Morgunblaðið - 20.06.2019, Side 32

Morgunblaðið - 20.06.2019, Side 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019 m. Lítil og létt loftpressa. Kemur með fjórum stútum sem passa á dekk, bolta, vindsængur og fleira. REDLITHIUM-ION™ rafhlaða. Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðu Verð 16.900 kr. (án rafhlöðu) M12 Inflator Alvöru loftpressa fráMilwaukee vfs.is VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 20. júní 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.11 126.71 126.41 Sterlingspund 157.95 158.71 158.33 Kanadadalur 93.9 94.44 94.17 Dönsk króna 18.895 19.005 18.95 Norsk króna 14.425 14.509 14.467 Sænsk króna 13.263 13.341 13.302 Svissn. franki 126.13 126.83 126.48 Japanskt jen 1.1635 1.1703 1.1669 SDR 173.89 174.93 174.41 Evra 141.11 141.89 141.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.2146 Hrávöruverð Gull 1344.55 ($/únsa) Ál 1719.0 ($/tonn) LME Hráolía 60.93 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Velta á aðal- markaði Kaup- hallar Íslands nam 908 milljónum króna í gær. Þar af nam velta með bréf Marels 421 milljón króna og jafngilti það 46,4% af heildar- veltunni. Í þeim viðskipum hækkuðu bréf félagsins um 1,3% og stendur gengi þeirra nú í 547 krónum á hlut. Hefur fyrirtækið hækkað um rétt ríf- lega 50% það sem af er þessu ári. Næstmest var veltan með bréf Sím- ans eða 157 milljónir króna og hækk- aði félagið um 1,13% í viðskiptum dagsins. Velta með bréf Icelandair nam 92 milljónum og lækkuðu bréf félagsins um 0,75% í viðskiptunum. Ekkert félag lækkaði meira en Ice- landair í gærdag. Það sem af er þessu ári hafa bréf félagsins hins vegar hækkað um 10,9%. Velta á aðalmarkaði náði ekki milljarði STUTT SVIÐSLJÓS Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Ég leyfi mér að efast um að við myndum taka ákvörðun sem þessa. Mér finnst ekki hafa verið færð rök fyrir því að ákvarðanir stjórn- ar sjóðsins gangi gegn hagsmunum sjóðfélaga,“ segir Ólafur Stephen- sen, framkvæmdastjóri Félags at- vinnurekenda, sem tilnefnir einn fulltrúa af átta í stjórn Lífeyris- sjóðs verslunarmanna (LV). Vísar hann í máli sínu til aðgerða stjórn- ar VR, sem í gær ákvað að boða til fundar í fulltrúaráði VR og leggja þar fram tillögu um að afturkalla umboð þeirra sem félagið tilnefnir í stjórn LV og skipa nýja fulltrúa í stjórn til bráðabirgða. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagði í samtali við mbl.is í gær að stjórnin gripi til aðgerðanna sökum þeirrar ákvörðunar stjórnar LV að hækka breytilega vexti verðtryggðra sjóð- félagalána úr 2,06% í 2,26%. Hækkunin var samþykkt tveimur dögum eftir að Seðlabanki Íslands hafði lækkað stýrivexti um hálft prósentustig. Stjórn LV er skipuð átta mönn- um, en af þeim eru fjórir tilnefndir af stjórn VR. Hinir fjórir eru til- nefndir af Samtökum atvinnulífs- ins, Viðskiptaráði Íslands, Kaup- mannasamtökum Íslands og Félagi atvinnurekenda. Spurningar um skugga- stjórnun Tómas Hrafn Sveinsson hæsta- réttarlögmaður segir ummæli Ragnars Þórs í gær vera til þess fallin að ýta undir umræðu um skuggastjórnun. Þá verði að hafa í huga að stjórnarmönnum beri að gæta hagsmuna allra sjóðfélaga, ekki eingöngu þeirra sem tilnefndu þá til stjórnarsetu. „Ummæli Ragnars og staðhæfingar um að afturkalla umboð þeirra sem félag- ið tilnefnir í stjórn lífeyrissjóðsins og skipa nýja fulltrúa í stjórn til bráðabirgða geta leitt til þess að hætta verði á hagsmunaárekstrum og jafnvel að umræða fari af stað um einhvers konar skugga- stjórnun. Það verður að teljast af- ar óheppilegt og það fer gegn því markmiði sem stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna setti sér árið 2018 í stjórnarháttayfirlýsingu varðandi umboðsskyldu. Þar er sérstaklega tekið fram að stjórnarmaður sé ekki bundinn af fyrirmælum þeirra sem tilnefna hann til setu í stjórn sjóðsins,“ segir Tómas Hrafn og bætir við að samþykktir LV verði ekki skildar öðruvísi en svo að boða verði til fundar ætli stjórn VR að tilnefna nýja aðila til setu í stjórn sjóðsins. Í 6. gr. samþykkta LV kemur fram að stjórnarmenn séu skipaðir til þriggja ára. „Eins og ég skil samþykktirnar er ekki hægt að draga umboð stjórnarmanna til baka utan fundar og skipa aðra til bráðabirgða. Slíkt þyrfti að gerast á ársfundi eða á aukafundi þar sem jafnframt þyrfti að tilnefna nýja stjórnarmenn, en samþykktirnar gera þó ráð fyrir því að tilnefning stjórnarmanna gildi í þrjú ár,“ segir Tómas Hrafn. Hann telur uppþot stjórnar VR ekki vera til eftirbreytni. „Mér finnst ummælin nokkuð óheppileg í ljósi þess að stjórnir eiga að vera óháðar í störfum sínum,“ segir Tómas. Stjórn LV fundaði í hádeginu í gær og síðdegis var fjölmiðlum send yfirlýsing þar sem ítrekað var að sjóðurinn hefði hagsmuni sjóðfélaga og lántakenda ætíð að leiðarljósi. Var þar bent á að ný- verið hefðu fastir verðtryggðir vextir verið lækkaðir úr 3,6% í 3,4% en að á sama tíma hefðu breytilegir vextir hækkað úr 2,06% í 2,26%. Segir stjórnin að hækk- unin komi til þar sem hingað til hafi verið notast við „úrelt viðmið“ við ákvörðun breytilegra vaxta og þeir séu því orðnir „óeðlilegir“. Segir stjórnin í niðurlagi tilkynn- ingar sinnar að yfirlýsingum um meintan annarlegan tilgang við vaxtabreytingar sé „vísað til föður- húsanna“. FME blandar sér í málið En það var ekki aðeins stjórn LV sem brást við fréttum af að- gerðum stjórnar VR. Þannig sendi Fjármálaeftirlitið frá sér áréttingu undir lok dags þar sem fjallað var um þær kröfur sem gerðar væru til starfsemi lífeyrissjóða. Er þar rakið hvernig í lögum er kveðið á um markmið með starfsemi líf- eyrissjóða hér á landi sem felist í að varðveita og ávaxta lífeyri fólks. Þá segir í lok áréttingarinnar: „Með hliðsjón af framangreindu telur Fjármálaeftirlitið að stjórnarmönnum lífeyrissjóða sé óheimilt að beita sér fyrir því að lífeyrissjóðir séu nýttir í öðrum til- gangi en þeim sem að framan var lýst.“ Ákvörðun VR vekur spurn- ingar um skuggastjórnun Morgunblaðið/Hari Stjórn LV Benedikt K. Kristjánsson, Guðný R. Þorvarðardóttir, Árni Stef- ánsson, Magnús R. Guðmundsson, Ólafur R. Gunnarsson formaður, Ína B. Hannesdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir varaformaður, Auður Árnadóttir.  Stjórnarmenn eru ekki bundnir af fyrirmælum þeirra sem tilnefna þá Nox Medical hefur hlotið 50 milljóna króna styrk úr Tækniþróunarsjóði til að þróa og markaðssetja á al- þjóðamarkaði þráðlausan snjall- skynjara sem mælir heilarit og súr- efnismettun í svefni. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að snjallskynjarinn sé mikilvæg við- bót við þann tækjabúnað sem fyrir- tækið er með á markaði til að gera svefnmælingar heima fyrir. Hingað til hafi heimamælingar verið gerðar án heilarits, og því ekki hægt að greina nákvæmlega uppbyggingu og gæði svefns á einfaldan hátt. Því hafi fólk þurft að dvelja næturlangt inni á sjúkrahúsi til að mæla heilarit í svefni og afar tímafrekt sé að lesa úr niðurstöðunum. Hlaðið í skýið „Verkefninu er ætlað að hlaða niðurstöðum mælinga upp í skýið og beita gervigreind til að lesa úr mæl- ingunum. Fyrirtækið hefur gert til- raunir í samvinnu við vísindamenn og niðurstöður þeirra tilrauna sýndu að hægt er gera svefnmælingar í heimahúsum með heilariti með áður óþekktum afköstum,“ segir Pétur Már Halldórsson, framkvæmda- stjóri Nox Medical, í tilkynningunni. Einnig segir þar að ef vel takist til verði aðgangur að mikilvægu grein- ingartæki fyrir svefnvanda gerður ódýrari og greiðari. „Nýsköpun á Ís- landi er í miklum blóma og það er gríðarlega mikilvægt fyrir fyrir- tækin í landinu að geta sótt stuðning hjá Rannís, Tækniþróunarsjóði og með endurgreiðslu frá ríkinu vegna rannsókna og þróunar,“ segir Pétur Már að lokum. tobj@mbl.is Morgunblaðið/Hari Svefn Eitt af mælitækjum Nox Medical til svefnrannsókna. Betri svefnmæl- ingar heima við  Nox Medical fær 50 milljóna króna styrk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.