Morgunblaðið - 03.05.2019, Page 8

Morgunblaðið - 03.05.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2019 Eyþór Arnalds, oddviti sjálf-stæðismanna í borgarstjórn, ræðir stöðu mála í borginni við Viðskiptablaðið í vikunni. Hann bendir á að borgin „ætti í krafti stærðarinnar að vera hagkvæmasta einingin og geta þar af leiðandi boð- ið annaðhvort aukna og fjölbreytt- ari þjónustu eða lægri skatta. Stað- reyndin er hins vegar sú að borgin gerir hvorugt. Reykjavík er í neðsta sæti í þjónustukönnun Gall- up og innheimtir hæstu gjöldin.“    Hann minnir á að meirihlutivinstri manna hafi fallið í síðustu kosningum og Sjálfstæð- isflokkurinn orðið stærstur í borg- inni á ný, en Viðreisn hafi ákveðið að slást í för með fyrri meirihluta. Sjálfstæðisflokkurinn hafi þá tekið að sér það hlutverk að leiða minnihlutann, sem sé mikilvægt, og að húsnæðismálin hafi verið sett á oddinn. Þar sé vandinn mik- ill og „að miklu leyti afleiðing af húsnæðisstefnunni sem Reykjavík- urborg hefur fylgt síðustu ár“.    Eyþór sagði að á fáeinum árumhefði fjöldi húsnæðislausra tvöfaldast, en húsnæðisvandinn hefði ekki orðið til á einni nóttu og staðan væri orðin slæm: „Það er nægt framboð og þrýstingur til verðlækkunar á húsnæði fyrir efnafólk en mikill skortur og þrýstingur til verðhækkana á hús- næði fyrir ungt fólk og tekjulága – samhliða fjölgar heimilislaus- um.“    Hann sagðist vona að kjósendurstöldruðu við þessa stað- reynd og skoðuðu stöðuna for- dómalaust. Óhætt er að taka undir að staðan í borginni kallar á ræki- lega skoðun kjósenda. Eyþór Arnalds Versta þjónustan og hæstu gjöldin STAKSTEINAR Gunnlaugur Snær Ólafsson Andri Yrkill Valsson „Úrskurðurinn staðfestir í fyrsta lagi að okkur er heimilt að stöðva flug á grundvelli ógreiddra notendagjalda. Málið snerist að miklu leyti um það hvort við hefðum þá heimild,“ sagði Sveinbjörn Indriðason, starfandi for- stjóri Isavia ohf., um úrskurð Héraðs- dóms Reykjaness í máli bandaríska flugvélaleigufyrirtækisins ALC gegn Isavia. ALC krafðist þess að vél í þess eigu sem kyrrsett er á Keflavíkur- flugvelli til tryggingar tveggja millj- arða skuldum WOW air við Isavia yrði afhent. Samkvæmt úrskurðinum var Isavia heimilt að stöðva brottför vélar ALC, sem WOW air var með á leigu, vegna notendagjalda sem tengjast þessari tilteknu vél en ekki á grundvelli annarra skulda sem WOW stofnaði til vegna annarra flugvéla. Með því geti Isavia krafist 87 milljóna króna vegna umræddrar flugvélar en ekki tveggja milljarða sem heildar- skuld notendagjalda WOW air við Isavia hljóðaði upp á. Sveinbjörn segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort málinu verði áfrýjað til Landsréttar. Til þess er tveggja vikna frestur. „Þetta er 25 blaðsíðna úrskurður og nú erum við að fara yfir þennan úrskurð með okk- ar lögmönnum. Við höfum ekki kom- ist nægilega langt í þessu til þess að við tjáum okkur á þessu stigi máls- ins.“ Isavia kyrrsetti flugvélina TF-GPA 28. mars sl. í kjölfar gjaldþrots flug- félagsins WOW air. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp úrskurð sinn í málinu síðdegis í gær. Málskostnaður var felldur niður. Flugvél tryggir ekki heildarskuld  Isavia getur aðeins krafist 87 milljóna króna í stað tveggja milljarða Erlendir viðskiptavinir Hertz þurfa framvegis að gangast undir próf um akstur við íslenskar aðstæður og horfa á stutta fræðslumynd áður en þeir fá bíla frá fyrirtækinu leigða. Í gær þreytti Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, það við formlega opnunarathöfn. Verkefnið kemur í framhaldi af árangri sem náðst hefur með sam- starfi Slysavarnafélagsins Lands- bjargar og ferðaþjónustunnar. Í Safetravel skráir fólk inn ferða- áætlun sína, sem aftur auðveldar leit og björgun komi slíkar aðstæður upp. Nú verður undir sömu merkj- um gefið í hvað varðar fræðslu, með það að markmiði að bæta hegðun ökumanna og fækka óhöppum. „Fólk frá öðrum löndum heldur sjálfsagt að auðveldara sé að keyra um vegi landsins en það í raun er. Hér á landi þarf að hafa í huga færð, malarvegi, veðráttu og svo fram- vegis sem ekki þarf með sama hætti í öðrum löndum. Próf gerir umferð- ina á vegunum vonandi öruggari,“ segir Þórdís. Vænst er að fleiri bíla- leigur taki upp þetta próf á næst- unni. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Samstarf Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og forsvarsmenn Slysa- varnafélagsins Landsbjargar, Sjóvár og Hertz við kynningu á verkefninu. Ökumenn taki próf  Öryggi hjá bílaleigu Hertz  Erlendir læra á íslenskar aðstæður Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.