Morgunblaðið - 20.06.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán.–Fös. 09–17
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins
Í svari forsætisráðherra við fyrir-spurn Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar um fjölda starfsmanna á
launaskrá forsætis-
ráðuneytisins nú og á
síðustu árum kemur
fram að veruleg
fjölgun hefur orðið í
ráðuneytinu.
Árið 2016 vorustarfsmennirnir
44 en nú eru þeir 57.
Þær skýringarsem helstar eru
nefndar í svari for-
sætisráðherra eru að
fimm starfsmenn
hafi flust til ráðu-
neytisins með tilfærslu jafnréttismála,
og að auk þess hafi skrifstofustjóri
verið skipaður yfir þá skrifstofu. Þá
hafi tvö stöðugildi flust til ráðu-
neytisins frá Alþingi.
Samkvæmt þessu hafa sjö störfflust til ráðuneytisins vegna til-
flutnings verkefna sem þýðir að þar
fyrir utan hefur fjölgað um sex starfs-
menn á þremur árum.
Það er mikil fjölgun í ekki stærristarfsmannahópi.
Fyrirtæki landsins hafa þurft aðhagræða verulega og segja upp
fólki. Innan fyrirtækja eru tilfærslur
á verkefnum ekki nýttar til að fjölga
yfirmönnum í leiðinni, þvert á móti.
Þá sýna þær umræður sem nústanda yfir um ríkisfjármálin að
ríkið þarf að spara.
Við þær aðstæður væri eðlilegt,ekki síst eftir þá útþenslu sem
verið hefur, að forsætisráðuneytið
gengi á undan með góðu fordæmi.
Tækifæri til
hagræðingar
STAKSTEINAR
Sigmundur
Davíð
Gunnlaugsson
Katrín
Jakobsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Tillaga forsætisnefndar borgar-
stjórnar Reykjavíkur að nýjum
reglum um skráningu fjárhagslegra
hagsmuna borgarfulltrúa og trún-
aðarstörf utan borgarstjórnar var
lögð fram á fundi borgarstjórnar í
fyrradag. Tillagan grundvallast á
reglum sem Alþingi hefur sett um
sama efni. Meirihlutinn lagði þó til á
fundinum að reglurnar gengju
lengra og næðu til óbeinnar eignar-
aðildar borgarfulltrúa að fyrir-
tækjum. Meirihlutinn og fulltrúi
Sósíalistaflokks Íslands samþykktu
að vísa tillögunni til meðferðar
borgarráðs.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, Miðflokksins og Flokks
fólksins gagnrýndu þessa afgreiðslu
og vinnubrögð og ummæli forseta
borgarstjórnar. Í bókun borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins er sagt að
nýsamþykktar siðareglur fyrir
kjörna fulltrúa hafi verið brotnar í
þessu máli með óundirbúinni breyt-
ingartillögu og notkun á ræðustóli
borgarstjórnar í dylgjur sem lítill
sómi hafi verið af. Sjálfstæðismenn
lögðu áherslu á að þeir hefðu verið
tilbúnir að samþykkja tillögur for-
sætisnefndar, með fyrirvara um
samþykki Persónuverndar.
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgar-
fulltrúi Pírata, sem stjórnaði síðasta
borgarstjórnarfundi sínum, segir að
ákveðið hafi verið að leggja fram
drög sem byggðu að mestu leyti á
reglum Alþingis en koma fram með
breytingartillögu á fundinum um að
auka enn frekar gagnsæi varðandi
eignarhald. Það hafi verið talið skýr-
ara en að fela þá tillögu inni í regl-
unum frá Alþingi.
Dóra segir að ákveðið hafi verið að
vísa tillögunum til borgarráðs til
fullnaðarafgreiðslu vegna krafna
minnihlutans um að bíða eftir mati
Persónuverndar.
Fjárhagsreglum vísað til borgarráðs
Breytingartillaga um frekara gagnsæi Minnihlutinn gagnrýnir vinnubrögð
Svo bar til að það rigndi í Reykja-
vík síðdegis í gær. Ekki var það
nú mikið því 0,2 millimetrar mæld-
ust í sjálfvirka mælinum við
Veðurstofu Íslands þegar lesið var
af honum klukkan 16 í gærdag.
Þar með er úrkoman í júní í
Reykjavík komin í 2,9 millimetra.
Þetta er það minnsta í júní hingað
til á þessari öld. Fyrri rigning
kom 2. og 15. dag mánaðarins.
Þetta er gríðarleg breyting frá
júní í fyrra. Þá mældist úrkoman
88,4 millimetrar allan mánuðinn,
eða 75% umfram meðallag. En
júní í ár er bara ekki sá þurrasti,
heldur er hann líka einn sá sólrík-
asti.
Nokkur dæmi eru um þurra
júnímánuði á síðustu öld, sam-
kvæmt upplýsingum Trausta Jóns-
sonar veðurfræðings. Minnst var
úrkoman árið 1971. Þá var hún
ekki orðin nema 0,2 millimetrar
19. júní og varð ekki nema 2,1 mm
í öllum mánuðinum. Það er þurr-
asti júní sem vitað er um í Reykja-
vík. „Júní 2019 mun því ekki slá
hann út,“ segir Trausti.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Sólbað Júnímánuður hefur það sem af er verið einn sá sólríkasti.
Þurrkurinn í júní mun
ekki slá metið frá 1971