Morgunblaðið - 20.05.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. MAÍ 2019
Sigurður Már Jónsson blaða-maður vekur í pistli sínum á
mbl.is athygli á viðtali Við-
skiptablaðsins við
David Witzer,
framkvæmdastjóra
Fossa markaða í
London. Sigurður
Már bendir á að
hann hafi aðra sýn
en oft sé viðruð hér
á landi, líkt og
Mervyn King, fyrrverandi banka-
stjóri Englandsbanka, sem sótti
Ísland heim á dögunum.
Hvorugur þessara manna, semhafa mikla reynslu af fjár-
málaheiminum, hefur miklar
áhyggjur af Brexit og Witzer seg-
ir í viðtalinu að óttinn við útgöngu
hafi verið ýktur og að áhyggjur
þeirra sem starfa í fjármálageir-
anum hafi minnkað töluvert.
Annað sem vekur athygli er aðWitzer telur ekki að krónan
sé til trafala, líkt og ýmsir þrá-
hyggjumenn innlendir halda fram.
Sigurður Már víkur að afstöðuhans til þessara mála: „Witzer
sagði til dæmis að fjárfestar setji
almennt ekki fyrir sig þá stað-
reynd að Ísland sé með sjálfstæða
mynt, krónuna, heldur eru það
fremur gjaldeyrishöft bæði til og
frá Íslandi sem hindrað hafa fjár-
festingar hingað. „Sveiflur á
gengi krónunnar eru ekki vanda-
mál. Miklum fjárhæðum er fjár-
fest í ýmsum gjaldmiðlum sem
sveiflast mikið. Það sem skiptir
fjárfesta mestu máli er frelsi og
sveigjanleiki til að geta gert það
sem þú vilt við gjaldmiðilinn og
það hefur verið vandamálið.“
Kveður hér við annan tón en við
eigum að venjast. Krónan er bara
ekki vandamálið í hinum alþjóð-
lega viðskiptaheimi. Nei, mikil-
vægara er að hafa regluverkið í
lagi og ekki íþyngjandi.“
David Witzer
Krónan er ekki
ein um að sveiflast
STAKSTEINAR
V
E
R
T
Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og
steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum.
- því að sumt virkar betur saman
Stundum
þarf tvo til
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fyrsti Þristurinn, af gerðinni DC-3/
C-47, í leiðangrinum D-Day Scuadr-
on, kom til Reykjavíkur í gær á leið
sinni frá Bandaríkjunum til Frakk-
lands til að taka þátt í athöfn í
Normandí 6. júní nk. Þann dag
verða 75 ár liðin frá innrásinni í
Normandi sem fjöldi DC-3-véla tók
þátt í. Líkt og kom fram í Morgun-
blaðinu fyrir helgi er mikill viðbún-
aður á Reykjavíkurflugvelli vegna
komu Þristanna. Alls fara 15 vélar
frá Bandaríkjunum til Frakklands
og koma hér við í áföngum. Annar
eins fjöldi bætist svo við frá Bret-
landi og meginlandi Evrópu. Von er
á 11 Þristum til Reykjavíkur í dag og
þrír koma síðar í vikunni.
Þá er von á Páli Sveinssyni frá
Akureyri í dag en Þristavinafélagið
vann í því um helgina að standsetja
vélina fyrir sumarið.
Fyrsti Þristur kom í
gær og 11 koma í dag
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mættur Einn Þristur kom frá Bandaríkjunum til Reykjavíkur í gær.
Um 600 sjálfboðaliðar frá slysa-
varnadeildum og björgunarsveitum
af öllu landinu komu saman á Egils-
stöðum um helgina en þar var haldið
11. landsþing Slysavarnafélagsins
Landsbjargar.
Við setningu þingsins var viður-
kenning félagsins, Áttavitinn, afhent
fyrir náið samstarf og mikilvægan
stuðning við störf Landsbjargar og
hlutu hann að þessu sinni fyrirtækin
Vodafone og Landsbankinn, Land-
helgisgæslan og rithöfundarnir Ótt-
ar Sveinsson og Steinar J. Lúðvíks-
son.
Fjölmörg mál varðandi starf fé-
lagsins voru rædd á þinginu og lagð-
ar línurnar fyrir komandi ár. Meðal
annars var Þór Þorsteinsson úr
Borgarfirði kjörinn formaður félags-
ins auk átta annarra í nýja stjórn
þess. Þá var einnig blásið til sér-
stakra Björgunarleika þar sem 18
harðsnúin lið kepptu í björgunar-
tengdum þrautum víða um Egils-
staði. sgs@mbl.is
Fengu Áttavitann
fyrir stuðninginn
Þór nýr formaður Landsbjargar
Áttavitinn Forsvarsmenn Landsbjargar afhentu Áttavitann. Frá vinstri:
Smári Sigurðsson, Bára Mjöll Þórðardóttir, Sigurður Ásgeirsson, Georg
Lárusson, Óttar Sveinsson og Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri
Landsbjargar. Steinar J. Lúðvíksson fékk einnig Áttavitann að þessu sinni.