Morgunblaðið - 20.06.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 20.06.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGARMIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna- yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum, mikið er af söfnum og menningarviðburðir í borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd- aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI WROCLAW TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Prag Gdansk, Krakow, Varsjá, Bratislava Vínarborg og Brugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga- rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur hefur veitt heimild til að vinna deiliskipulagstillögu fyrir Frakkastígsreit, þ.e. lóðirnar Laugaveg 33, 33a, 33b, 35 og 37 og Vatnsstíg 4 á kostnað lóðarhafa og að mestu í samræmi við nýjustu til- lögur, dagsettar 24. maí 2019. Lóð- arhafi er félagið Leiguíbúðir ehf. Reiturinn, sem skipulagið nær til, afmarkast af Hverfisgötu í norðri, Laugavegi í suðri, Vatnsstíg í vestri og Frakkastíg í austri. Deiliskipu- lagstillagan er unnin af Zeppelin arkitektum og felst hún í að hús á Laugavegi 33 og 33b verði færð í átt að upprunalegu útliti, hús á Laugavegi 35 verði hækkað um eina hæð og timburhluti sama húss verði endurbyggður og hækkaður um eina hæð, hús á Laugavegi 33a og Vatnsstíg 4 verði rifin og ný byggð í þeirra stað, uppbyggingu á Lauga- vegi 37 o.fl. Húsið Vatnsstígur 4 hefur staðið mannlaust og með byrgða glugga í áratug og ástand þess hefur óneitanlega verið lýti á miðborginni. Húsið var byggt árið 1901 og er 360 fermetrar. Það komst í fréttirnar árið 2009 vegna þess að hústökufólk hafði þar aðsetur. Fólkið var fjar- lægt með lögregluvaldi í apríl það ár, alls 22 einstaklingar. Á milli fjörutíu og fimmtíu lögreglumenn í óeirðabúningum tóku þátt í aðgerð- inni. Síðar kviknaði í húsinu í tví- gang og skemmdist það talsvert. Í greinargerð Einars Skúla Hjartarsonar, sérfræðings Hús- verndarstofnunar Íslands, dags. 24. september 2018, kemur fram að við nánari skoðun telji hann ekki verj- andi að gera upp Vatnsstíg 4, svo illa er það farið, en ítrekar að þegar húsið verður tekið niður skuli allt nothæft „tekið til handargagns“. Við Laugaveg, í nýjum og göml- um húsum, er gert ráð fyrir gisti- starfsemi á efri hæðum og því gert ráð fyrir að innangengt verði milli húsanna. Á jarðhæð er gert ráð fyr- ir verslun og þjónustu. Hús á Laugavegi 33 og 35 verða gerð upp, en húsið á Laugavegi 35 verður jafnframt lengt til austurs og hækkað um eina hæð. Auk þess er gert ráð fyrir fjögurra hæða við- byggingu með þakverönd á baklóð Laugavegs 35, þar sem fyrirhug- aðar eru u.þ.b. 33 hótelíbúðir, sem er fækkun úr 50-55 smáíbúðum skv. tillögu í ágúst 2018, en einnig er gert ráð fyrir hótelíbúðum í þeim húsum sem standa við Laugaveg og verða gerð upp. Hámarkshæð bak- húss á Laugavegi 35 hefur verið lækkuð og hæðum fækkað úr 6 í 4 hæðir frá því sem áður var áform- að. Rök umsækjenda fyrir því að gera ráð fyrir gististarfsemi á efri hæðum við Laugaveg eru að kostn- aður við að gera upp húsin verði það mikill að engin önnur starfsemi myndi standa undir honum. Einnig telja þeir að ekki sé heppilegt að vera með íbúðir sem snúa að Laugavegi vegna ónæðis frá Lauga- veginum. Rökin fyrir gististafsemi í nýbyggingu á baklóð Laugavegs 35 eru að þar sé þröngt um húsið, en vesturhlið þess upp við gamla stein- húsið á Laugavegi 33b, en austur- hliðin snýr að þröngu porti við Laugaveg 37 og því yrðu íbúðirnar þar mjög dimmar og henti ekki sem heilsársíbúðir. Í umsögn skipulagsfulltrúans í Reykjavík er lagt til við skipulags- og samgönguráð að fallist verði á röksemdir lóðarhafa vegna gisti- starfsemi, en þó sé mikilvægt að í greinargerð á deiliskipulags- uppdrætti verði ítarlegar rökemdir fyrir starfseminni. Einnig þurfi að sýna lóðahönnun sem miðar að því að skapa mannvænlegt og fallegt umhverfi. Ráðið samþykkti tillög- una með breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa frá 27. maí. Erindið kemur til lokaafgreiðslu í borgarráði. Morgunblaðið/Jakob Fannar Í dag Húsin Laugavegur 33 til 37, framhús við Vatnsstíginn. Tölvumynd/Zeppelin Eftir breytingu Svona mun húsaröðin við Laugaveg líta út. Morgunblaðið/sisi Ekki til prýði Vatnsstígur 4 hefur verið mannlaus í áratug. Loks uppbygging á „vandræðareit“  Nýtt deiliskipulag unnið fyrir Frakkastígsreit  Ónýt hús við Vatnsstíg verða rifin og ný hús byggð í staðinn  Vatnsstígur 4 var í fréttum fyrir réttum áratug þegar hústökufólk tók húsið yfir Tölvumynd/Zeppelin Til framtíðar Þannig hugsa arkitektarnir sér að Vatnsstígurinn muni líta út þegar húsin tvö hafa verið rifin og ný hús reist í þeirra stað. Þessi „vandræðareitur“ í miðborg Reykjavíkur mun gjörbreytast til hins betra við þetta. Morgunblaðið/Júlíus Vatnsstígur 2009 Lögreglumenn í óeirðabúningum brutu sér leið inn. Morgunblaðið/Eggert Eldur á Vatnsstíg 4 Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar eldur kom upp í húsinu í júlí 2009. Töluverðar skemmdir urðu á húsinu, sem var mannlaust.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.