Morgunblaðið - 03.05.2019, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.05.2019, Qupperneq 19
m.a. Landgræðsluverðlaunin 2002, sannarlega verðskuldað. Byggingar, vélakostur og fjár- stofn, allt með svo miklum myndarbrag að eftir var tekið. Allt sem jörðin og aðstæður buðu upp á, var nytjað. Sauð- fjárbúskapurinn var kjarninn, en auk þess silungsveiði í vötn- um, rekaviður í fjörum og út- gerð á sjó. Einnig man ég vel eftir tilraunum til æðarræktar þar sem Ásgrímur freistaði þess að ala upp æðarunga heilt sumar, í þeirri von að þeir kæmu aftur að vori og mynd- uðu framtíðarstofn á Mallandi. Auk búskaparins var Ás- grímur í sveitarstjórn um árabil og tók þátt í öllum framfara- málum sveitarinnar, sem máli skiptu. Það var hálfdapurlegt að sjá hvernig veikindi efri ára léku þennan ágæta mann. Líkaminn orðinn þreyttari en hugurinn og það voru örugglega ekki að- stæður sem honum hugnaðist. Ég kveð Ásgrím með þakklæti fyrir okkar samfylgd í lífinu og votta Árnýju, Maju og allri fjöl- skyldunni samúð mína. Kristín (Stína) frá Þorbjargarstöðum. „Það er góður dagur til að verða bráðkvaddur í dag.“ Þessi orð Ásgríms flugu mér í hug er ég frétti andlát hans. Þau féllu meðan hann bjó enn á Mallandi. Ásgrímur hafði geng- ið út sér til hressingar og Ár- nýju þótti útivistin eitthvað löng og fór að gera sér áhyggjur. Ásgrímur hafði svolítið sér- stakan og skemmtilegan húmor og minnist maður oft gullkorna sem féllu við ýmis tækifæri bæði um menn og málefni. Gull- korn sem lifa og kalla fram bros hjá manni við ýmis tæki- færi. Ásgrímur var öflugasti máttarstólpi sinnar sveitar og drifkraftur alls staðar þar sem uppbygging varð og virðist sem enginn hafi komist þangað með tærnar sem hann hafði hælana. Ávallt var hann boðinn og búinn að aðstoða ef með þurfti en var þó ekki að trana sér fram. Þegar Röggi kom í sveit- ina fagnaði honum enginn betur og var boðinn og búinn ef hann gæti eitthvað greitt götu hans. Það var ekki háttur Ásgríms að skara eld að eigin köku, heldur studdi hann sitt samfélag með ráðum og dáð. Margar skemmtilegar stund- ir áttum við í heiðinni, þar sem hann uppfræddi mig um ör- nefni, greni, við smalamennsku og eftirminnilega hestaferð. Ás- grímur var öflugur smali og var unun á að horfa þegar hann fór að reskjast að alltaf varð hann ungur í hnakknum. Reið spræk- um klárum og gaf yngri mönn- um ekkert eftir. Síðustu göng- urnar sem hann fór, þá kominn fast að áttræðu, varð eitthvert baks með eina skjátuna skammt fyrir ofan réttina. Gangnaflokkurinn var eitthvað að vandræðast hvað gera ætti, kom þá Ásgrímur að og án hiks lét skvera henni í hnakkinn fyr- ir framan sig og reið niður að rétt eins og ekkert væri. Þar sem Ásgrímur var, var aldrei hik eða vandræðagangur, hon- um var í blóð borið að stjórna og taka ákvarðanir. Vil ég senda Árnýju, Leó, Gísla, Helgu og Önnu Mæju og öðrum aðstandendum samúðar- kveðjur og ljúka þessum fátæk- legu orðum mínum með tilvísun í Hávamál sem segja allt sem segja þarf. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Halldóra (Dóra) í Ketu. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2019 ✝ Petrína HelgaSteinadóttir fæddist í Reykjavík 27. september 1926. Hún lést á Landspítalanum 25. apríl 2019. Hún var dóttir hjónanna Steina Helgasonar og Elínar Helga- dóttur. Alsystir Petrínu var Agnes G. Steinadóttir, d. 2010, og hálfsystkini Arnhildur Helga Guðmundsdóttir, d. 2013, Helgi S.V. Guðmundsson og Kristján Steinason. Petrína giftist ung Einari Thorlacius Magnússyni sem starfaði við endurskoðun hjá Eimskip. Foreldrar hans voru sr. Magnús Guðmundsson og Baldur Hallgrímur, Pétur og Einar Helgi. 4) Steinunn, f. 1954, gift Torstein Egeland. Þeirra dætur: Elin Marie Thorlacius og Rebekka Thorlacius. 5) Magnús Thorlacius, f. 1964, d. 2015. Hann var ókvæntur og barnlaus. Barnabörnin eru alls 14 og barnabarnabörnin 27. Petrína, sem oftast var kölluð Peta, var lengst af heimavinn- andi húsmóðir. Hún gekk í hús- mæðraskólann í Hveragerði, kenndi gítarleik í kvöldskóla KFUM og K og við Fóstruskóla Íslands. Petrína tók virkan þátt í bæði barna- og fullorðinsstarfi KFUM og K. Hún söng árum saman í kirkjukórum, blönd- uðum kórum og í kvennakór KFUK. Eftir að börnin fóru að heiman vann hún við afgreiðslu- störf, m.a. í versluninni Stramma og hjá Áklæðum og gluggatjöldum. Síðustu æviárin bjó hún á Sólvangi í Hafnarfirði. Útför Petrínu fer fram frá Grensáskirkju í dag, 3. maí 2019, klukkan 13. Rósa Thorlacius Einarsdóttir. Petrína og Einar bjuggu í Reykjavík, lengst af í Hvassa- leiti 119. Þau eign- uðust fimm börn: 1) Elín, f. 1948, gift Guðmundi Inga Leifssyni, þeirra dætur eru: Helga Rut, Dóra Guðrún, Anna Kristín og Laufey Fríða. 2) Guðmundur Thorlacius, f. 1950, giftur Þór- stínu Unni Aðalsteinsdóttur. Þeirra börn: Einar Thorlacius, Gerður Eva, Þórstína, lést við fæðingu, Rakel, Stefán Thorla- cius og Tómas Thorlacius. 3) Rósa, f. 1952, gift Ragnari Bald- urssyni. Þeirra synir eru: Mamma mín er látin, hún hringir ekki lengur í mig og ég ekki í hana, ég deili ekki lengur með henni í orðum og myndum minningum af börnum mínum, hvað þau eru að gera og hve barnabörnin mín séu yndisleg. Ég sé hana fyrir mér brosa og segja „já hugsa sér“, „er það virkilega?“. Ég var mömmu- stelpa, þreifst ekki vel í sveit eða sumarbúðum, beið eftir að kom- ast heim, enginn eldaði eins góð- an mat og mamma, foreldrar mínir veittu mér það skjól sem ég þurfti á uppvaxtarárunum. Amma og afi í Ólafsvík voru þar undantekning, þangað var dásamlegt að koma. Við systkinin vorum fimm og einu barnabörnin í fjölskyldu pabba, sterk fjölskyldutengsl voru bæði við systkini mömmu og pabba, og við nutum þess. Það var öllum ljóst sem umgeng- ust mömmu og pabba að þau voru náin, mikill kærleikur þeirra á milli. Hjálpuðust að í eldhúsinu þó að hún væri verk- stjórinn, eldaði og hann vaskaði upp. Veislurnar heima voru falleg- ar. Mamma og pabbi gestrisin, alltaf var fallega dekkað borð þegar gesti bar að garði með girnilegum veitingum mömmu. Hún var húsmæðraskólagengin og bar heimilishaldið það glöggt með sér. Hún saumaði á mig kjóla á unglingsárum mínum sem ég var stolt af, og þegar ég útskrifaðist úr Hjúkrunarskólan- um saumaði hún á mig fallegan hvítan kjól. Handbragðið hennar var engu líkt og komst ég ekki með tærnar þar sem hún hafði hælana þar, og viðkvæðið var ef ég var að reyna “„svona það er best að ég geri þetta“, eða „ætlar nú eggið að fara að kenna hæn- unni?“. Hún var ákveðin, glæsi- leg, hafði sjálf þurft að standa á eigin fótum mjög ung og vinna fyrir sér. Við systkinin sögðum stundum að ef mamma væri ung kona í dag væri hún forstjóri í vel reknu fyrirtæki. Þegar móðir hennar, Elín amma, veiktist tók mamma hana inn á heimilið í Hvassaleiti, við öll hjálpuðumst að við að hjúkra henni og þegar föðurafi minn veiktist kom hann inn á heimili okkar og mamma sagði: það er auðvelt að annast afa ykkar, hann er svo þakklát- ur. Mamma kenndi mér á gítar, en sjálf spilaði hún klassísk verk á gítar svo unun var á að hlusta. Tónlist var í hávegum höfð á heimilinu og þátttaka þeirra beggja í kórastarfi alla tíð. Við fundum bréf eftir að pabbi dó og mamma flutti á Sólvang sem þau skrifuðu hvort öðru á fyrstu ár- um sínum, falleg ástarsaga. Þegar ég bauð mömmu að lesa þau sagði hún „ég man þau öll, hvert orð, ég þarf ekki að lesa þau aftur“ og brosti við. Síðustu árin hennar einkenndust af því að hún mundi bara það besta úr lífinu. Mamma tjáði að ein erf- iðasta reynsla sem hún gekk í gegnum í lífinu hefðu verið veik- indi yngsta bróður okkar Magn- úsar. Eftir lifir minning um ynd- islegan bróður sem gaf og tók, og dó langt um aldur fram. Foreldrar mínir kenndu mér að biðja, biðja til Guðs sem vildi umvefja mig og vernda hvern dag. Það hefur reynst mér í líf- inu hinn besti fjársjóður og gleði sem ég deili með mínum börnum og barnabörnum. Guð blessi minningu mömmu. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Rósa Einarsdóttir. Elsku mamma er dáin. Ég kem til með að sakna hennar mikið. Mamma talaði alltaf mjög vel um foreldra sína. Barnsárin hennar voru litrík og gerðu hana sterka. Á unglingsárunum kynntist hún KFUM og K gegn- um systur sína og var tekið þar af mikilli hlýju. Hún og pabbi voru virkir þátt- takendur í KFUM og K, Kristni- boðssambandinu og í kirkjunni allt sitt líf. Mamma lærði að spila á gítar. Ég man eftir henni spila fjórhent á gítar með þremur öðr- um konum í KFUM og K. Mamma kenndi fóstrum að spila á gítar í nokkur ár. Hún spilaði líka og söng oft fyrir okkur börn- in fyrir svefninn og sagði okkur líka sögur frá barnæsku sinni. Það var draumur mömmu að verða hjúkrunarfræðingur og hún komst inn í hjúkrunarskól- ann. En á sama tíma kynntist hún pabba. Á þeim tíma var sjaldgæft að maður væri hvor- tveggja heimavinnandi húsmóðir og hjúkrunarfræðingur. Hún þurfti því að afsala sér þessu tækifæri. Mamma fór einn vetur á Húsmæðraskólann í Hvera- gerði og naut námsins sem var mjög fjölbreytt á þessum tíma. Það var mikil vinna að vera heimavinnandi húsmóðir með fjögur börn á þessum árum. For- eldrar okkar höfðu ekki ísskáp né þvottavél. Það var stanslaus vinna á þessum árum, frá morgni til kvölds. Mamma saumaði yf- irleitt öll fötin okkar og prjónaði peysur. Ég man vel eftir mér í fallegum kjólum og í buxna- dragt, sem hún saumaði. Allt sem hún prjónaði og saumaði hafði einstaklega fallegt hand- bragð. Mamma bjó alltaf til afskap- lega góðan mat og var algjör snillingur í veislugerð. Ég man eftir mörgum fínum afmælis-, fermingar- og brúðkaups- veislum. Mamma var alltaf ótrú- lega sterk og dugleg. Ég man eftir henni á níræðisaldri keyra og sækja eldri systur sína og hjólagrindina hennar, gefa henni mat og kaffi og síðan keyra hana til baka, eftir að frænka hafði lagt sig. Eftir að ég flutti til Noregs, giftist norskum manni, skrifuð- umst við oft á og þá uppgötvaði ég hvað mamma var góður penni. Hún sagði svo lifandi frá öllu sem var að gerast heima. Einnig var mikill samgangur á milli okkar þrátt fyrir fjarlægð- ina. Það var alltaf hátíð að fá þau í heimsókn. Mamma átti lifandi trú allt lífið. Það reyndist henni vel, líka þegar á reyndi í lífinu. Mamma trúði á kærleiksríkan frelsarann okkar, sem veitir okk- ur styrk á lífsins göngu og eilíft líf að lokum þar sem hvorki sorg, sjúkdóma né dauða er að finna. Síðustu ár sín bjó mamma á Sólvangi í Hafnarfirði. Hún hrósaði starfsfólkinu og var sér- staklega ánægð með matinn og allt atlæti. Fannst hún vera eins og á hóteli þegar hún gat farið með göngugrindina sína að mat- arborðinu. Mamma var virk á Facebook og við gátum talað saman og sést á „messenger“. Ég var svo lánsöm að koma í heimsókn til hennar núna í byrj- un april þar sem við áttum sam- an gæðastundir, horfði með henni á Requiem eftir Mozart og við fórum í bíltúr. Ég er æv- inlega þakklát fyrir að hafa átt svo umhyggjusama og góða for- eldra og einnig ævinlega þakklát systkinum mínum og fjölskyld- unni allri á Íslandi, sem hafa annast mömmu svo vel í minni fjarlægð. Steinunn E. Egeland. Meira: mbl.is/minningar Hún tengdamóðir mín var ferðbúin. Reyndar ætlaði hún sér að fara sem fyrst af spít- alanum þar sem hún hafði verið í um viku tíma heim á Sólvang. Þar hafði hún dvalið á fjórða ár og þar leið henni vel, ánægð með allt atlæti og aðhlynningu. En hún vissi hvert stefndi og hún kveið ekki endalokunum því hún var þess fullviss að Kristur, Drottinn hennar og frelsari myndi taka við henni þegar þess- ari jarðvist lyki. Þessa trú nam hún við móður- og föðurkné og hún dugði henni allt lífið, rúm níutíu ár. Peta ólst að mestu upp í Reykjavík og lauk fullnaðarprófi úr Barnaskóla Reykjavíkur. Um lengri skólagöngu var ekki að ræða að sinni. Á þessum árum kynntist hún starfi KFUK í Reykjavík og bast strax tryggða- böndum við þann félagsskap og átti þar athvarf og félagsskap út ævina. Það er sennilega ekki algengt að ungar stúlkur kynnist verð- andi maka sínum á elliheimili. En það var nú raunin með tengdaforeldra mína. Sr. Sigur- björn Ástvaldur Gíslason prestur á Elliheimilinu Grund hóaði sam- an hópi af ungu fólki úr KFUM og K og stofnaði kór til að syngja við messur og samverur á Grund. Peta, sem ekki aðeins hafði fal- lega altrödd heldur hafði einnig náð góðum tökum á gítarleik, var tilvalin í þennan hóp. Í þessum hópi var einnig ungur prestsson- ur úr Ólafsvík, Einar Th. Magn- ússon. Systur Einars höfðu það á orði að þær hefðu merkt breyt- ingar á honum um þetta leyti því hann hafði sungið hátt með sjálf- um sér: „Það er svo gaman að ganga saman um græna hjalla og margt að spjalla.“ Brátt kom í ljós að förunautur Einars á þess- um gönguferðum sem hann var svo leyndardómsfullur yfir var hún Peta úr elliheimiliskórnum. Þannig hófst þeirra lífsganga saman frá elliheimilinu í gegnum lífið tæp sextíu ár allt til þess er Einar féll frá 2005. Um þetta leyti hafði tengda- móðir mín fengið inngöngu í Hjúkrunarskóla Íslands. Á þeim tíma þótti ekki við hæfi að trúlof- aðar stúlkur hæfu nám við skól- ann, hvað þá giftar. Þar sem unga parið var staðráðið í að rugla saman reytum sínum sem allra fyrst ákvað hún að sækja um vist í Húsmæðraskólanum í Hveragerði. Þar sat hún í festum um veturinn og útskrifaðist svo með láði um vorið. Þau hófu búskap í lítilli íbúð á Skólavörðustíg 5 og þar fæddist elsta barn þeirra hjóna, Elín. Á sama tíma hinum megin við göt- una var drengstauli að taka sín fyrstu skref. Tuttugu árum síðar gekk hann upp að altarinu með heimasætunni á Skólavörðustíg 5. Mér er ekki tamt að dæma trú fólks. En ef hægt er að tala um sanna trú þá litaði slík trú allt líf tengdaforeldra minna. Trúin á hinn upprisna Krist var þeim af- ar mikilvæg. Fylgjendur hans í gegnum lífið vildu þau einlæg- lega vera. Petrína Helga var heilsteypt, ákveðin og staðföst kona, hrein og bein í öllum samskiptum. En umhyggja fyrir lítilmagnanum var henni í blóð borin og þá sem urðu illa úti í lífsins ólgusjó dæmdi hún aldrei heldur kom þeim til varnar ef á var hallað. Eftir rúmlega fimmtíu ára við- kynningu, sem aldrei bar skugga á, kveð ég kæra tengdamóður og óska henni góðrar heimkomu. Drottinn blessi minningu hennar. Guðmundur Ingi Leifsson. Fyrir réttum þremur vikum var ég stödd á Íslandi að heilsa upp á ömmu á Sólvangi. Hún lá uppi í rúmi með heyrnartól að hlusta á hljóðbók. Bros færðist yfir. Hún hafði ekki treyst sér í fermingu Mumma okkar daginn áður og því var fermingarbarnið ásamt tertum mætt til hennar. Stiklað var á stóru um líf okkar í Svíþjóð og myndir sýndar á spjaldtölvunni. Amma var nú með þetta allt á hreinu, hafði séð mikið á Facebook og meira að segja lækað það. En ég fann að amma var orðin þreytt og kvaddi ég hana þennan dag með það í huga að kannski væri þetta síðasta skiptið sem við föðmuðumst. Nú er amma komin til afa og Magga frænda. Hátíð á himnum. Minningarnar streyma. Hvassó! Þar leið mér alltaf vel. Ég sótti mikið í ömmu sem barn. Það var bara eitthvað svo notalegt. Ég var oft svo eirðarlaus, en ekki hjá ömmu. Við spiluðum ólsen ól- sen og stundum greip afi í skák með mér á meðan amma settist í ruggustólinn og tók upp prjón- ana. Ósjaldan settumst við amma við píanóið þar sem óska- lagið, Fugl í laufi (Enginn þarf að óttast síður), var spilað og sungið. Upp úr stóð nú samt að fá smá aur hjá ömmu, skokka upp í Austurver og kaupa ávaxtakaramellur. Stundum var líka keypt Prins póló og kók, þá settist amma með krosslagða fætur upp í sófa, eftir að hafa vaskað upp og gengið frá með afa eins og þau gerðu alltaf sam- an, notaði álbréfið af súkku- laðinu sem undirskál og gæddi sér á því á meðan hlýtt var á fréttir. Þegar ég svo gisti, sem var ósjaldan, sagði amma mér sögur úr Biblíunni, fór með bænirnar, tók svo upp gítarinn og söng mig inn í draumalandið þar sem ég lá í yndislega brakandi og sléttum rúmfötum. Amma var snillingur í eldhús- inu, hvort sem kom að bakstri eða eldamennsku, þvílíkur myndarskapur alltaf hreint. Mitt uppáhald var súkkulaðikaka með karamellukremi, perutertan, hjónabandssælan, aspassúpan og tartaletturnar, það þurfti sko ekkert hangikjöt með þeim að mínu mati. Svona mætti lengi telja en það er ekki hægt að minnast ömmu án þess að tala um afa í sömu andrá. Svo samrýnd voru þau. Endalaus ást og gagnkvæm virð- ing. Mér er ljúft og skylt að taka þau til fyrirmyndar í mínu hjóna- bandi sem og í lífinu öllu og mætti hafa það hugfast miklu oftar. Elsku amma, Guð geymi þig, afa og Magga. Enginn þarf að óttast síður en Guðs barna skarinn fríður, fugl í laufi innsta eigi, ekki stjarna’ á himinvegi. Hann vor telur höfuðhárin, heitu þerrar sorgartárin, hann oss verndar, fatar, fæðir, frið og líf í sálum glæðir. Svo er endar ógn og stríðin, upp mun renna sigurtíðin, oss þá kallar heim til hallar himna Guð, er lúður gjallar. (Friðrik Friðriksson) Gerður Eva Guðmundsdóttir. Petrína Helga Steinadóttir Elsku Bára mín. Ég vil þakka þér fyrir allan þinn stuðning þeg- ar við vorum saman í Hólm- inum. Þú tókst svo vel á móti mér þegar ég kom þangað fyrst, sýndir mér ást og kærleik og síðan höfum við verið vin- konur. Þú hjálpaðir mér að sauma þjóðbúninginn, breyta Bára Þorbjörg Jónsdóttir ✝ Bára ÞorbjörgJónsdóttir fæddist 20. sept- ember 1943. Hún lést 2. apríl 2019. Útför Báru Þor- bjargar fór fram 12. apríl 2019. honum og lagfæra enda snillingur í höndunum. Við hitt- umst svo hinumegin þegar minn tími kemur. Hvar sem þrautir þjaka, þig ég heyri biðja: Viltu veikan styðja, vera hjá mér þar? Já, þinn vil ég vera, vígja þér mitt hjarta, láta ljós þitt bjarta leiða, blessa mig. (Sigurbjörn Einarsson) Kærleikskveðjur. Þín Eyrún (Eyja).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.