvæmdum má nefna að gert er ráð fyrir framlagi til áframhaldandi hönnunar í- þróttamannvirkja á Jaðarsbakka- svæðinu. Þá er gert er ráð fyrir framlagi til Fjölbrautaskóla Vestur- lands að fjárhæð 21,7 milljónir króna vegna framkvæmda við skól- ann og tækjakaupa. Gert er ráð fyr- ir framlagi til að ljúka aðstöðu fyrir hjólabretta- og línuskautaiðkendur á lóð Grundaskóla. Framlag til al- menningssamgangna á milli Akra- ness og Reykjavíkur eykst, því í vinnslu er samningur á milli Strætó bs og Akraneskaupstaðar um þjón- usm á því sviði. Utgjöld em áætluð um 16 milljónir króna. I fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir ffamlögum til ýmissa mála í fjölskyldustefau Akraneskaupstaðar sem kemur að hluta til ff amkvæmda á árinu 2006 og einnig er gert ráð fyrir auknu framlagi til niður- greiðslu dvalargjalda vegna barna Grundfirðingar leigja mestar aflaheimildir til sín Á síðustu tveimur fiskveiðiámm hafa verið leigð til Vesmrlands 9.307 þorksígildistonn. Þetta kem- ur ffam í svari sjávarútvegsráðherra á Alþingi við fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar. Óskaði Jóhann eftir upplýsingum um heildarflutning aflaheimilda til og ffá einstökum sveitarfélögum og einnig útgerð- um. I svari ráðherra kemur ffam að á þessum tíma vom leigð til Akraness 782 þorskígildistonn, til Grandar- fjarðar 5.283 tonn og til Snæfells- bæjar 3.310 tonn. Á sama tíma vora leigð frá Stykkishólmi 1.078 þorskígildistonn. Er Grandarfjörð- ur það sveitarfélag á landinu sem leigir til sín mestar aflaheimildir. Tvö sveitarfélög á landinu skera sig algjörlega úr við nýtingu aflaheim- ilda. Það eru Vestmannaeyjar og Akureyri. Á þessum stöðum hafa útgerðarmenn komist að þeirri nið- urstöðu að best sé að aflaheimildir þeirra séu best nýttar af öðrum. Frá Akureyri vora leigð á brott 15.954 þorskígildistonn og frá Vestmanna- eyjum vora leigð burt 10.050 tonn. Af einstökum fyrirtækjum má nefaa að Samherji hf. leigir ffá sér 9.971 tonn, Vinnslustöðin hf. 6.186 tonn, Brim hf. 6.048 tonn og HB Grandi hf. leigir ffá sér 4.150 tonn. Af fyrirtækjum á Vesturlandi má nefaa að Þórsnes ehf. í Stykkis- hólmi leigir ffá sér 907 tonn og KG fisverkun ehf. á Hellissandi leigir frá sér 518 tonn. Af fyrirtækjum sem leigja til sín kvóta á Vesturlandi er hæst Sæból ehf. í Grandarfirði sem leigir til sín á sama tíma 2.519 tonn, Guðmund- ur Runólfsson hf. í Grandarfirði leigir til sín 1.454 tonn og Soffaní- as Cecilsson hf. í Grandarfirði leig- ir til sín 93 5 tonn. HJ Akraneskaupstaður sem era í gæslu hjá dagforeldram. Endurskoða akranes.is Eins og ffam hefar komið er ný- lokið gerð samnings við Golfklúbb- inn Leyni og meðal annars er gert ráð fyrir að ljúka lagningu slitlags á veg að svæði klúbbsins. Framlag er til Bíóhallarinnar að fjárhæð 15 milljónir króna og era þær ætlaðar til að ganga ffá bættu aðgengi í hús- ið og malbikun bílastæða. Gert er ráð fyrir endurskoðun á vefsíðu kaupstaðarins og samvinnu við OR, Reykjavíkurborg og Seltjarnarnes um framsetningu á upplýsingum til íbúa bæjarfélaganna með innleið- ingu á ljósleiðaratækni. Eins og áður hefúr komið ffam í frétt Skessuhorns er gert ráð fyrir fjárframlagi til skipulagsmála á fimm svæðum í bæjarfélaginu og í umferðar- og samgöngumálum er gerð tillaga um ýmis verkefai auk verkefna á opnum svæðum, endur- nýjun gangstétta, lagningu slitlags á gangstíga, endurnýjun holræsa o.fl. Þá er gert er ráð fyrir hönnun á Akratorgsreit í ffamhaldi af niður- stöðu samkeppni um skipulag og er veitt 16 milljónum króna til þess verkefnis. Mest til íþróttamann- virkja Þá er 10 milljónum króna varið til skoðunar á húsnæðismálum Bókasafasins og varið er 3 milljón- um til hönnunar nýs tjaldsvæðis. Einnig verða endurnýjaðir tveir af eldri leikvöllum bæjarins. Til við- halds íþróttahússins við Vesturgötu og Brekkubæjarskóla er varið 30,8 milljónum króna. Einnig er gert ráð fyrir 16 milljóna króna ffamlagi vegna stækkunar á stúku við í- þróttavöllinn á Jaðarbökkum. I sumarbyrjun er gert ráð fyrir að taka í notkun nýtt fjölnota íþrótta- hús. Áætlaður framkvæmdakosm- aður við að ljúka framkvæmdum við húsið er um 150 milljónir króna og er þá reiknað með að heildarkostn- aður við byggingu hússins verði um 400 milljónir króna. HJ Jólaljósin í bæjumun Það era jafaan stórar smndir í hverju bæjarfélagi þegar ljósin era tendrað á jólatrjám sem oftar en ekki era gjafir vinabæjanna. Við það er í hugum margra markað upphaf aðvenm og jólaundirbún- ings; hátíð ljóss og ffiðar. Jólatré Stykkishólms kemur ffá vinabænum Drammen í Noregi. Það er sett upp í Hólmgarði ár hvert og kveikt á ljósunum um leið og það berst til landsins. Bæjar- starfsmenn era að skreyta bæinn með jólaljósum þessa dagana og verður kveikt á þeim um næstu helgi. Ljósin á jólatrjám Snæfellsbæjar verða tendrað fyrsta sunnudag í að- ventu. Þau era tvö; við bæjarskrif- stofarnar á Hellissandi og við Pakkhúsið í Ólafsvík. I Grundarfirði sér Lionsklúbbur- inn um jólatré bæjarins og verður kveikt á því fyrsta sunnudag í að- venm eins og venja er. Á laugardag- inn verður kveikt á jólaskreytingum bæjarins og einnig hjá mörgum íbúum, þannig að jólaljósin lifaa við með samstilltu átaki út um allan bæ. Dagskrá verður á sunndaginn þar sem kvenfélagið Gleym mér ei er með basar í samkomuhúsinu, en þar verður á boðstólnum kaffi og vöfflur, hannyrðir, föndur og ýmis jólavarningur. Eins og undanfarin ár verður happdrætti til styrktar börnum í bænum. Kveikt verður á jólatré Borgar- byggðar fyrsta sunnudag í aðventu á Skallagrímsvelli. Á Akranesi verður að venju jóla- tré ffá vinabænum Tönder. Kveikt verður á ljósum þess laugardaginn 3. desember klukkan 16 að við- stöddum jólasveinum og fleira, góðu fólki. GG

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.