Morgunblaðið - 20.05.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. MAÍ 2019
af ÖLLUM AEG VÖRUM ORMssOn
15-20%
afsLáttURDAGAR
15%
afsláttur
15%
afsláttur
15%
afsláttur
ÞVOTTAVÉLAR ÞURRKARAR UPPÞVOTTAVÉLARSkoðaðu úrvalið okkar á
*SENDUM FRÍTT Í VEFVERSLUNLágmúli 8 | S: 530 2800 þú fæRð HeiMiLstækin Hjá OkkUR
SKOÐAÐU TILBOÐIN OKKAR Á
LOKA
BAKSVIÐ
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Deildarstjórar allra deilda Þjóðleik-
hússins sendu í byrjun mánaðarins
yfirlýsingu til þjóðleikhúsráðs og
mennta- og menningarmálaráðuneyt-
isins til stuðnings Ara Matthíassyni
þjóðleikhússtjóra þar sem ánægju
með hans störf var lýst. Ari segir
stuðninginn mikla hvatningu til þess
að sækja um áframhaldandi stöðu
þjóðleikhússtjóra,
en skipunartíma-
bil hans rennur út
um áramót.
Stuðningsyfir-
lýsing deildar-
stjóra, sem Morg-
unblaðið hefur
undir höndum,
var send í kjölfar
þess að lögmaður
Félags íslenskra
leikara (FÍL)
sendi bréf á þjóðleikhúsráð og til ráð-
herra menningarmála vegna kvart-
ana í garð þjóðleikhússtjóra, meðal
annars vegna samskiptaerfiðleika. Sú
óánægja rataði í fjölmiðla í síðustu
viku þar sem meðal annars var greint
frá því að þess yrði krafist að farið
yrði ofan í samskipti þjóðleikhús-
stjóra við nokkra af þeim listamönn-
um sem fyrir hann hafa starfað.
„Það sem veldur okkar starfsfólki
helst áhyggjum er að utan vinnustað-
arins virðast vera raddir sem reyna
að tala starfsemina og stjórnanda
hennar niður og láta líta út fyrir að
hér sé ekki allt með felldu. Þvert á
móti upplifum við hér samheldni og
liðsanda á björtum tímum,“ segir
meðal annars í yfirlýsingunni. Þar
kom einnig fram að ekki væri aðeins
um huglægt mat að ræða, heldur
hefði slíkt verið stutt með könnunum
á meðal starfsfólks.
Allar niðurstöður yfir meðaltali
Ein af þeim könnunum sem hafa
verið framkvæmdar var lögð fyrir
snemma árs 2018 og náði til allra
starfsmanna þeirra stofnana sem
eiga aðild að Samtökum atvinnurek-
enda í sviðslistum. Fyrir utan Þjóð-
leikhúsið er þar um að ræða Borg-
arleikhúsið, Hörpu, Íslensku
óperuna, Íslenska dansflokkinn,
Menningarfélag Akureyrar, RÚV og
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Niðurstöðurnar í Þjóðleikhúsinu
sýndu meðal annars að 79% svarenda
töldu stjórnendur mæta óskum og
kröfum vel, samanborið við 67%
heildarmeðaltal allra stofnana í könn-
uninni. 3% töldu stjórnendur gera
það illa, samanborið við 10% að með-
altali. Þá sögðu 84% í Þjóðleikhúsinu
að stjórnendur tækju vel á krefjandi
vandamálum sem upp kæmu, saman-
borið við 68% að meðaltali. 4% töldu
þá gera það illa. Þá töldu 96% sam-
skipti á vinnustaðnum vera góð eða
batnandi, sem einnig er yfir meðal-
talinu.
„Spurningar sem sneru að stjórn-
un, samskiptum, starfsanda og líðan
starfsmanna komu mjög vel út og er
mikill styrkur fólginn í því fyrir
stofnunina,“ segir í könnuninni. Ari
segir niðurstöðurnar tala sínu máli.
„Auðvitað hefur maður áhyggjur
af því ef bara einum líður illa í
vinnunni, en á stórum vinnustað eins
og í Þjóðleikhúsinu, þar sem 300
manns starfa, gleðst ég yfir því að
þessi könnun gefi til kynna að
ástandið sé betra þar en í öðrum
sviðslistastofnunum á Íslandi,“ segir
Ari í samtali við Morgunblaðið. Hann
segist hafa skilning á því að óánægju
gæti hjá einhverjum, enda sé sam-
keppni mikil um að komast að. Hins
vegar sé oft erfitt að geta ekki svarað
fyrir sig.
„Því fylgja oft heilmikil vonbrigði
ef fólk fær ekki það tækifæri sem það
telur sig eiga að fá. Ég vissi það þeg-
ar ég tók við sem þjóðleikhússtjóri að
það myndu ekki allir elska mig jafn
mikið. En í störfum mínum hef ég
alltaf gætt að því að fara vel með það
vald sem mér er treyst fyrir og það
hefur engin kvörtun borist til mín
nokkurn tímann. Það er auðvitað
óþægilegt þegar verið er að bera
mann sökum en fær ekki að mæta
þeim,“ segir Ari.
Margt sem hvetur mig áfram
Ari var skipaður þjóðleikhússtjóri
til fimm ára frá árinu 2015, en emb-
ættið var auglýst til umsóknar á dög-
unum, frá og með 1. janúar á næsta
ári. Ari segir yfirlýsinguna sem
deildarstjórarnir sendu í byrjun
mánaðarins hafa komið við sig og sé
eitt af því sem hvetji hann til þess að
sækja um embættið á ný.
„Það eru margir margir þættir
sem hvetja mig til þess að sækjast
eftir því að fá að halda áfram. Aðsókn
í fyrra var meiri en hún hefur verið í
40 ár og fyrstu fjórir mánuðir þessa
árs eru stærri en í fyrra. Rekstur
Þjóðleikhússins hefur verið jákvæð-
ur allt frá því ég tók við og þegar mik-
il starfsánægja birtist í svona könn-
unum er það líka mikil hvatning,“
segir Ari Matthíasson þjóðleikhús-
stjóri við Morgunblaðið.
Þakklátur fyrir traustið
Ari Matthíasson sækist eftir því að gegna áfram embætti þjóðleikhússtjóra
Stuðningsyfirlýsing frá öllum deildarstjórum Samkeppni skapar óánægju
Morgunblaðið/Golli
Þjóðleikhúsið Skipað verður á ný í embætti þjóðleikhússtjóra til fimm ára frá og með 1. janúar á næsta ári.
Þjóðleikhúsráð tók fyrir þær kvartanir sem bárust frá
Félagi íslenskra leikara varðandi meintan samskipta-
vanda við Ara Matthíasson þjóðleikhússtjóra.
„Við ræddum þessi mál á fundi þjóðleikhúsráðs og ég
taldi að komin væri sátt. Þarna eru deilur á milli aðila og
best að þeir nái sátt. Að öðru leyti erum við ekki úr-
skurðaraðili í svona málum,“ segir Eyþór Arnalds, for-
maður ráðsins, og telur málinu lokið af hálfu þess. Allar
ábendingar séu teknar alvarlega, en ráðið sé fyrst og
fremst rekstrarstjórn Þjóðleikhússins og kannanir
bendi til þess að ánægja sé mikil meðal starfsfólks.
„Þessir mælikvarðar sem við höfum í höndunum eru allir jákvæðir,
bæði reksturinn og starfsandinn,“ segir Eyþór Arnalds formaður.
Allir mælikvarðar eru jákvæðir
ÞJÓÐLEIKHÚSRÁÐ TÓK KVARTANIRNAR FYRIR
Eyþór
Arnalds
Ari
Matthíasson
Borgarráð hefur heimilað umhverf-
is- og skipulagssviði Reykjavíkur-
borgar að bjóða út framkvæmdir við
endurnýjun gönguleiða í eldri hverf-
um á árinu 2019.
Alls verða endurnýjaðir um 2,1
kílómetrar af gangstéttum og öðrum
gönguleiðum. Verkefnin eru að hluta
til unnin í samstarfi við Veitur ohf.
vegna endurnýjunar á lagnakerfum.
Um er að ræða verkefni á eftirfar-
andi stöðum:
Reykjavíkurvegur að austan milli
Þorragötu og Fossagötu, Reykjavík-
urvegur 29-31, Skothúsvegur að
norðan á móts við Hljómskálann,
Hofsvallagata að vestan milli Sól-
vallagötu og Túngötu, Reykjavegur
að austan milli Engjateigs og
Laugateigs, Reykjavegur að austan
á móts við Laugardalsvöll, Nóatún
beggja vegna götu milli Laugavegar
og Hátúns, Esjugrund 42-50.
Ennfremur verða endurnýjaðir
stígar í einbýlishúsahverfi í Árbæ
frá Heiðarbæ að lóð Árbæjarkirkju
og stígur milli Völvufells 14 og 42
(samsíða Völvufelli að austan). Loks
Suðurgata að austanverðu frá
Sturlugötu að Melatorgi. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Gönguleiðir Framkvæmt verður
m.a. á Hofsvallagötu í sumar.
Borgin
endurnýjar
gönguleiðir
Samtökin Orkan okkar hafa kallað
til mótmæla gegn innleiðingu
þriðja orkupakka Evrópusam-
bandsins. Mótmælin eiga að fara
fram á Austurvelli á sama tíma og
umræða um málið hefst að nýju á
Alþingi kl. 16:30 í dag.
Í fréttatilkynningu sögðust
skipuleggjendur mótmælanna vilja
„undirstrika áskorun til þingmanna
um að hafna þingsályktuninni með
3. orkupakkanum eða að minnsta
kosti að fresta umræðunni til næsta
hausts og nýta tímann sem gefst til
að kynna málið betur“. Þetta er
þriðji mótmælafundurinn sem fer
fram gegn innleiðingu þriðja orku-
pakkans. Hinir voru síðastliðinn
laugardag og fimmtudag.
Þriðja orkupakk-
anum mótmælt á ný