Morgunblaðið - 20.05.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. MAÍ 2019
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Kosningum í Indlandi, stærsta lýð-
ræðisríki heims, lauk í gær. Kosn-
ingin hafði verið haldin í lotum á sex
vikna tímabili og útgönguspár benda
til þess að Narendra Modi forsætis-
ráðherra og flokki hans, Bharatiya
Janata (BJP), hafi tekist að ná end-
urkjöri.
Sumar útgönguspárnar benda til
þess að Modi hafi jafnvel tekist að
auka við ríflegan þingmeirihluta sinn
í kosningunni, en óvíst er hvort þeim
sé treystandi þar sem útgönguspár
úr fyrri indverskum kosningum hafa
gjarnan gefið skakka mynd af niður-
stöðunni. Aðrar útgönguspár gefa til
kynna að flokkur Modis muni tapa
þingsætum en samt viðhalda meiri-
hluta.
Mamata Banerjee, héraðsráð-
herra Vestur-Bengal og einn af and-
stæðingum Modis, sagðist lítið gefa
fyrir spárnar. „Ég treysti ekki út-
gönguspárslúðri,“ sagði hún í færslu
á twittersíðu sinni. „Ég hvet alla
stjórnarsndstöðuflokka til að vera
samheldnir, sterkir og hugprúðir.
Við munum heyja þessa orrustu
saman.“
Í aðdraganda kosninganna hefur
Rahul Gandhi, formaður indverska
Þjóðarráðsflokksins, gagnrýnt Modi
án afláts fyrir mikið atvinnuleysi á
Indlandi og fyrir að hafa reynst ind-
verskum bændum illa. Mikið hefur
verið um skítkast á milli þeirra
tveggja og hafa þeir kallað hvor ann-
an „fífl“ og „þjóf“ í kosningabarátt-
unni.
Í kosningaherferð sinni hefur
Bharatiya Janata-flokkurinn lagt
mikla áherslu á persónu Modis og á
varnarmál ríkisins. Til átaka kom á
milli Indlands og Pakistans í febrúar
þegar pakistanskir hryðjuverka-
menn drápu um 40 indverska lög-
reglumenn í Kasmír. Indland svaraði
árásinni með því að gera loftárásir á
skotmörk innan landamæra Pakist-
ans. Spenna milli landanna er því
mjög mikil.
Kosningarnar fóru að mestu frið-
samlega fram þar til á lokasprett-
inum. Til átaka kom á milli kjósenda
í Vestur-Bengal á miðvikudaginn og
tveimur sprengjum var kastað á
kosningastöð í Kolkata.
Útgönguspár segja Modi
líklegan til endurkjörs
Sex vikna löngum þingkosningum lýkur í Indlandi
AFP
BJP Indverjar bíða í röðum eftir að fá að kjósa í þorpi í Amritsar á síðasta
degi kosninga. Útgönguspár benda til þess að stjórnin haldi meirihluta.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Boðað hefur verið til þingkosninga í
Austurríki í september næstkom-
andi í kjölfar þess að samstarf
stjórnarflokkanna tveggja fór út um
þúfur. Sebastian
Kurz, kanslari
Austurríkis og
formaður austur-
ríska Þjóðar-
flokksins, sleit
stjórnarsamstarfi
sínu við austur-
ríska Frelsis-
flokkinn á laugar-
daginn vegna
hneysklismáls
sem snertir Heinz-Christian
Strache, formann Frelsisflokksins
og varakanslara í stjórn Kurz.
Fyrr í mánuðinum var lekið mynd-
bandi er sýndi Strache, árið 2017,
ræða við konu sem þóttist vera
frænka rússnesks olígarka. Í mynd-
bandinu sést Strache meðal annars
bjóða konunni samninga um ýmis
byggingarverkefni hjá ríkinu í skipt-
um fyrir fjárstyrk og jákvæða fjöl-
miðlaumfjöllun um Frelsisflokkinn
hjá tímaritinu Kronen Zeitung. Þá
lýsti Strache yfir áhuga á að um-
breyta austurrísku fjölmiðla-
umhverfi á sama hátt og gert hefur
verið í Ungverjalandi, en þar hafa
bandamenn Viktors Orbáns for-
sætisráðherra keypt marga helstu
fréttamiðla landsins.
Myndbandið leiddi til þess að
Strache sagði af sér sem varakansl-
ari á laugardaginn. Í afsagnarræðu
sinni bar hann fyrir sig að hafa verið
ölvaður í upptökunni og hafa því ekki
gætt orða sinna. Strache sagðist
hafa verið leiddur í gildru í mynd-
bandinu og hét því að lögsækja þá
sem hefðu tekið samræðurnar upp
og lekið þeim.
Myndbandið kann að hafa verið
kornið sem fyllti mælinn í samstarfi
Þjóðarflokksins og Frelsisflokksins
ef marka má ummæli Kurz á laug-
ardaginn. „Eftir myndbandið frá því
í gær er nóg komið,“ sagði Kurz á
blaðamannafundi. Hann átti fund
með Alexander Van der Bellen, for-
seta Austurríkis, í gær til þess að
ræða um þingrof og hvenær kallað
skyldi til nýrra kosninga.
Van der Bellen mælti með því að
kosningar yrðu haldnar í byrjun
september og bætti við: „Þetta eru
skammarlegar myndir og enginn
ætti að þurfa að skammast sín fyrir
Austurríki. Við verðum að byggja
upp traust á ný. Það verður aðeins
gert með nýjum kosningum.“
Stjórnarslit
í Austurríki
Myndbandsleki sprengir ríkisstjórn
Sebastian Kurz
Að minnsta kosti
12 særðust í
Kaíró eftir að
sprengja sprakk
í námunda við
rútu í gær. Flest-
ir farþegarnir
sem slösuðust
voru túristar frá
Suður-Afríku en
einnig slösuðust
fjórir Egyptar í
bíl sem ekið var á eftir rútunni.
Rútan var á leið með ferðamenn-
ina frá flugvellinum til píramíd-
anna í Gísa þegar sprengjan
sprakk.
Fæstir farþeganna eru alvarlega
særðir en þrír þeirra voru sendir á
sjúkrahús eftir sprenginguna.
Sprengjan sprakk við girðingu í
kringum nýtt forngripasafn sem á
að opna á næsta ári. Safnbygg-
ingin varð ekki fyrir skemmdum í
sprengingunni.
EGYPTALAND
12 rútufarþegar
særðir í sprengingu
Kaíró Rúta varð
fyrir sprengingu.
Svisslendingar
kusu í þjóðar-
atkvæðagreiðslu
í gær að sam-
þykkja nýja
strangari skot-
vopnalöggjöf í
samræmi við
breyttar reglur
hjá Evrópusam-
bandinu. Um
tveir þriðju kjós-
enda samþykktu nýju löggjöfina í
atkvæðagreiðslunni. Nýju lögin
gera stjórnvöldum auðveldara fyrir
að rekja vopn í þjóðlægum gagna-
grunnum og setja fyrirvara á eign
hálfsjálfvirkra og sjálfvirkra riffla.
Sviss er ekki í Evrópusambandinu
en margir landsmenn óttuðust að
aðild landsins að Schengen-svæðinu
yrði stefnt í hættu ef landið tæki
ekki upp sambærilega skotvopna-
löggjöf og nágrannaríkin. Skot-
vopn er að finna á um helmingi
svissneskra heimila.
SVISS
Svisslendingar
herða byssulög
Sviss Byssusýn-
ing í Luzern.