Morgunblaðið - 20.05.2019, Síða 23

Morgunblaðið - 20.05.2019, Síða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. MAÍ 2019 veita náttúrulega vörn gegn bakteríum í munninum Tvíþætt sink og arginín Dregur úr tannskán Styrkir glerunginn Dregur úr tannskemmdum Frískari andardráttur Dregur úr blettamyndun Dregur úr viðkvæmni Dregur úr tannsteini Fyrirbyggir tannholdsbólgu NÝTT Veruleg fækkun baktería á tönnum, tungu, kinnum og gómi eftir samfellda notkun í fjórar vikur. BYLTING FYRIR ALLANMUNNINN Heildarvörn fyrir tennur, tungu, kinnar og tannhold Frábær vörn í 12 tíma „ÞAKKA ÞÉR FYRIR AÐ VEKJA ATHYGLI MÍNA Á ÞESSU. MÉR HEFUR YFIRSÉST ÞETTA.” „EF ÞÚ KAUPIR GULLFISK FÆRÐU MAURAÆTU Í KAUPBÆTI.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... kraftakarlinn þinn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann NÆST Í „Mestu óvinir náttúrunnar” … BERST KÖNGULÓ VIÐ RISAVESPU FRÁBÆRT! ÉG LAGÐI FIMM FLUGUR UNDIR! ÉG ER HRÆDDUR! ÉG ER HÉR … ÞÚ GETUR STUÐST VIÐ MIG! ER ÞÉR SAMA ÞÓ ÉG LENDI Á ÞÉR? sem ég og þáði. Þetta er ung hljóm- sveit skipuð ungu tónlistarfólki sem er algjörlega í fremstu röð og frá- bært að vinna með þeim.“ Helstu áhugamál Péturs eru skíði og hlaup. „Ég var skíðakennari í Kerlingarfjöllum í tíu ár og keppti sem unglingur. Það sem veitir mér einna mesta gleði er að vera á skíð- um og svo hef ég hlaupið talsvert mikið í gegnum tíðina og uppáhalds- vegalengdin er 10 kílómetrar.“ Fjölskylda Eiginkona Péturs er Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir, f. 30.3. 1965, leikskáld og listrænn ráðu- nautur Borgarleikhússins. For- eldrar hennar voru hjónin Guð- mundur Pálsson, f. 22.8. 1927, d. 5.8. 1987, leikari, og Sigríður Hagalín, f. 7.12. 1925, d. 26.12. 1992, leikkona. Þau voru búsett í Reykjavík. Fyrri eiginkona Péturs er Sigur- laug Ingibjörg Lövdahl, f. 4.4. 1958, skrifstofustjóri framkvæmda- og tæknisviðs Háskóla Íslands. Börn: 1) Arnar, f. 3.1. 1988, gít- arleikari og húsgagnasmiður, maki: Halldóra Rut Baldursdóttir leik- kona. Sonur þeirra er Jökull Pétur, f. 2.7. 2018; 2) Sigríður Hagalín, f. 24.10. 2001, nemi. Alsystkini Péturs eru Hallgrímur, f. 26.5. 1953, taugalífeðlisfræðingur, bús. í Södertälje í Svíþjóð; Lárus, f. 25.2. 1968, læknir, bús. í Garðabæ, og Margrét, f. 9.4. 1969, sagnfræð- ingur og heimildakvikmyndafram- leiðandi, bús. í Garðabæ. Foreldrar Péturs eru hjónin Jón- as Hallgrímsson, f. 6.9. 1931, læknir og prófessor, og Anna Margrét Lár- usdóttir, f. 1.5. 1934, fv. flugfreyja og húsmóðir. Þau eru bús. í Garða- bæ. Pétur Jónasson Daníelína Kristín Brandsdóttir húsmóðir á Ísafirði Sveinbjörn Kristjánsson kaupmaður á Ísafirði Anna Kristín Sveinbjörnsdóttir húsmóðir í Reykjavík Anna Margrét Lárusdóttir húsmóðir í Garðabæ og fv. flugfreyja Lárus G. Jónsson skókaupmaður í Reykjavík Magdalena Margrét Gunnlaugsdóttir húsmóðir í Reykjavík Jón Lárusson skókaupmaður í Reykjavík Sigríður Sigurðardóttir húsmóðir í Eystri- Dalbæ á Síðu Guðrún Auðunsdóttir húsmóðir á Prestbakka á Síðu Ingólfur Guðbrandsson kórstjóri og ferðamála- frömuður Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari Unnur María Ingólfsdóttir fiðluleikari Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari Lúðvíg Lárusson kaupmaður í Reykjavík Lárus Guðjón Lúðvígsson kaupmaður í Reykjavík Karólína Lárusdóttir myndlistarmaður Guðríður Sigurðardóttir húsmóðir í Eintúnahálsi Magnús Hansvíumsson bóndi í Eintúnahálsi á Síðu Þóranna Magnúsdóttir húsmóðir í Reykjavík Hallgrímur Jónsson húsvörður í Reykjavík Halldóra Eiríksdóttir húsmóðir í Prestbakkakoti Jón Einarsson bóndi í Prestbakkakoti á Síðu, V- Skaft. Úr frændgarði Péturs Jónassonar Jónas Hallgrímsson læknir í Garðabæ Hér koma fyrst þrjár fuglalimr-ur eftir Pál Jónasson í Hlíð. Fyrst er „Steinklappan“: Klappstýru þessa ég þekki (þó að hún klappi mér ekki) Á kvöldin í leyni klappar hún Steini, ég fæ ekki „kökk heldur kekki“. Svo er „Brunahaninn hrekkj- ótti“: Ég hitt’ann við Hollidey inn og í hana þeim barasta finn, enga ærlega taug, því sá andskoti flaug, svona beint fyrir bílinn minn. Og loks „Hrægammurinn“: Kúastóð gammurinn gleypti og Grímsbæ í eftirrétt keypti, og austur í Flóa hann át nokkra spóa, og bónda sem byggði og steypti. Ólafur Stefánsson segir á Leir, að nú sé þjóðin gersamlega búin að fá kolefnin á heilann og enginn mígi standandi án þess að berja sér á brjóst og heitstrengi að kolefnis- jafna og bjarga heiminum: Hann taldist oft vera tæpur með heyin, svo tók ekki’ að vera með hrút, en kolefnisjafnaði krakkagreyin og kom þannig sléttur út. Pétur Stefánsson yrkir þessa björtu vísu á Boðnarmiði: Lifi gleði. Lifi táp og fjör. Lifi góðvild. Burt með háð og spott. Lifi tryggð og lifi bros á vör, og lífið verður fallegt, blítt og gott. Gunnar J. Straumland yrkir „enn eina regnvísuna“: Ég veit að þetta er vol og tuð, þú vafalaust telur oss freka, en verðurðu ekki, góði Guð, að gera’ eitthvað við þessum leka? Hér er limra eftir Karl Ágúst Úlfsson: Haraldur hannaði róbóta sem hófu svo framleiðslu skóbóta en leiddist svo mikið það líf, – fyrir vikið lömdu þeir Harald til óbóta. Haraldur frá Kambi orti, – hvergi smeykur: Þó ég fari á fyllirí og fái skelli stend ég alltaf upp á ný og í mig helli. Gamall húsgangur að lokum: Mér er illt í munninum, mæðan þjáir lúna. Brennivíns af brunninum bergja fáir núna. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Fuglalimrur og kolefnisjöfnun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.