Morgunblaðið - 20.05.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. MAÍ 2019
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ljóðlínur Stephans G. Stephanssonar koma í
hugann þegar nýtt líf kviknar að vori og vonin
með. Á þessum árstíma standa sauðfjárbændur
um allt land vaktina við sauðburð, nótt sem dag,
og verða oft vitni að náttúrufegurð sem aðrir
sofa af sér. Þessi næturmynd frá Aðalbóli í
Hrafnkelsdal fangar eitt slíkt augnablik þegar
þokan læðist um dalinn á meðan geislar sólar-
innar baða himininn ævintýralegum vorblæ.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Nóttlaus voraldar veröld, þar sem víðsýnið skín
Stefán Gunnar Sveinsson
Hjörtur J. Guðmundsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, segir ástæðu
til að þingið taki af allan vafa um
stöðu aðildarumsóknar Íslands að
Evrópusambandinu og hyggst leggja
fram þingsályktunartillögu þess efn-
is. Í þeirri ályktun myndi Alþingi
fagna því að umsókninni hefði verið
slitið og jafnframt lýsa því yfir að
ekki yrði sótt um aftur nema að und-
angenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Ég held reyndar að þetta sé ekki
nauðsynlegt til að Ísland fari af lista
yfir umsóknarríki, enda á það að vera
á hreinu, en í ljósi þess hvað embætt-
ismennirnir í Brussel seilast langt í
að túlka hlutina eftir því sem þeim
hentar, þá væri ágætt að hafa þetta á
hreinu hver afstaða Alþingis er, og
eins það að ekki verði farið aftur í
þessa vegferð nema almenningur
hafi fengið að greiða atkvæði um
það,“ segir Sigmundur.
Bara eitt skref stigið til baka?
Í umfjöllun mbl.is um helgina var
komist að þeirri niðurstöðu að það
væri samdóma álit Evrópusam-
bandsins og utanríkisráðuneytis Ís-
lands að aðildarumsókn Íslands frá
árinu 2009 hefði ekki verið dregin
formlega til baka heldur hefði ein-
ungis verið gert hlé á umsóknarferl-
inu. Segir meðal annars í umfjöllun-
inni að umsóknarferli sambandsins
geri ráð fyrir að á fyrsta stigi um-
sóknar sé land talið vera „applicant
country“ þar til ráðherraráð sam-
bandsins samþykki að taka umsókn-
ina fyrir. Þá verði ríkið að „candidate
country“, en það var hugtakið sem
var notað í bréfi Gunnars Braga
Sveinssonar, þáverandi utanríkisráð-
herra, til Evrópusambandsins árið
2015. Því hafi Ísland í raun fengið aft-
ur stöðu „applicant country“ með
bréfi Gunnars Braga en ekki slitið
viðræðunum að fullu.
„Enginn viðmælandi minn [hjá
Evrópusambandinu] hefur sagt eða
gefið það í skyn að við værum um-
sóknarríki og afstaða mín er sömu-
leiðis vel þekkt,“ segir Guðlaugur Þór
Þórðarson utanríkisráðherra um
málið. Segir hann að í ljósi þeirrar
gagnrýni sem Bergþór Ólason, þing-
maður Miðflokksins, hefur sett fram
um stöðu umsóknarinnar á þingi veiti
umfjöllunin jafnframt upplagt tæki-
færi fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugs-
son og Gunnar Braga Sveinsson, sem
þá gegndu embættum forsætis- og
utanríkisráðherra, til að útskýra bet-
ur hvernig málið var unnið á sínum
tíma.
Fundaði með Juncker og Tusk
Sigmundur Davíð segist fagna því
að þessi umræða sé tekin upp. „Þegar
við sendum bréfið hinn 12. mars 2015,
á fertugsafmælinu mínu, þá var það
besta afmælisgjöf sem ég hef fengið
og við velktumst ekki í vafa um að við
værum að slíta viðræðum við Evr-
ópusambandið. Hins vegar sáum við í
framhaldinu að það gekk treglega hjá
Evrópusambandinu að taka Ísland af
lista yfir umsóknarríki á vefsíðu
ESB, þannig að ég skrifaði þeim bréf
sem forsætisráðherra og fór svo og
afhenti það bréf,“ segir Sigmundur
Davíð, sem ferðaðist sérstaklega til
fundar við Jean-Claude Juncker, for-
seta framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, og Donald Tusk, for-
seta leiðtogaráðs ESB, til að árétta
afstöðu ríkisstjórnarinnar. Segir Sig-
mundur að hann hafi verið mjög af-
dráttarlaus um að ESB þyrfti að
virða vilja ríkisstjórnarinnar og sýna
það í verki. Niðurstaða beggja funda
hefði verið sú að þeir viðurkenndu að
Ísland væri búið að slíta viðræðun-
um. „Í framhaldinu var Ísland tekið
af lista yfir umsóknarríki á vefsíðu
sambandsins og ég taldi að þeir hefðu
staðið við það sem lofað var,“ segir
Sigmundur og bætir við að engar for-
sendur séu til þess af hálfu embættis-
eða stjórnmálamanna innan sam-
bandsins að halda því fram að landið
sé ennþá umsóknarríki. Ekki náðist í
Gunnar Braga Sveinsson, Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráðherra eða
Bjarna Benediktsson fjármálaráð-
herra vegna málsins.
Langt seilst í túlkunum
Efasemdir um hvort aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu hafi verið dregin til baka að fullu
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þing-
flokksformaður Pírata, segist ekki
skilja þau fyrirmæli sem forsætis-
nefnd gefur varðandi siðareglur al-
þingismanna. Það setji siðanefnd
þingsins í ákveðna spennitreyju að
ekki megi meta sannleiksgildi þeirra
ummæla sem nefndin tekur fyrir.
Siðanefnd Alþingis komst fyrir
helgi að þeirri niðurstöðu að ummæli
hennar um Ásmund Friðriksson,
þingmann Sjálfstæðisflokksins,
brytu gegn siðareglum þingmanna.
Sagði hún að rökstuddur grunur
væri uppi um refsiverða háttsemi
vegna aksturs-
greiðslna þingsins
til Ásmundar.
Hins vegar segir
Þórhildur Sunna
að hinn rökstuddi
grunur hafi aldrei
verið skoðaður
frekar.
Í samtali við
Morgunblaðið
segir hún málið
einnig sérstakt fyrir þær sakir að
forsætisnefnd hafi ekki vísað um-
mælum Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar, formanns Miðflokksins,
til siðanefndar fyrr í vor. Vísaði hún
þá til ummæla Sigmundar eftir að
Klausturmálið kom upp, þar sem
hann sagði það vera alsiða meðal
þingmanna að niðurlægja aðra þing-
menn með slíku orðbragði.
„Hann sagði þetta án þess að
koma með nein gögn til stuðnings
eða nefna nein dæmi. Forsætisnefnd
tekur við því en vísar málinu frá á
þeim grunni að siðareglurnar geti
ekki metið sannleika ummælanna.“
Niðurstaða um brot hennar sé
fengin án þess að skoða hinn rök-
studda grun sem hún lagði fram, á
meðan ekki hafi verið talið mögulegt
að úrskurða í máli Sigmundar vegna
þess að þar væri ekki hægt að meta
sannleiksgildið. „Ég næ þessu ekki
alveg,“ segir Þórhildur Sunna.
Forsætisnefnd hafi ekki
verið samkvæm sjálfri sér
Ekki skýr fyrirmæli varðandi siðareglur þingmanna
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir
Rækjutogarinn Sóley Sigurjóns
GK-200 var dreginn til hafnar á Ak-
ureyri síðdegis í gær, en eldur kom
upp í vélarrúmi skipsins á föstu-
dagskvöld þegar það var um 90 sjó-
mílur norður af landinu. Rafmagns-
töflur skipsins brunnu og tjónið er
mikið, en engan sakaði af átta
manna áhöfn. Tveir voru þó hífðir
um borð í TF-LIF, þyrlu Gæslunnar.
Togarinn Múlaberg tók Sóleyju í
tog til Akureyrar, en ferðin sóttist
seint þar sem ekki tókst að hífa troll-
ið um borð eftir eldsvoðann. Þegar
tókst að koma ljósavélinni í gang
náðist þó að hífa upp trollið, en taug-
in slitnaði hins vegar einu sinni á
leiðinni.
Sex menn úr áhöfninni voru um
borð í Sóleyju Sigurjóns á leið í land,
meðal annars til þess að vakta
ástandið í skipinu á leiðinni.
Dregin í höfn eftir
rússíbanareið í kjöl-
far elds um borð
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Vélarvana Rækjutogarinn Sóley Sigur-
jóns komin að bryggju á Akureyri í gær.
Skannaðu kóðann
til að lesa frétta-
skýringu um aðild-
arferli Íslands.