Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2005, Blaðsíða 32

Skessuhorn - 23.11.2005, Blaðsíða 32
 32 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 .-tSllli... X Frá Stykkishólmi. Verslun í Stykldshólmi I Stykkishólmi eru góðar versl- anir sem margar hverjar byggja á langri hefð. Þar skal fyrst telja þá elstu; Stykkishólmsapótek. Fyrir utan hefðbundnar lyfsöluvörur, fæst þar úrval snyrtivara fyrir húð og hár, ilmvörur, gjafavörur, skart- gripir, og margt fleira. Verslunin Heimahornið er rekin í húsi Bónus við Borgarbraut. Verslunin var stofhuð 6. júní 1992 og er alhliða fataverslun fyrir börn og fullorðna, svo sem íþróttafatn- að og fl. Heimahornið er einnig með skófatnað, heimilisvöru og gjafavöru marvíslega. Skipavík rekur byggingavöru- verslun en þar eru einnig seld raf- magnstæki, vinnufatnaður og tengdar vörur. I húsnæðinu er einnig rekin Vínbúð. Verslunin Sjávarborg er niður við höfiiina í Stykkishólmi. Versl- unin var stofnuð 30. júní 1994. Þar eru seldar bækur, ritföng, gjafavör- ur, garn, hannyrðavörur, leikföng, símar og margt fleira. Þar er einnig umboð fyrir happdrættin og fatahreinsun. Bakarí er líka í Hólminum. Á bolludaginn í fyrra var opnað nýtt bakarí sem byggir á gömlum meiði, en Bakarí hefur verið rekið í Stykkishólmi frá árinu 1911. Heitir það Nesbrauð og þar er hægt að fá brauð og bakkelsi eftir því sem hugurinn girnist. Fyrir jólin verður til úrval af smákökum og tertubotnum, svo önnum kafið fólk þarf ekkert að baka. Svo er þar rekin veitingastofa, með súpu og smáréttum. Ekki má gleyma Bónus, en sú verslun hefur nú verið í Stykkis- hólmi í rúmt ár við góðan orðstír. Þar er allt sem fæst í Bónus versl- ununum og á sama góða verðinu. A Bensínstöðinni er Uppgrips- verslun sem leynir á sér en þar fæst ýmislegt. Nýjasta verslunin er svo Blóma- búðin Ilmur. Hún er reyndar í húsnæði þar sem áður var rekin blómabúð, í húsi Bónus við Borg- arbraut. Er það blóma- og gjafa- vöruverslun. Það er því margt að finna í Stykkishólmi, fjölbreytt úrval af flestu sem fólk þarfnast og er full á- stæða til að benda Hólmurum og nágrönnum á að skoða úrvalið áður en farið er að leita annað. Einnig er ástæða til að minna fólk á að fleira leynist hér en búðirnar í Bónushús- inu og er fallegt að aka um Stykkis- hólm á aðventunni, skoða aðrar verslanir, heimsækja Norska húsið, setjast niður á kaffihúsunum og fá sér heitt súkkulaði og kökusneið. Gamla slagorðið_er enn í fullu gildi: „Verslið í heimabyggð." DSG Jólastemning í Alfhól Nú í ár, sem og undanfarið, stendur handverksfólk í Hvalfirði fyrir jólamarkaði í gamalli hlöðu og súrheysgryfju á Bjarteyjarsandi. Markaðurinn verður um næstu og þarnæstu helgi. Það má segja að komin sé hefð á þennan viðburð, en þetta er fimmta árið sem mark- aðurinn er haldinn. Segja má að hann sé með nokkuð óhefðbundnu sniði, þar sem hægt er að tylla sér niður, hlusta á lifandi tónlist og gæða sér á ekta heitu súkkulaði og nýbökuðum smákökum með í boði hússins. Þetta skapar notalega og jólalega stemningu og fyrir marga er þetta ómissandi þáttur á aðvent- unni og í jólaundirbúningnum yfir höfuð. Aðspurð segja aðstandendur Álf- hóls að undirbúningi sé að ljúka en í ár verður úrvalið fjölbreytt sem endranær. Glerlist verður áberandi, sem og ýmis útsaumur, prjónaskap- ur, leirlist, trélist og margt fleira. Þá verður einnig hægt að fjárfesta í jólakökum, rúgbrauði, sveitaklein- um og fleira góðgæti. „Við erum bara orðnar nokkuð spenntar og hlökkum til að hitta vini og vanda- menn sem heimsækja okkur í Álf- hól á hverju ári, en bjóðtun jafn- ffamt ný andlit hjartanlega velkom- in til okkar í súkkulaði og sæta- brauð,“ segja þær stöllur Kolbrún, Asrún og Rebekka glaðbeittar að lokum. MM l/tUlAhó’tfltíí Sýpur dauðann samt úr skel - sextug, rauð og galin Það er ekki of- sögum sagt af njósnaneti mínu. Varla var síðasti þáttur kominn fyrir almenn- ingssjónir þegar mér bárust þær upplýsingar að vísan „Barnið kenndi barni bam,“ væri eftir Þura í Garði. Ekki munu þó mínir menn hafa beitt neinum ólöglegum pyntingarað- ferðum til öflunar þessarar vimeskju og yfir- höfuð mun mildari aðferðum en CIA og engir fangaflumingar hafa átt sér stað í þessu sambandi svo sannað verði. Eru mínum mönnum hér með færðar besm þakkir fyrir ffammistöðuna. Fyrst farið er að minnast hér á Þuru í Garði er ekki úr vegi að rifja upp vísu sem hún orti einn blíðan sunnudags- morgun í Lystigarðinum á Akureyri sem hún hafði eftirlit með í fjölda sumra. Nú bar svo við einn morgun þegar Þura gekk um garð- inn að á einum afviknum stað var grasið bælt mjög. Þar fann hún buxnatölu og orti: Morgungolan svala svalar syndugum hugsunum. Sínu máli talan talar, - talan úr buxunum. Eitt sinn í hálku og leiðindaveðri bauð piltur Þuru staf tdl stuðnings en ekki virtist það freista hennar mjög: Hvab stobar bara stafurinn? Styrkur enginn fyrir mig! C erbu betur góbi minn - gefbu mér nú sjálfan þig. Ekki mun henni þó hafa orðið að ósk sinni í þessu efni því ógiff var hún alla tíð. Eftir að rúllubyltingin varð í sveitum landsins er sem betur fer næsta fátítt að þurfi að leysa upp hey í hlöðum sem var illt verk þegar svo hafði hitnað í að eldur varð laus ef loft komst að. Sigurður Sveinsson á Sleggju- læk orti um nágranna sinn sem var ásamt fleirum að bjarga heyi úr bruna og logaði það í fangi hans: Björn ei hótib hraustur vék, hulinn sóti í framan, milli fóta loginn lék lengi um snótagaman. Guðmundur Magnússon í Stóru Skógum var góður hagyrðingur og léttur í lundu en sárfátækur alla tíð. Honum hafa verið eign- aðar ýmsar landsþekktar vísur sem einnig eru kenndar öðrum en engin tilraun verður gerð til að leysa úr þeim flækjum að sinni. Á yngri árum sínum var hann trúlofaður stúlku en ekki varð þó meira úr því. Löngu síðar hittust þau þar sem hún átti ekki von á hon- um og þekkti hún hann þá ekki. Þá sagði Guðmundur: Þú mátt grunda í þankareit, þar býr undir frami. Ástar bundum ábur heit, er Cubmundur sami. Það má kalla árvisst þegar skólar hefja starf sitt á haustin að þá blossar upp lúsafar- aldur þó talið væri að lús hefði verið útrýmt á Islandi í mínu tmgdæmi. Nú eru reyndar sendar legionir fólks til útlanda ár hvert til að draga að ný ræktunardýr í stofninn. 9. október 1988 birti Morgunblaðið á baksíðu ff étt þess efnis að lús í skólum væri í svipuðu magni og undanfarin ár. Af því tilefni kvað Sigtryggur Símonarson: Clebjist þjóbin fréttafús. Fregn þá Morgunblabib gefur ab Reykvíkingar rœkti lús - reyndar líkt og verib hefur. Fyrir margt löngu vann Magnús Finnsson við húsbyggingu ásamt manni sem Jón hét og syni hans á unglingsaldri. Drengnum þótti Magnús skemmtilegur og hélt sig gjarnan nærri honum en faðir hans aðvaraði hann og taldi að karlinn væri lúsugur sem mun þó ekki hafa verið rétt. „Og svo verður húsið strax fullt af þessum óþverra." Ein- hvern ávæning hafði Magnús af þessum orðaskiptum og orti: Til ab fylla tvílyft hús talabi jón vib drenginn, ei þarf nema eina lús ef hún vceri fengin. Þessi barátta manns og lúsar hefur fylgt mannkyninu æði lengi og ýmsum veitt betur í þeim orrustum. I orðastað kerlingar nokk- urrar kvað Kristján Jónsson Fjallaskáld: Flýgst ég oft á vib fló og lús fagna þó sigri snjöllum. Hjálpa þú mér nú minn hesthús miskunnar aus úr döllum. Þeir sem óforþént angra mig óska ég helst ab skeri sig. Feitt er ketib á Fjöllum. Margir hagyrðingar hafa stytt sér and- vökunæmr með því að raða saman orðum í eins og eina eða tvær ferskeytlur og örugg- lega hefur þessi tilhneiging manna haff góða þroskamöguleika á baðstofutímabilinu. Ekki man ég fyrir víst hvort ég hef heyrt nefndan höfund að eftirfarandi vísu en mér finnst þó að hún gæti verið vestan úr Breiðafjarðareyj- um. Allavega væri gaman ef einhver gæti upplýst mig þar um; Fyrst ab allt er orbib hljótt eins og lús á maga og ég verb ab vaka í nótt vendi ég mér til Braga. J' 5 Nú hefur skáldaguðinn Bragi löngum haft í mörgu að snúast og enda misríflegur í út- lámm við hirðmenn sína. Fáir hafa hinsveg- ar farið alveg á mis við útlát þeirra Amors og ástargyðjunnar Freyju enda kvað Hjörjeifur Jónsson á Gilsbakka: Margur hlabinn er um of allra handa trússum, ástina vebur upp í klof og upp fyrir - á bússum. Jón Ingvar Jónsson kvað um eina kórsyst- ur sína, valinkunna sómakonu: Sífellt aubvalds veikir vél, varla blaub er talin. Sýpur daubann samt úr skel sextug, raub og galin. Eftir Hermann Jónasson fyrrverandi for- sætisráðherra er þessi ágæta vísa sem mörg- um ungum mönnum hefur orðið nokkuð stefnumótandi: Ýmsir fara illa á því og skal þar ab vikib, kvennafar og fyllerí flestir spara of mikib. Þorleifur Konráðsson ffá Frostastöðum lýsti svo gleðskap nokkrum og hafa aðstand- endur þeirrar samkomu greinilega ekki spar- að veitingar enda vísan væntanlega yngri en ráðleggingar Hermanns: Margir dag sér glaban gerbu, glatt var drukkinn landi. Urbu menn ab innanverbu alveg hundrennandi. Pétur Stefánsson kvað um einn ágætan kunningja sinn og laxveiðimann: Hans er lukkan happasein, hleypur þó á sncerib, er bítur hrygna ein og ein á amorsveibarfcerib. Eins og stundum gerist hefur þessi þátmr nú leitt mig á aðrar slóðir en ég ætlaði í upp- hafi og verður ekki við því gert héðan af. Er því rétt að hann kveðji hér með orðum Hjör- leifs Jónssonar: Þetta er orbinn þungur róbur, þolinmcebin dró í naust. Þab er dýrmcett, Cub minn góbur ab geta dáib hjálparlaust. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 435 1367 og 849 2715 dd@hvippinn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.