Morgunblaðið - 20.06.2019, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019
Uppblásið fortjald
Frábært
verð
Allar nánari upplýsingar og pantanir í síma 863 4449 og 778 2294,
hjolhysi.com og á netfangið kriben@simnet.is
hjolhysi.com • Bæjarhraun 24, Hafnarfirði • Opið mánud.-föstud. kl. 11-18 og laugard. kl. 12-16
TRIGANO
Lima 410
Eftirfarandi aukahlutir fylgja með:
• Dúkur í fortjald
• Þak klæðning-Roof lining
• Pumpa, svunta, stangir o.fl.
159.000
Flókna lagadanskan ekkert mál
Aríel játar að dönskukunnátta sín
hafi ekki verið sú besta þegar hann
sótti um námið. „Ég var gjörsamlega
háður dönskukunnáttu konunnar
minnar í umsóknarferlinu, enda var
kunnátta mín í faginu svipuð og ann-
arra Íslendinga sem standast stúd-
entspróf og tala síðan ensku það sem
eftir er,“ segir Aríel kíminn.
Danskan hafi hins vegar komið
furðufljótt, og hjálpaði þar ekki síst
til sjö vikna herþjálfunarbúðir í upp-
hafi námsins, þar sem bara var töluð
danska, rétt eins og í öðrum hlutum
námsins reyndar.
Hann bætir við til gamans að hann
hafi í bóklega náminu reynst merki-
lega glúrinn í hafrétti, og naut Aríel
fyrir hvað tæki við,“ segir Aríel og
bætir við að Hrefna hafi séð tæki-
færi til þess að leggja sitt af mörkum
til dönskukennslu á Íslandi eftir að
hafa alist upp að hluta til í Kaup-
mannahöfn. Hún innritaði sig því í
kandídatsnám í dönskum kennslu-
fræðum (cand. pæd. dansk didaktik)
við Háskólann í Árósum.
Á þeim tíma reri Aríel sem annar
stýrimaður á frystitogaranum Vigra
og hafði verið þar í einhver þrjú ár
og líkaði mjög vel, en fann að hann
vildi einnig ná lengra á sínu sviði.
„Það má segja að þetta hafi verið
það tækifæri sem mér bauðst til þess
að komast lengra og sérhæfa mig
innan fagsins og mennta mig í ein-
staklega hagnýtu stjórnunarnámi,“
segir Aríel.
þar leiðsagnar heimsþekkts lagapró-
fessors innan þess geira. „Loka-
prófið var fimm klukkustunda skrif-
legt próf og fékk ég sérstaklega að
vita það eftir á hvað lagaleg flækju-
danska lægi vel fyrir mér,“ segir
Aríel.
Axarsköft Aríels í tungumálinu
voru þó einnig nokkur í upphafi
námsins og lenti hann í spaugilegu
atviki, sem nú er orðið að skemmti-
sögu á skólaskipunum. „Ég átti að
stjórna setningu gúmbáts frá skips-
hlið, en hafði misskilið leiðbeiningar
eitthvað því þegar ég átti að fyrir-
skipa „lad gå forhaler“, sem er fram-
bandið sem tengist í gúmbátinn,
hrópaði ég á yfirliðþjálfann „lad gå,
for helvede!“ við mikinn fögnuð við-
staddra,“ segir Aríel.
Þar sem Aríel hafði þá þegar lokið
skipstjórnarnámi, var hann settur í
bekk með þremur öðrum með sama
menntunarbakgrunn, og segir Aríel
að í raun hafi námið snúist að miklu
leyti að læra upp á nýtt hvernig ætti
að stjórna skipi og áhöfn þar sem allt
önnur lögmál gildi um það hvernig
herskip sigla frá þeim sem til dæmis
eru á togurum. „Þar vilja menn helst
sigla eins langt frá grynningum og
öðrum skipum og hægt er, en verk-
efni herskipa krefjast gjarnan þess
að þau sigla mjög nálægt hvert öðru
og á slóðum sem eru hættulegar ör-
yggi venjulegra skipa.“
Einn hluti námsins var að sigla
meðfram vesturströnd Grænlands á
eftirlitsskipinu Lauge Koch, en það
er útbúið til að ryðja sér braut í
gegnum ísinn. Aríel segir það magn-
aða upplifun að sigla á slíku skipi.
„Maður fær mikla virðingu fyrir
þeim kröftum sem knýja skip
áfram,“ segir Aríel, en Grænlands-
ferðin var bæði löng og ströng, og
fengu skipverjar einn daginn
óvenjulegt „landvistarleyfi“ á
miðjum firði, og spókuðu þeir sig á
ísnum.
Kom honum þægilega á óvart
Í flestum skólum, og ekki síst her-
skólum, skapast ýmsar hefðir og
venjur, og er útskriftarathöfnin þar
engin undantekning. Aríel segir að
útskriftarárgangurinn hafi farið í
sitt fínasta púss með stingsverði og
tilheyrandi upp í Amalíuborg, þar
sem Margrét Þórhildur tók á móti
útskriftarnemunum, hélt stutta
ræðu og þakkaði þeim fyrir með því
að taka í höndina á þeim, en einungis
liðsforingjar fá að njóta þess heiðurs
við útskrift. „Daginn eftir var svo
formleg útskriftarathöfn í her-
akademíunni við Svanemøllen undir
ljúfum blæstri lúðrasveitar sjóhers-
ins, hvar ég var sleginn til Premier-
lautinants eða yfirlautinants á ís-
lensku.“
Þegar heim var komið til Íslands
segir Aríel að Hrefna Marín, eigin-
kona hans, hafi sannfært hann um að
klæða sig í einkennisbúninginn und-
ir þeim formerkjum að þau myndu
hitta vin sinn og fjölskyldu í lautar-
ferð í Guðmundarlundi, og um leið
yrði farið í fjölskyldumyndatöku.
„Þegar á staðinn var komið leist mér
ekki á blikuna miðað við bílafjöldann
á bílastæðinu, því mér leið hálf-
apalega að þramma um í fullum
skrúða,“ segir Aríel.
Hrefna rak hann hins vegar af
stað inn í lundinn, og þar blasti við
honum skemmtileg sjón. „Þar beið
mín stór hópur fjölskyldumeðlima
og vina minna sem hrópaði „óvænt
ánægja“, mér öllum að óvörum. Ég
get aðeins fyllst þakklæti og fékk
þarna staðfestingu á því hvað það er
gott fólk í kringum okkur, en ekki
síður hvað eiginkona mín er ráðagóð
og kemur mér sífellt á óvart,“ segir
Aríel um þessa skemmtilegu uppá-
komu.
Stuðningurinn ómetanlegur
Í þessu samhengi segir Aríel að
hann hefði ekki getað stundað námið
án þess mikla stuðnings sem Hrefna
Marín veitti honum. „Það var ótrú-
lega mikilvægt að vera hamingju-
samlega giftur, og það má segja að
það að vera erlendis með skert
tengslanet hafi fært okkur nær
hvert öðru. Ég og konan mín urðum
enn betri vinir og við áttum ómet-
anlegar stundir með börnunum okk-
ar,“ segir Aríel „Vissulega var mikið
álag á konunni minni þegar ég var
fjarverandi vegna námsins en sem
betur fer voru börnin í bestu mögu-
legu höndum. Það er leitun að jafn-
dugmikilli, röggsamri og góðri konu
og Hrefnu Marín. Hún nefnilega
sinnti ekki aðeins heimili og börnum
í fjarveru minni, heldur einnig
mastersnámi sínu við Árósaháskóla
með glæsibrag,“ segir Aríel.
En nú að loknu námi eru Aríel og
fjölskylda komin aftur til Íslands, og
hann mun hefja störf hjá Land-
helgisgæslunni um næstu mán-
aðamót. „Ég hlakka mikið til að
hefja störf og geta skilað til baka
þeirri þjálfun sem Danir hafa gefið
mér, bæði með því að þjóna Íslandi
og með því að stuðla að góðu sam-
starfi á milli ríkjanna tveggja,“ segir
Aríel að lokum.
Ljósmynd/Malthe Kjær Bendtsen
Landvistarleyfið Eftir erfiða törn á eftirlitsskipinu Lauge Koch fékk áhöfnin ,,landvistarleyfi“ í miðjum firði á
vesturströnd Grænlands, þar sem Aríel fékk þessa mynd tekna af sér fyrir framan skipið.
Ljósmynd/Jónatan Atli Sveinsson
Fjölskyldumyndin Aríel er hér í fullum liðsforingjaskrúða í Guðmundar-
lundi ásamt Hrefnu Marín Sigurðardóttur, eiginkonu sinni og börnunum
þeirra, frá vinstri: Eldur Hrafn, Esja Marín og Jökull Orri Aríelsbörn.
Vantaði meiri áskorun
Aríel Pétursson útskrifaðist úr sjóliðsforingjaskóla
danska hersins Hefur störf hjá Landhelgisgæslunni
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Ég vildi finna hvað ég gæti reynt
mikið á eigin þolrif,“ segir Aríel
Pétursson, en hann útskrifaðist ný-
verið sem yfirlautinant frá sjóliðs-
foringjaskóla danska hersins. Hann
segir námið hafa verið bæði krefj-
andi og skemmtilegt, og að það hafi
gert honum kleift að kynnast sjálf-
um sér betur sem stjórnanda.
Tildrög þess að Aríel valdi sér
þetta óvenjulega nám tengdust fjöl-
skyldunni. „Eiginkona mín, Hrefna
Marín Sigurðardóttir, var í kennara-
námi við Háskóla Íslands og þegar
leið að útskrift úr grunnnáminu lá