Morgunblaðið - 20.05.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.05.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. MAÍ 2019 ESTRO Model 3042 L 164 cm Leður ct. 15 Verð 345.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is 50 ára Sævar ólst upp í Efra-Breiðholt en býr í Kópavogi. Hann er sjálfvirkniverkfræð- ingur að mennt frá Há- skólanum í Skövde og Háskólanum í Lough- borough og MBA frá HR. Hann er verkefnastjóri hjá Isavia í þróunar- og rannsóknadeild. Maki: Sigríður Sía Þórðardóttir, f. 1970, forstöðumaður hjá Advania. Börn: Sæunn Rut, f. 1990, og Viktor, f. 1997. Foreldrar: Birgir Ríkarðsson, f. 1950, vélvirki, bús. á Selfossi, og Guðný Harðardóttir, f. 1951, framkvæmdastjóri Strá ehf., bús. í Reykjavík. Sævar Birgisson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þarfir þínar eru mikilvægar og þú ættir að splæsa á þig því sem þig langar í. Láttu það ekki undir höfuð leggjast. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú átt í vandræðum með eitthvað sem þú fórst létt með hér áður fyrr. Gefðu þér því nægan tíma í að kryfja málin til mergjar. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gefðu kost á þér á framabraut- inni, sama hversu illa þér hefur gengið til þessa. Ef þú dekrar þig smá, muntu skyndi- lega finna fyrir auknum krafti og lífsvilja. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Næstu vikurnar munu sennilega verða þér hagstæðar í starfi og á vinnu- staðnum. Láttu neikvæðni annarra ekki draga úr þér því þú veist hvað þú þarft að gera. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ættir að brjóta upp daginn með einhverju óvæntu. Farðu gætilega og reyndu að láta þér nægja að koma sjón- armiðum þínum á framfæri. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er hætt við því að það komi upp einhvers konar óþægindi eða ósætti í vinnunni i dag. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú finnur löngun hjá þér til að gera eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til þess fyrr en síðar. Láttu ekkert egna þig upp. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur mikið að gera og skalt ekki fara út í stórar framkvæmdir á heimilinu. Vertu opin/n fyrir nýjum aðferð- um til að gera hlutina. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Mundu að deila velgengni þinni með þeim sem standa þér næst. Gættu þess bara að skoðanir þínar hvorki móðgi né gangi fram af fólki. 22. des. - 19. janúar Steingeit Notaðu daginn í að tryggja fram- tíð þína á hagnýtan og fjárhagslegan máta. Gamall vinur birtist aftur þér til mikillar ánægju. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér verður ljóst að ýmislegt þarf að lagfæra af heimilistækjum og öðru á heimilinu í dag. Leggðu áherslu á að um- gangast aðeins jákvætt fólk. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þig langar til að aðstoða einhvern í vinnunni í dag. Drífðu í því, það þurfa ekki að gera neinar stórbreytingar. verið inn í dæmin. Með því að fylgj- ast samtímis með augnhreyfing- unum má kortleggja skynjun, at- hygli og vinnsluminni viðkomandi. Þetta geri ég á tilraunastofu með dr. Árna Kristjánssyni, prófessor í HÍ, sem er einn af leiðbeinendum mín- um.“ minnið. Ein leiðin er að varpa flóknu og óvenjulegu tónefni, eins og því sem gjarnan einkennir nútíma- tónlist, á skjá og sýna bæði atvinnu- tónlistarmönnum og samanburðar- hópi af götunni. Þátttakendur fást við verkefni, eins og t.d. að koma auga á breytingar sem settar hafa P étur Jónasson fæddist 20. maí 1959 í Reykjavík en ólst upp í Bandaríkj- unum frá fjögurra mán- aða aldri til sex ára, nán- ar tiltekið Minneapolis, Worcester og Boston. Fjölskyldan bjó síðan í Reykjavík en flutti svo í Garðabæ. Pétur gekk í Laugarnesskóla og Barna- og Gagnfræðaskóla Garða- hrepps og varð stúdent frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð 1977. Pétur hóf nám í gítarleik níu ára að aldri hjá Eyþóri Þorlákssyni og var við framhaldsnám hjá Manuel López Ramos í Mexíkóborg eftir stúdentinn. Að loknu námi þar 1982 hlaut Pétur Sonning-heiðursstyrkinn danska til frekara náms á Spáni hjá José Luis González og í kjölfarið var honum veittur styrkur frá spænska ríkinu til þess að stunda nám hjá José Luis Rodrigo í Santiago de Compostela. Árið 1986 var hann einn af tólf gítarleikurum víðs vegar að úr heiminum sem valdir voru til þess að leika fyrir Andrés Segovia á sögu- frægu námskeiði sem haldið var í University of Southern California í Los Angeles. Pétur hefur komið fram sem ein- leikari í 25 löndum, gert útvarps- og sjónvarpsupptökur og leikið inn á hljómplötur og geisladiska, m.a. verk sem samin hafa verið sérstaklega fyrir hann. Hann var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 1990, fyrstur íslenskra einleik- ara. Pétur hefur einnig lagt mikla áherslu á kammertónlist og er m.a. gítarleikari CAPUT-hópsins og Riot Ensemble í London, hljómsveita sem báðar sérhæfa sig í flutningi á sam- tímatónlist. Pétur hefur verið kenn- ari við Listaháskóla Íslands frá 2004. Auk tónleikahalds og kennslu stundar hann nú rannsóknir í Lond- on og á Íslandi til doktorsgráðu frá Royal College of Music í London. „Þetta er rannsóknasetur sem heitir Centre for Performance Science þar sem stundaðar eru raunvísindarann- sóknir á þeim fjölmörgu og ólíku þáttum sem liggja að baki því að flytja tónlist sem og sviðslistir al- mennt. Ég er að rannsaka hvernig tónlistarmenn leggja flókna hluti á Pétur þarf sjálfur á góðu minni að halda því hann hefur verið að flytja 70 mínútna verk í niðamyrkri ásamt hljómsveit sinni, Riot Ensemble, að kröfu tónskáldsins Georgs Fried- richs Haas. Hljómsveitin frumflutti verkið, sem heitir Solstices, eða Sól- stöður, á Myrkum músíkdögum í vetur og mun leika það á tónlistar- hátíðum úti um allan heim næstu tvö árin. „Það þótti við hæfi að frum- flytja verkið á Íslandi. Nútíma- tónlist er oftast mjög flókin og þótt maður hafi nóturnar fyrir framan sig þarf maður samt að kunna hana utan að að stærstum hluta. Þegar við erum að flytja þetta verk sér maður ekki einu sinni hendurnar á sér. Það er fyrir tíu hljóðfæraleikara og því reynir mjög á minni og sam- hæfingu, en höfundur verksins er sannarlega einn af ca. fimm fremstu núlifandi tónskáldum heims.“ Pétur hefur verið í hljómsveitinni Riot Ensemble síðustu tvö ár. „Ég var beðinn að spila með þeim á tvennum tónleikum og eftir þá var mér boðið að gerast fastameðlimur Pétur Jónasson, gítarleikari og doktorsnemi – 60 ára Riot Ensemble Frá hljóðupptökum í Bretlandi um daginn fyrir nýjan geisladisk. Rannsakar eigið minni og annarra Gítarleikarinn Pétur slær á létta strengi að þessu sinni. 40 ára Selma er Reykvíkingur og ólst upp í Árbæjarhverfinu. Hún er með BA-gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands og er hönnunarstjóri (CD) hjá Pipar/TBWA og einn af eigendum fyrirtækisins og situr í stjórn þess. Maki: Árni Davíð Skúlason, f. 1977, for- stöðumaður hjá Arion banka. Börn: Tanja Kristín, f. 2002, Mikael Aron, f. 2006, og Hilmir Hrafn, f. 2011. Foreldrar: Þorsteinn Pálsson, f. 1954, og Kristín Árnadóttir, f. 1954, eigendur og starfsmenn fasteignafélagsins Laugar ehf. Þau eru búsett í Kjósarhreppi. Selma Rut Þorsteinsdóttir Til hamingju með daginn Sandgerði Óskírð El- ísdóttir fæddist 31. mars 2019 kl. 23.31. Hún vó 2.835 g og var 47 cm löng. Foreldrar hennar eru Sigrún Svava Thoroddsen og Elís Gunnþórsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.