Morgunblaðið - 03.05.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 03.05.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2019 HAUSTFERÐIR VERÐ FRÁ 179.900 KR. NÁNAR Á UU.IS ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS FLÓRÍDA TAMPA - ST.PETE Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sigurkarl Aðalsteinsson varð í gær fyrstur Íslendinga Evrópumeistari í vaxtarrækt. Hann keppti á Evrópu- móti IFBB - Alþjóðasambands lík- amsræktarmanna sem haldið er á Spáni. Sigurkarl keppti í flokki 55 ára og eldri sem eru undir 75 kg þyngd. Hann er fæddur árið 1959 og því sex- tugur á þessu ári. „Þetta er mögnuð frammistaða hjá Sigurkarli,“ sagði Einar Guðmann, ritstjóri vefsins fitness.is sem greindi frá sigrinum. „Við höfum átt konur sem hafa náð Evrópumeistaratitlum í fitness og módelfitness en enginn ís- lenskur karl hefur áður náð viðlíka árangri og Sigurkarl. Þetta er merki- legur áfangi og ekki síst fyrir það að Sigurkarl er sextugur og hefur lík- lega aldrei verið í jafn góðu formi og nú.“ Sigurkarl tekur í dag þátt í heild- arkeppni við sigurvegara í öðrum vaxtarræktarflokkum. Fjórir íslensk- ir keppendur taka þátt í Evrópu- mótinu. Auk Sigurkarls eru það Vi- jona Salome, Alda Ósk Hauksdóttir og Ana Markovic. gudni@mbl.is Sigurkarl sigraði  Fyrsti íslenski Evrópumeistarinn í vaxtarrækt Ljósmynd/Gyða Henningsdóttir Sigur Sigurkarl Aðalsteinsson. Kári Stefánsson prófessor, forstjóri Íslenskrar erfða- greiningar, hefur verið kjörinn í bandarísku vís- indaakademíuna, National Academy of Sciences (NAS), fyrstur Íslendinga. Tilkynnt var um þetta á fimmtudag í síðustu viku. NAS er ein rótgrón- asta og virtasta stofnun bandarísks vísindasamfélags, sett á fót í mars 1863 með lögum sem Abraham Lin- coln, þáverandi forseti, undirritaði. Kjör í akademíuna þykir einhver mesta viðurkenning sem nokkrum vísindamanni getur hlotnast á ferli sínum. Hafa 190 félagar í akademí- unni hlotið nóbelsverðlaun. Virkir fé- lagar í NAS í Bandaríkjunum eru nú 2.347 og erlendir samstarfsfélagar eru 487. Erlendu félagarnir hafa ekki atkvæðisrétt á fundum akademíunn- ar. 25 útlendingar valdir Samtals voru að þessu sinni kjörn- ir 100 nýir félagar úr hópi vísinda- manna, sem eru bandarískir ríkis- borgarar, og 25 erlendir samstarfsfélagar. Kjör í akademíuna felur í sér viðurkenningu á mikilvægu framlagi til vísinda. Ekki er hægt að sækja um inngöngu í NAS heldur verða menn að hljóta tilnefningu kjörins félaga. Hefst þá víðtækt ferli þar sem ævi og starf viðkomandi og framlag til vísinda er kannað. Kjör nýrra félaga fer fram á árlegum fundi í lok apríl á ári hverju. Kári Stefánsson varð sjötugur 6. apríl. Hann lauk læknanámi frá Há- skóla Íslands 1976 og varð doktor í læknisfræði áratug síðar. Hann stundaði nám í taugalækningum og skyldum greinum við Háskólann í Chicago og starfaði við læknadeild skólans til 1993. Hann var prófessor við Harvard frá 1993 til 1997 og lengst af samtímis yfirlæknir tauga- meinalækninga við Beth Israel- sjúkrahúsið í Boston. Árið 1996 stofn- aði Kári Íslenska erfðagreiningu og hefur verið í forystu fyrir fyrirtækið alla tíð síðan. ÍE er nú í eigu banda- ríska lyfjafyrirtækisins Amgen. gudmundur@mbl.is Kjörinn í bandarísku vísindaaka- demíuna  Viðurkenning fyr- ir framlag til vísinda Kári Stefánsson Atli Steinn Guðmundsson Ósló Meintum samverkamanni Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, sem grunað- ur er um að hafa skotið bróður sinn, Gísla Þór Þórarinsson, í Mehamn í Noregi, var sleppt úr haldi í gær- kvöld. Fréttavefurinn iFinnmark hafði þetta eftir Önju M. Indbjør, lög- fræðingi hjá lögreglunni í Finnmörk. Áfrýjunardómstóll samþykkti ekki ósk lögreglu um gæsluvarðhald yfir manninum sem er 32 ára gamall. „Jafnvel þótt við höfum nú komið okkur upp nokkuð skýrri mynd af at- burðarásinni er enn mörgum spurn- ingum ósvarað,“ sagði Torstein Pett- ersen, deildarstjóri rannsóknar- deildar lögreglunnar í Finnmörk, í gær. Pettersen fer með stjórn rann- sóknar mannvígsins þar sem Gísli Þór týndi lífi um helgina. „Hann gaf okkur samfellda lýs- ingu. Nú bíðum við eftir lokaskýrslu tæknirannsókna hvað vettvang, vopn og hinn látna snertir. Hann hefur greint okkur frá sínum hluta í því sem gerðist,“ segir Pettersen og bætir því við að grunaði í málinu, Gunnar Jó- hann, játi ekki sekt. Þetta táknar þó ekki að Gunnar segist saklaus af því að hafa skotið hálfbróður sinn, það hefur hann þegar játað. „Hann við- urkennir ekki að hafa gerst sekur um manndráp af ásetningi.“ Útilokað að spá um ákæru „Okkur hefur miðað vel með rann- sóknina og höfum komið miklu í verk á stuttum tíma. Þó er það töluverð áskorun að þeir sem í hlut eiga koma frá öðru landi og tala annað tungumál. Okkur vill það til happs að samstarf norrænu landanna er mjög öflugt og þar er Ísland engin undantekning þegar rannsókn sakamála á í hlut,“ segir Pettersen. „Allar tæknilegar vísbendingar eru mikilvægar í svo al- varlegum málum sem þessu til þess að skýra fyrir okkur atburðarásina og hverjir hlut eigi að máli og þetta mál er þar engin undantekning. Það er útilokað að spá nokkru um það núna hvenær ákæran verður tilbúin,“ segir Pettersen. Ekki er óal- gengt að upp undir ár líði þar til ákært er í norskum sakamálum. Lögreglan í Finnmörk hefur tryggt sér skotvopn og fleiri vísbendingar sem gefið hafa mikilvæga mynd af at- burðarásinni þegar Gísli Þór var skot- inn til bana í bænum Mehamn þar í fylkinu aðfaranótt laugardags. „Við höfum meðal annars rannsak- að bifreið sem okkur er kunnugt um að hafi verið í notkun eftir atburðinn. Í henni fundum við blóð,“ sagði Pet- tersen rannsóknarlögreglumaður, sem fer með stjórn rannsóknarinnar, í samtali við norska dagblaðið Ver- dens Gang í gær. Öðrum sleppt úr haldi  Hinn grunaði játar ekki manndráp af ásetningi í Mehamn  Hann hefur greint lögreglunni frá sínum þætti í því sem gerðist  Blóð fannst í bíl sem var notaður Nemendur á öðru ári í Verzlunarskóla Íslands héldu árlegan peysufatadag hátíðlegan í gær. Dagurinn byrjaði með dagskrá í Bláa sal skólans. Eftir það var farið með rútu niður í miðborgina. Nemendur gengu síðan að Ing- ólfstorgi og stigu dans við harmonikkuleik. Dagskráin endaði svo með há- degisverði. Nú tekur við annatími nemenda við próflestur og vorpróf. Peysufatadagur Verzlunarskólans var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1924. Morgunblaðið/Eggert Dönsuðu í rigningunni á Ingólfstorgi „Við stefnum að því að klára þetta í kvöld eða nótt,“ sagði Kristján Þórð- ur Snæbjarnarson, talsmaður iðnað- armanna í kjaraviðræðunum við Samtök atvinnulífsins (SA), rétt áð- ur en Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöld. Þá var unnið að lokafrá- gangi texta kjarasamninga samflots iðnaðarmanna og SA hjá embætti ríkissáttasemjara. „Textavinnan tekur smátíma en þetta er allt að þokast í rétta átt,“ sagði Kristján. Hann sagði að búið væri að ganga frá öllum meginatrið- um kjarasamninganna en eftir var að ganga frá texta um nokkur atriði. Lokafrágangur samningstextans getur verið tafsamur og tekið sinn tíma. „Þetta klárast alveg, ég trúi ekki öðru,“ sagði Kristján. Samningar í sjónmáli  Iðnaðarmenn og SA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.