Morgunblaðið - 20.05.2019, Page 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. MAÍ 2019
✝ Stefán Frið-bjarnarson
fæddist á Siglufirði
16. júlí 1928. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans 2.
maí 2019.
Foreldrar hans
voru hjónin Frið-
björn Níelsson frá
Hallandi í Eyjafirði,
skósmiður, kaup-
maður og bæjar-
gjaldkeri, og Sigríður Stefáns-
dóttir frá Móskógum í Fljótum,
húsmóðir. Systkini Stefáns:
Níels, f. 1918, d. 2012, Kjartan, f.
1919, d. 2003, Anna, f. 1921, d.
2017, Kolbeinn, f. 3.10. 1931, d.
2000, og Bragi, f. 1935, d. 1990.
Fyrri kona Stefáns var Hulda
Sigmundsdóttir, skrifstofu-
maður og húsmóðir. Þau giftust
8.9. 1949. Foreldrar hennar
voru Sigmundur Sigtryggsson
verslunarmaður á Siglufirði og
kona hans Margrét Erlends-
dóttir húsmóðir. Hulda lést 9.12.
1972.
Börn Stefáns og Huldu eru 1)
Sigmundur, fv. skattstjóri, f. 4.6.
1949, maki Elísabet Kristins-
dóttir stuðningsfulltrúi. Sonur
Elísabetar og uppeldissonur Sig-
mundar er Kristinn Ingvarsson,
maki Birna Einarsdóttir, dóttir
þeirra er Anna Elísabet. Sonur
Sigmundar er Arnar, maki Úlf-
hildur Óttarsdóttir, dætur
þeirra Brynhildur, Brynja Dögg
og Aðalheiður Ósk. Dætur Sig-
mundar og Elísabetar: a) Hulda,
maki Davíð Ellertsson, þeirra
börn eru Hlynur og Helga Lilja,
b) Helga, maki Einar Andri
maki Lára Sveinsdóttir fram-
haldsskólakennari. Dætur
þeirra: a) Björg, maki Atli
Þórðarson, börn þeirra Freyja
Margrét og Kolbeinn Andri.
Fyrir átti Björg soninn Aron
Gunnar, b) Jóhanna, maki Jón
Ingi Þrastarson, dóttir þeirra er
Lára Ingibjörg, c) Lilja, d)
María.
Stefán ólst upp á Siglufirði,
lauk gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskóla Siglufjarðar og
verslunarprófi frá Verzlunar-
skóla Íslands 1948. Stefán var
aðalbókari Siglufjarðarkaup-
staðar 1951-62, sat í bæjarstjórn
á Siglufirði 1958-74, var bæjar-
ritari 1962-66 og bæjarstjóri
1966-74. Stefán var ritstjóri bæj-
arblaðsins Siglfirðings 1948-51
og 1966-74.
Stefán réðst til Morgunblaðs-
ins þegar hann flutti til Reykja-
víkur 1974 og starfaði þar sem
blaðamaður til 1998. Hann var
lengi umsjónarmaður þingfrétta
en sinnti einnig stjórnmála-
skrifum. Hann hafði verið
fréttaritari Morgunblaðsins á
Siglufirði frá 1950-74.
Stefán sat í bæjarráði Siglu-
fjarðar og ýmsum nefndum á
vegum bæjarfélagsins, í stjórn
Fjórðungssambands Norðlend-
inga 1966-75 og var formaður
þess 1966-1969, í fulltrúaráði
Sambands íslenskra sveitar-
félaga 1967-70, í stjórn Hafna-
sambands sveitarfélaga 1969-71
og í stjórn Ríkisspítalanna á ár-
unum 1978-95, varaformaður
stjórnar frá 1983. Stefán var í
Lionsklúbbi Siglufjarðar en eftir
að hann kom til Reykjavíkur var
hann virkur í frímúrarahreyf-
ingunni. Stefán var sæmdur
riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu 1996.
Útför Stefáns verður gerð frá
Digraneskirkju í Kópavogi í
dag, 20. maí 2019, klukkan 13.
Einarsson, dóttir
þeirra er Elísabet
Edda. 2) Kjartan,
blaðamaður, f. 1.1.
1951, maki Guðrún
K. Sigurðardóttir,
fv. deildarstjóri.
Þeirra börn eru a)
Stefán, maki Elise
Mattingly, sonur
þeirra er André
Kjartan. Fyrir átti
Stefán soninn Thor.
b) Sigríður Huld, sem er látin. 3)
Sigríður, framhaldsskólakenn-
ari, f. 22.6. 1954. Dóttir hennar
er Rósa Elín Davíðsdóttir, maki
Renaud Durville. Synir þeirra
eru Sindri Louis og Máni Théo-
dore.
Síðari kona Stefáns var Þor-
gerður Sigurgeirsdóttir, starfs-
maður Raunvísindastofnunar
Háskólans. Þau giftust 5. júlí
1974. Foreldrar Þorgerðar voru
Sigurgeir Sigurðsson, skipstjóri
á Ísafirði, og kona hans Ingi-
björg Þ. Jóhannsdóttir. Þor-
gerður lést 6. 3. 2015.
Synir Þorgerðar: 1) Hörður
Svavarsson jarðfræðingur, f.
8.5. 1951, d. 26.3. 1991, maki Ell-
en Árnadóttir, fyrrverandi
læknaritari. Börn þeirra a) Hin-
rik Þór, maki Guðbjörg Ósk-
arsdóttir, börn þeirra eru Hild-
ur Eva, Brynjar Ingi og Andri
Þór, b) Árni Már, maki Guðrún
Ósk Sigurjónsdóttir. Synir
þeirra eru Hörður Már og Rúnar
Ingi c) Gerður Björk, maki
Kjartan Ólafsson, börn þeirra
Hörður Sölvi og Harpa Ingi-
björg. 2) Gunnar Svavarsson
garðyrkjumaður, f. 29.9. 1953,
Í dag kveðjum við systkinin
pabba okkar eftir langa og nána
samvist, en hann var aðeins 25
ára þegar við vorum öll í heim-
inn kominn. Á milli hinna fögru
fjalla Siglufjarðar ólst pabbi
upp í fjölmennum systkinahópi
og þar bjó hann fyrri hluta æv-
innar. Á Siglufirði varð bæjar-
skrifstofan hans meginstarfs-
vettvangur 1951-1974, sem
aðalbókari, bæjarritari og bæj-
arstjóri. Lungann af þessum
tíma var hann bæjarfulltrúi fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn og lengi
ritstjóri Siglfirðings – málgagns
sjálfstæðismanna. Þessi stjórn-
málaafskipti urðu okkur ekki til
stórra vandræða en hafa sjálf-
sagt á stundum reynt á
mömmu, en síminn í holinu
heima hringdi æði oft. Árið
1974, tveimur árum eftir andlát
mömmu, flutti pabbi suður og
gerðist blaðamaður á Morgun-
blaðinu. Áður hafði hann verið
fréttaritari Morgunblaðsins allt
frá árinu 1950 og spannaði
starfsleg samfylgd hans með
blaðinu því hartnær hálfa öld.
Ekki átti pabbi langt að sækja
blaðaskrif því Friðbjörn afi okk-
ar stofnaði ásamt öðrum fyrsta
blaðið á Siglufirði, blaðið Fram.
Morgunblaðsárin voru pabba
hjartfólgin og á blaðinu eign-
aðist hann samstarfsmenn sem
voru honum kærir alla tíð.
Siglufjörður sem fóstraði
okkur í æsku var annar en í dag
og einangrun meiri. Lestur var
þá meiri dægrastytting. Pabbi
var mikill lestrarhestur og las
drjúgt allt fram undir það síð-
asta. Heima fórum við á bóka-
safnið til að sækja honum bæk-
ur. Oft fylgdi ekki með hvaða
bækur ætti að fá, þær valdi
Gísli bókavörður. Hann vissi
hvað pabba hugnaðist – eða
jafnvel vildi láta hann lesa. Önn-
ur dægradvöl var brids og var
töluvert spilað á heimilinu. Auk
mömmu og pabba var móðurafi
okkar áhugasamur um spilið en
fjórða mann vantaði. Vorum við
bræður því snemma fengnir að
spilaborðinu og lærðum ungir
þetta spil allra spila. Á jóladag
var hefð að spila brids hjá Frið-
bjarnarsonum og brids á jóla-
dag hefur haldist nær samfellt
síðan, eða í hartnær 70 ár. Þá
spiluðu pabbi og seinni kona
hans Þorgerður (Gerða) með
eldri borgurum í Gullsmáran-
um. Einnig höfðu þau lengi um-
sjón með bókaklúbbi eldri borg-
ara. Pabbi átti létt með að kasta
fram vísum við ýmis tækifæri
og samdi meðal annars söng-
lagatexta fyrir karlakórinn Vísi
á Siglufirði.
Heima við var pabbi ekki
mikið fyrir verklegt stúss. Við-
halds- og garðvinna kom því í
hlut okkar systkinanna. Síðar,
eftir að hann og Gerða byggðu
sumarbústað í Kjósinni, hófst
hins vegar tími mikillar gróður-
og trjáræktar sem hann hafði
yndi af. Sumarbústaðurinn var
nefndur Móskógar, en við þann
bæ í Fljótum var móðurætt
pabba oft kennd. Bústaðurinn
var yndisstaður hans og Gerðu
og dvöldu þau þar langtímum
saman á sumrin, sérstaklega
eftir að þau hættu að vinna.
Gott er að minnast stundanna
þar og gönguferðanna þangað,
fyrst úr Mosfellssveitinni yfir
Svínaskarð og síðan frá Fossá í
Hvalfirði og niður með Sand-
felli.
Pabbi var ljúfur og dagfars-
prúður. Vildi láta lítið fyrir sér
fara þrátt fyrir stjórnmálaaf-
skipti fyrri hluta ævinnar. Hann
kveður nú síðastur systkina
sinna, en Anna Margrét (Bíbí),
eina systirin, féll frá fyrir hálfu
öðru ári á 97. aldursári. Á milli
þeirra var sérstakur strengur
sem styrktist enn frekar hin
síðari ár.
Við börnin hans, tengdabörn
og hin fjölmörgu barna- og
barnabarnabörn söknum hans
og minnumst með hlýju og
þakklæti.
Sigmundur, Kjartan
og Sigríður.
„Nafni minn!“ sagði hann
stoltur í bragði. Ein af fyrstu
minningum mínum um Stefán
afa er þessi kveðja hans og
hann heilsaði mér eins í hvert
skipti sem við hittumst.
Eftir að við fluttumst suður
frá Siglufirði varð afi blaðamað-
ur á Mogganum í Aðalstræti.
Oft þegar ég var í bænum sem
smágutti heimsótti ég afa á rit-
stjórnina, gjarnan til að betla
smápening. Hann tók mér vel,
stóð upp léttur í spori, fiskaði
seðil upp úr vasa á köflótta
jakkanum og rétti mér. Síðan
fór hann að vinna að einhverju
sem virtist vera mjög mikil-
vægt.
Heimili afa og ömmu Gerðu í
Drápuhlíðinni var staflað bókum
og á sumum jólum sá ég tvö ein-
tök af sömu bókinni. Afi var
fróður og skemmtilegt að
spjalla við hann um daginn og
veginn, sérstaklega þann veg
sem við vorum á öndverðum
meiði um: pólitík og trúmál.
Hann var rökfastur og málefna-
legur, stundum þrjóskur en líka
var stutt í gamansemina. Hann
bar alltaf virðingu fyrir róttæku
ruglinu í barnabarninu. Hann
hafði skýra hugsun og var vel
máli farinn. Ég sakna þess að
hafa ekki erft þessa góðu eig-
inleika hans.
Afi var íhaldsmaður í bestu
merkingu þess orðs. Það gladdi
hann þegar ég settist að í
Bandaríkjunum á tíunda ára-
tugnum því hann var hrifinn af
bandarískum stjórnmálum á
þeim tíma.
Það var alltaf gaman að fá
kort og tölvupóst frá Stefáni afa
sem var oft skemmtilega form-
legur, með fréttatilkynningum
um veðrið, ástandið í stjórnmál-
um og efnahag Íslands.
Þrátt fyrir smátt vaxtarlag
fyllti hann herbergið með ein-
stakri blöndu af persónuleika og
stíl. Hann var virkur í stjórnum,
félagsstarfi og bræðrafélögum
og fyrsta skipti sem ég sá mann
í kjólfötum var afi á leið á Frí-
múrarafund. Hann var flottur í
tauinu, næmur fyrir samsetn-
ingu og blandaði áreynslulaust
saman litum og munstrum. Afi
var síungur en þykkt svart hár-
ið hvítnaði á haustdögum ævi
hans.
Þegar ég kvaddi afa í síðasta
sinn fyrir ári síðan vöktu at-
hygli mína leðurskórnir hans í
forstofunni. Vandaðir og vel
lúnir og ósjálfrátt sá ég líkingu
með þeim og afa, nafna mínum.
Stefán Kjartansson.
Elsku afi, nú ert þú búinn að
kveðja. Við þekkjum ekki lífið
án þín, þú hefur alltaf verið til
staðar fyrir okkur.
Í dag býr sorg og söknuður í
hjörtum okkar en við þökkum
fyrir þann tíma sem við áttum
með elsku afa sem við kveðjum í
dag, allar góðu minningarnar
sem tengjast honum, gleðina og
væntumþykjuna í okkar garð.
Síðustu dagar hafa verið erf-
iðir en ljúfar og góðar minn-
ingar um elsku afa hafa hlýjað
okkur um hjartarætur. Minn-
ingar sem við munum búa að
alla tíð. Ekki verða minningar
um afa rifjaðar upp án þess að
nefna líka ömmu Gerðu, enda
voru þau samhent. Afkomenda-
hópur þeirra er orðinn stór og
leið þeim best þegar stórfjöl-
skyldan var samankomin og
kærleikur þeirra til okkar
leyndi sér ekki. Við minnumst
helst stundanna þegar öll fjöl-
skyldan kom saman í Drápu-
hlíðinni, síðar í Gullsmáranum
og sumarbústaðnum í Kjósinni
sem var sælustaður þeirra og
annað heimili á sumrin. Við
systur minnumst þess með gleði
í hjarta hve gaman var að fara
með ömmu og afa í bústaðinn og
oftar en ekki byrjaði morgunn-
inn á því að keyra í Kaffi Kjós
og kaupa Morgunblaðið, ekki
gat jú dagurinn byrjað án þess
að fletta í gegnum blaðið. Fyrir
barn var sumarbústaðurinn og
nærumhverfi hans algjör fjár-
sjóður. Toppurinn var að fá að
gista og dvelja þar í nokkra
daga í sveitakyrrðinni. Allt var
spennandi, hvort heldur að
hjálpa til við gróðurinn, vaða í
ánni, ganga niður að fossi, fara í
lautarferðir eða kveikja í
brennu.
Einn fastra punkta í tilver-
unni er jólaboðið hjá ömmu og
afa. Þá hittist stórfjölskyldan og
naut þess að eiga góða stund
saman. Afi byrjaði á jólahug-
vekju og vangaveltum um lífið
og tilveruna. Eftir hugvekjuna
var sungið Heims um ból, ljósin
slökkt og kveikt á kertum frá
austri til vesturs. Þessi stund er
afar hátíðleg og ómissandi hluti
af jólunum.
Afi var fróðleiksfús og las sér
til gagns og gamans fram til
þess síðasta auk þess sem hann
orti vísur fyrir hin ýmsu tilefni.
Hann hafði mikinn áhuga á
þjóðmálum og fylgdist vel með
öllum fréttum. Þá hafði hann
gaman af að rekja ættir sínar
með hjálp Íslendingabókar og
rakti sig til landnámsmanns
sem land nam fyrir norðan.
Fjölskyldan var afa mikilvæg
og var hann afar stoltur af sínu
fólki. Hann sýndi því mikinn
áhuga sem við tókum okkur fyr-
ir hendur, hvort sem það var
nám, vinna eða íþróttir. Hann
vissi því alltaf hvernig gangur
mála var hjá hverjum og einum
þó að afkomendahópurinn væri
stór. Eftir að langafabörnin
komu í heiminn áttu þau hug
hans allan. Við erum þakklátar
fyrir þann tíma sem við fengum
með afa og ekki síður þakklátar
fyrir að börnin okkar fengu að
kynnast þeirri væntumþykju og
hlýju sem stafaði frá honum. Við
munum búa að því alla tíð.
Afi, við eigum eftir að sakna
þín mikið og það er erfitt að
hugsa til þess að faðmlögin og
samverustundirnar verði ekki
fleiri. Það er sárt að sakna og
syrgja en við munum geyma
ljúfar minningar um þig í hjört-
um okkar og halda minningu
þinni á lofti með því að segja
langafabörnunum sögur um þig.
Með þessum orðum kveðjum
við þig, elsku afi, takk fyrir allar
samverustundirnar, þú munt
ávallt lifa í hjörtum okkar. Hvíl í
friði.
Hulda og Helga
Sigmundsdætur.
Elsku afi okkar, nú ertu far-
inn frá okkur og viljum við
þakka þér fyrir allar samveru-
stundirnar. Við erum afar þakk-
látar fyrir þær minningar sem
þú hefur gefið okkur og er erfitt
að sætta sig við að þú sért far-
inn en við vitum að þú ert ham-
ingjusamur við hlið ömmu því
ástfangnari hjón þekkjum við
ekki. Þið amma tókuð virkan
þátt í lífi okkar, hugsuðuð um
okkur þegar við veiktumst, vor-
uð skemmtileg og uppátækja-
söm í leik og ævintýrum með
okkur. Þið höfðuð alltaf áhuga á
því sem við vorum að gera í okk-
ar lífi og sýnduð okkur gríð-
arlegan stuðning í öllu sem við
tókum okkur fyrir hendur.
Margar af minningum okkar
tengjast samverustundum með
ykkur í sumarbústaðnum ykkar,
Móskógum. Þar nutum við tím-
ans með ykkur ömmu að hjálpa
til við gróðurræktina, gefa hest-
unum brauð, skoða fuglana og
hreiðrin þeirra, gefa þeim að
borða, spila krokket og leika
okkur upp á háalofti. Þú varst
einstaklega laginn við að semja
lög og vísur og sömdum við
barnabörnin með ykkur ömmu
lög.
Þegar þið fluttuð í Gullsmár-
ann spiluðum við oft leiki á pútt-
vellinum þar sem kappið var
mikið og ekkert gefið eftir. Þeg-
ar við hugsum um Gullsmárann
þá stendur upp úr árlega jóla-
boðið sem þið amma hélduð, þar
kom fjölskyldan saman og átti
góða stund. Jólahugvekjur þínar
vöktu okkur til umhugsunar um
lífið og heiminn en þú komst
ávallt einstaklega vel að orði. Í
veislunum fengum við nóg af
kræsingum og haldin var hin ár-
lega spurningakeppni sem þú og
amma stýrðuð. Það er alls ekki
sjálfgefið að fjölskylda eins og
okkar haldi góðu sambandi og
hittist á hverju ári til að fagna
jólunum saman. Þetta eigum við
allt ykkur ömmu að þakka og
munum við gera allt sem við
getum til að halda í þessi tengsl
og þennan jóladag á komandi
árum en við getum ekki ímynd-
að okkur jólin án hans eða fjöl-
skyldunnar.
Elsku afi, þú munt alltaf eiga
stað í hjarta okkar, svo einstak-
lega umhyggjusamur og hjarta-
hlýr. Við erum þakklátar fyrir
að börnin okkar, barnabarna-
börnin þín hafi fengið að hitta
þig og kynnast þér. Við þökkum
þér kærlega fyrir allar þær
góðu stundir sem við áttum
saman í gegnum tíðina. Hvíldu í
friði.
Hinsta kveðja
Ljóðin þér léku á tungu
og lifnaði ferskeyttur bragur,
er fuglar í fjörunni sungu
og fjörðurinn lognkyrr og fagur.
Látinn er ljóðanna smiður,
lífs til í birtunnar heimi.
Hugur minn bænina biður:
Bróðir minn, Drottinn þig geymi.
(Stefán Friðbjarnarson.)
Takk fyrir allt, elsku afi.
Björg, Jóhanna,
Lilja og María.
Daginn eftir andlát afa sat ég
við tölvuna og reyndi að vinna
en hugurinn var fullur af minn-
ingum um hann. Ég gerði því
það sem við nútímamanneskjur
gerum iðulega – ég gúglaði nafn
afa og fékk þá upp predikun
sem hann hélt í Siglfirðinga-
messu í Grafarvogskirkju 25.
maí 2008. Þar tengir afi þá hefð
að brott fluttir Siglfirðingar
hugsi alltaf heim til Siglufjarðar
við það að „við förum öll að lok-
um heim til þess staðar, sem
okkur er fyrirbúinn, samkvæmt
trú okkar. Þangað getum við
ekkert haft með okkur, utan
það, sem við höfum öðrum gert
eða gefið“.
Þessi orð afa eiga vel við.
Hann gaf okkur fjölskyldunni
sannarlega mikið og mér er efst
í huga þakklæti – þakklæti fyrir
að hafa átt afa að í 38 ár. Afa
sem alltaf var til staðar, umhug-
að um velferð, heilsu og ham-
ingju allra barnabarna og lang-
afabarna, afa sem var alltaf að
gera öðrum gott og gefa. Hon-
um var umhugað um, alveg
fram í það síðasta, að hann
gleymdi engum afmælisdegi
sinna 22 langafabarna. Hann
fylgdist vel með þeim og átti í
góðu sambandi við syni mína,
sérstaklega þann eldri, Sindra.
Þegar við komum í heimsókn
vildi hann iðulega gauka ein-
hverju góðgæti að honum og
fannst mamman heldur ströng
að leyfa honum ekki að fá
súkkulaðirúsínur. Hann dró
gjarnan fram mynd af þeim
saman og mér finnst ég heyra
hann segja „við erum vinir, við
Sindri“ er ég skrifa þessi orð.
Afi var ekki bara góður afi og
langafi, hann var líka góður og
gegnheill maður sem mátti ekk-
ert aumt sjá. Þau amma ferð-
uðust mikið til útlanda og hann
vildi gefa öllum betlurum sem
urðu á vegi þeirra. Hann keypti
líka alla happdrættismiða
styrktarfélaga og neitaði engum
sölumanni sem bankaði upp á.
Afi var alltaf flottur í tauinu
– í jakkafötum og með vasaklút
í brjóstvasanum, í fínum skyrt-
um með bindi. Á unglingsárum
mínum gekk ég um tíma í gam-
alli svartri skyrtu af honum og
fannst ég ansi töff. Hann hafði
gaman af skarti og gekk með
hringa og men, oftar en ekki frí-
múraraskart. Sterkust er samt
minningin um afa í stígvélum og
flíspeysu að vinna í lóðinni í
Móskógum, sumarbústað þeirra
ömmu, síld og rjómaskyr með
súkkulaði í ísskápnum, rak-
spíralykt í lofti og tif í eldhús-
klukkunni.
Kærleiksboðskapurinn var
honum mikilvægur og hann
hefði örugglega orðið góður
prestur. Í lok farsæls starfsfer-
ils sem blaðamaður náði hann
að sameina þetta tvennt með
hugvekjum sem hann skrifaði í
sunnudagsblað Morgunblaðsins
í nokkur ár.
Afi kvaddi í byrjun maí, á
árstíma sem hann hélt upp á
þar sem gróðurinn vaknar aftur
til lífsins á vorin eða eins og
hann orðaði það í áðurnefndri
predikun „þegar líf íslenska
gróðurríkisins er leyst úr klaka-
böndum dauðans“ sem sýnir
okkur hvað lífið er mikið krafta-
verk.
En nú er afi kominn heim og
eftir lifa gerðir hans og gjafir.
Rósa Elín.
Stefán Friðbjarnarson Sigl-
firðingur var móðurbróðir okk-
ar.
Hann var til sóma alls staðar
þar sem hann fór, greindur ljúf-
lingur. Stefán var pólitískur en
umtalsfrómur, húmoristi, en
ekki hæðinn, ekki hávaxinn, en
stór í sniðum.
Það var alltaf gaman að hitta
hann en erfitt að kveðja, sér-
staklega nú, hinstu kveðju.
Anna Margrét, móðir okkar,
lést fyrir skömmu, 96 ára, og
var hress fram undir það síð-
Stefán
Friðbjarnarson
Sálm. 9.11
biblian.is
Þeir sem þekkja
nafn þitt treysta
þér því að þú,
Drottinn, bregst
ekki þeim sem til
þín leita.