Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2005, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 23.11.2005, Blaðsíða 31
 MIÐVIKUDAGUR 23. NOVEMBER 2005 31 Málþing um ölkeldur og heilsulindir s Oslámar þrjár Verkstjóri, vélamaður og smiður voru sendir í virkjunar- vinnu austur að Kárahnjúkum um tveggja vikna skeið til að létta undir og flýta íyrir á- kveðnum verkþætti. í hádegs- mat á miðvikudegi ákveða þeir að labba upp á Kárahnjúk sér til dægrastyttingar. Þegar þeir eru komnir hálfa leiðina upp, rekast þeir á lampa. Vélamaðurinn, sem nýlega hafði horft á Aladd- ín og konung þjófanna, nuddar lampann og sjá; andi birtist. „Venjulega veiti ég þrjár óskir, en þar sem þið eruð þrír fáið þið eina ósk hver,“ segir andinn. Smiðurinn var fyrstur og segir: „Eg vil eyða afgangi ævinnar í stóru húsi á fallegum stað í Borgarfirði, með engar pen- ingaáhyggjur og umkringdur fallegum konum sem dýrka mig og dá.“ Andinn uppfyllti óskina og smiðurinn hvarf með hvelli. „Eg vil eyða ævinni á snekkju við Snæfellsnes, með engar peningaáhyggjur og umkrindur fallegum konum sem dýrka mig og dá,“ segir vélamaðurinn. Andinn sömuleiðis uppfyllir hans ósk og eins og smiðurinn hverfur hann með hvelli. „Og hvað villt þú,“ spyr andinn verkstjórann. „Eg vil að þeir verði báðir komnir aftur til vinnu ekki seinna en klukkan eitt“, segir verkstjórirm ákveð- inn. Varað bíða Eigandi stórs trésmíðaverk- stæðis ákveður að fara niður á gólf og sjá hvernig gengi í fyrir- tækinu. Inni á lager finnur hann ungan mann sem situr þar og starir út í loftið. Hann fylgist með honum um stund og tekur efrir að hann bara situr og star- ir. Eigandinn gengur að honum og spyr: „Hvað ert þú með í laun á dag?“ „Attaþúsund og fimm hundruð,“ svarar ungi maðurinn. Eigandinn tekur upp veskið, veiðir upp áttaþústmd og fimmhundruð og lætur hann hafa. Síðan segir hann honum að hunskast burtu og koma aldrei aftur. Nokkrum mínútum síðar kemur lagerstjórinn og er greinilega að leita að einhverju, sér eigandann og spyr: „Hef- urðu séð manninn ffá póstin- um? Eg bað hann að bíða eftir mér hérna.“ Hátíð iðnaðar- manna Onnum kafinn pípari kom heim til heilaskurðlæknis til að gera við lekan krana. Eftir tveggja mínúma verk rukkaði hann lækninn um 3.600 krónur. Heilaskurðlæknirinn kvartaði og sagði: „Eg rukka ekki einu sinni svona mikið fyrir svona h'tinn tíma og þó er ég heila- skurðlæknir.“ „Eg gerði það ekki heldur þegar ég var heila- skurðlæknir,“ sagði píparinn. „Þess vegna skipti ég yfir í pípu- lagnir.“ Þórðurfrá Dagverðará með brúsa og flöskur mei ölkelduvatni, en hann var ó- þreytandi aðfi-œða um hollustu þess. Málþing um ölkeldur og heilsu- lindir á Snæfellsnesi verður haldið á Lýsuhóli á Snæfellsnesi föstudag- inn 25. nóvember. Málþingið er öllum opið, það er ekkert þátttöku- gjald og engin tilkynningarskylda. Þórður á Dagverðará var óþreyt- andi að vekja athygli á heilsugildi ölkelduvamsins og hélt því ffam að á Snæfellsnesi myndu rísa heilsu- lindir sem nýttu sér ölkelduvatnið. Þess vegna var ákveðið að á affnæl- isdeginum yrði haldið málþing um ölkeldur og heilsulindir á Snæfells- nesi. Málþingið hefst klukkan 15 og á- formað er að ljúka því kl. 18. Stjómandi málþingsins er heima- maðurinn Ragnhildur Sigurðar- dóttir. Miklum fróðleik verður miðlað en pallborðsumræður verða að því loknu. Haukur Þórðarson semr málþingið, Guðmundur Ómar Friðleifsson, jarðffæðingur fjallar um ölkeldur á Snæfellsnesi, Jón Þorsteinsson, giktarlæknir fjall- ar um heitar laugar til forna, Guð- mundur Björnsson, læknir fjallar um heilsulindir, Haukur Þórðarson og Gíslína Erlendsdóttir fjalla um ölkeldur og ferðamenn og Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins flymr erindi sem hann nefnir heilsulandið ísland. Þinginu lýkur með pallborðsumræðum þar sem Kristinn Jónasson, bæjarstjóri og Friðrik Friðriksson frá Hitaveim Suðurnesja verða í öndvegi. Afimælishátíð Klukkan 20:30 um kvöldið mun gleðin taka við af ölkelduvatninu og gestir skemmta sér við sögur, myndir, söng og dans a.m.k. til miðnættis. Þessu öllu mun Jón B. Guðlaugsson stýra, gamall vinur Þórðar, en Jón er vísast mestur sér- ffæðingur í hinum mörgu vistarver- um sem bjuggu í Þórði ffá Dag- verðará. Um söng og spil munu þau sjá: Ólína Gunnlaugsdóttir á Ökrum, Dagverðarársystur, Keli og Valintína og svo Sukkat og Punt- stráin. Jón Svanur Pémrsson mun svo slá botninn í með harmonikku- leik. Þá mun afmælisbarnið birtast á tjaldi og segja sögur og fleiri em líklegir að ausa úr sagnabmnninum að Lýsuhóli. Myndskomm úr vænt- anlegri heimildarkvikmynd verður svo skotið inn á milli. MM www.limtre virnet.is Lindab Doorline Límtré Vírnet flytur inn bíiskurs- og iðnaðarhurðír sem eru sériega vandaðar. Þær eru úrgalvaníseruðu stáli eða álí og fást í ýmsum l'rtum. Hurðímar eru eínangraðar, léttar og auðveldar í notkun. iðnaðarhurðir Fáanlegar í mörgum stærðum og gerðum, með eða án glugga. I Öryggisbúnaður: Faiivarnarbúnaður Kiemmivörn j- ■ Panorama gluggar Margskonar aukabúnaður fáaniegur. Uppsetn:ngaíeíðbeiningarfylgja. ÁREIÐANLEIKI - PJÓNUSTA - ÁRANGUR Borgarbrau! 74 310 Bofgarnesi simi 530 6000 fax 530 6069 Vesturhrauni 3 210Garðabæ símí 530 6000 fax 530 6021

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.