Morgunblaðið - 20.06.2019, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019
& 585 8800
Áratuga reynsla og þekking í fasteignaviðskiptum
Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864 8800
Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865 8515
ERTU Í SÖLU-
HUGLEIÐINGUM
Hafðu samband
og við aðstoðum þig
VIÐTAL
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Hinn 28. júní verða nákvæmlega 100
ár liðin frá því að Haraldur Júlíusson
opnaði verslun sína á Sauðárkróki í
timburhúsi að Aðalgötu 22. Allan
þennan tíma hefur verslunin verið á
sama stað því á árunum 1929-1930
var steinhús byggt utan um timbur-
húsið, timburhúsið síðan rifið innan
úr steinhúsinu og steinhúsið síðan
stækkað árið 1944 með því að bæta
einni hæð ofan á verslunina.
Þarna hefur fjölskyldan búið nær
allan tímann. Hinn 14. mars 1930
fæddist sonur Haraldar og Guðrúnar
Bjarnadóttur, hann Bjarni, og dótt-
irin María fæddist 17. apríl árið eftir.
Þau systkini tóku snemma til hend-
inni í versluninni en ung að árum
fluttist María frá Króknum, giftist
Guðfinni Einarssyni, útgerðarmanni
í Bolungarvík, og bjó þar lengstum.
María lést 18. desember 2016.
Bjarni tók við versluninni af föður
sínum, fyrst árið 1959 en alfarið eftir
að Haraldur lést árið 1973. Guðrún
hafði fallið frá 1971, eftir baráttu við
krabbamein.
„Pabbi glímdi við veikindi þarna
árið 1959 og ég þurfti þá að aðstoða
hann meira í versluninni. Ég kom
hérna inn og fann síðan ekki útidyrn-
ar, hef verið hérna meira og minna
síðan,“ segir Bjarni við blaðamann er
við setjumst niður á kontórnum í
versluninni.
Draumur Haraldar rættist
Eins og fram kemur hér til hliðar á
síðunni stendur til að halda veglega
upp á 100 ára afmælið laugardaginn
29. júní næstkomandi.
„Það er ekki annað hægt en að
halda smáveislu, þetta er há tala.
Mér finnst líka að þau bæði eigi það
vel skilið,“ segir Bjarni og á þar við
foreldra sína og fyrirmyndir, Harald
og Guðrúnu, sem ruddu brautina og
héldu uppi merki verslunarinnar í
áratugi.
Áður en Haraldur stofnaði versl-
unina fyrir 100 árum hafði hann verið
verslunarstjóri hjá Kristni P. Briem í
ein sjö ár. Hans draumur var að opna
eigin verslun, sem varð að veruleika
sumarið 1919, er hann var orðinn 34
ára. Haraldur seldi 20 kindur sem
hann átti, fyrir heilar 2.000 krónur,
sló lán hjá vinum sínum á Akureyri
og nurlaði saman öllu sparifénu.
Hann keypti lítið timburhús á Sauð-
árkróki, sem gekk undir nafninu
Baldur, var reist 1881 og hafði m.a.
hýst úra- og gullsmíðaverkstæði
Franks Michelsens, Gistihúsið Bald-
ur og þar áður barnaskólann á
Króknum. Haraldur hafði rekið
verslun sína í nokkur ár þegar ákveð-
ið var að stækka og reisa steinhúsið.
Í Skagfirðingabók Sögufélags
Skagfirðinga, nr. 37 frá árinu 2016,
ritar Sölvi Sveinsson m.a. í gagn-
merkri grein sinni um kaupmanns-
hjónin, Harald og Guðrúnu:
„Það gegnir furðu að honum skyldi
takast að öngla saman fé fyrir húsinu
og einhverjum lager, því að ekki
dugði að opna verslun ef ekkert væri
framboðið af vörum. Og hann átti
tímadag þarna: náði að kaupa inn
vörur sínar fyrir gengisfall sem
dundi yfir um haustið.“
Ekki bara verslun
Það er með sanni góður árangur að
ná að reka verslun í heila öld, á tím-
um mikilla samfélagsbreytinga.
Verslun Haraldar Júlíussonar á sér
merka sögu og tengist ekki aðeins
verslun með vörur af ýmsu tagi, held-
ur einnig samgöngum og flutningum
Þau eiga skilið að fá veislu
Verslun Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki fagnar 100 árum Bjarni Har hefur rekið verslun-
ina í 60 ár Afmælisfagnaður 29. júní og öllum boðið „Kannski enda ég sem safnvörður hérna“
Bjarni Haraldsson og fjölskylda
hans ætla að halda upp á tíma-
mótin laugardaginn 29. júní nk.
þegar slegið verður upp veislu
við verslunina, þar sem allir eru
boðnir velkomnir frá kl. 13-16. Í
boði verða léttar veitingar,
ávörp og skagfirsk tónlist, undir
stjórn Stefáns R. Gíslasonar.
Umfram allt vill Bjarni að þetta
verði góðra vina fundur, þar
sem fólk komi saman undir
fögrum, skagfirskum himni.
Verslunin verður opin á með-
an á afmælishátíðinni stendur
en Bjarni vill alls ekki láta
íþyngja sér með gjöfum eða
blómum. Frekar vill hann að
gestir styrki Sauðárkrókskirkju
með því að leggja inn á reikning
hennar, 0310-22-000980, kt.
560269-7659.
Gestir styrki
kirkjuna
AFMÆLIÐ 29. JÚNÍ
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Kaupmaður Bjarni Haraldsson í verslun sinni á Sauðárkróki, sem faðir hans stofnaði fyrir 100 árum.
Ljósmyndir/Úr einkasafni
Verslunin Farþegarúta af gerðinni Chevrolet, í eigu Haraldar Júlíussonar,
fyrir utan verslunina við Aðalgötu á Sauðárkróki í kringum 1942. SJÁ SÍÐU 28
„Það þurfti allt í senn dirfsku, var-
kárni og útsjónarsemi til þess að
opna verslun á Króknum árið 1919
og það fór allt
saman hjá Har-
aldi Júlíussyni,“
segir Sölvi
Sveinsson, sem
ritaði ítarlega
grein í Skagfirð-
ingabók um hjón-
in Harald og
Guðrúnu Bjarna-
dóttur. „Hann
keypti Baldur,
þar sem fyrsti barnaskóli Króksara
hafði verið til húsa, og opnaði búð.
Staðsetningin var frábær, margir
áttu leið niður á bryggju fram hjá
búðinni og hinum megin var slát-
urhús þar sem ýmsir áttu erindi.
Haraldur fékk lán til að kaupa
nokkurn lager og síðan opnaði
hann búðina og rak hana farsæl-
lega til dauðadags með dyggri að-
stoð Guðrúnar sinnar og Bjarna,
sonar þeirra. Hann hafði mörg járn
í eldi, seldi olíu út um allar sveitir,
keypti ull og lét vinna úr henni
sokkaplögg og vettlinga, seldi
bændum dráttarvélar og hey-
vinnsluvélar og rak bílaútgerð svo
nokkuð sé nefnt. Og hann var
greiðvikinn. Ýmis heimili fengu
væna aðréttu fyrir jólin. Sumar nót-
ur voru aldrei rukkaðar. Haraldur
var líka félagsmálamaður mikill
þótt ekki væri hann í forsvari
þeirra. Hann átti þátt í stofnun
Náttúrulækningafélags Íslands,
kom við sögu Tindastóls, skátanna,
skákfélags, útgerðarfélags – sem
kostaði hann stórfé – svo fátt eitt sé
talið. Hann barst lítið á, undi sér
best heima, sívinnandi. Þau voru
einkar samhent hjón, Haraldur og
Guðrún, og Bjarni og María, börn
þeirra, voru þeim hjálpsöm.
Bjarni tók við búðinni eftir for-
eldra sína og stendur enn vaktina
og heldur í gamlar hefðir. Klukkan
nákvæmlega tólf læsir hann versl-
uninni, setur lykilinn á vísan stað,
og fær sér að borða, opnar svo
endurnærður kl. eitt. Búðin er sam-
komustaður alla morgna og þar eru
þjóðmálin viðruð og vandamál
leyst. Bjarni er sama ljúfmennið og
foreldrar hans voru og mér er sagt
að enginn hafi selt fleiri happ-
drættismiða fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn en Bjarni!“
Sumar nótur
aldrei rukkaðar
Sölvi Sveinsson
Sölvi þekkir vel sögu verslunarinnar