Morgunblaðið - 20.06.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 20.06.2019, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019 www.gilbert.is GEFÐU TÍMA ÍSLENSKT ÚR MEÐ SÁL 101 ART DECO Rúmar 70 milljónir manna voru á flótta frá heimkynn- um sínum vegna átaka, árása eða ofsókna á síðasta ári, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Flóttamannastofn- unar Sameinuðu þjóðanna. Flóttamennirnir hafa aldrei verið svo margir frá því að stofnunin hóf starfsemi fyrir nær 70 árum. Flóttamönnunum fjölgaði um 2,3 milljónir á síðasta ári og þeir eru nú nær tvöfalt fleiri en fyrir tveimur áratugum. Rúmlega tveir þriðju flótta- fólksins eru frá Sýrlandi, Afganistan, Suður-Súdan, Búrma og Sómalíu, að sögn stofnunarinnar. 70,8 milljónir manna í heiminum hafa flúið heimkynni sín vegna átaka og ofsókna Þeirra á meðal fólk sem hefur flúið efnahagshrun í Venesúela á hverja 1.000 íbúa 2 4 6 8 10 Dvalarstaðir flóttafólksins nú Hlutfall flóttafólksins 25,9 milljónir eru flóttamenn skv. skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna 3,5 milljónirmanna hafa sótt um hæli og umsóknir þeirra hafa ekki verið afgreiddar 138.600 börn eru fylgdarlaus og urðu viðskila við foreldra sína 50% flóttafólksins eru börn undir átján ára aldri 41,3 milljónir manna eru á flótta í heimalandi sínu 2017 20182016201520142013201220112010200920082007 Mesti fjöldi flóttafólks á íbúa Flóttamenn á hverja þúsund íbúa Lönd sem fólkið kemur frá Sjö af upprunalöndunum Lönd sem hafa tekið við flestum Heildarfjöldi flóttamanna 3,7 m. 156 72 45 26 29 26 23 1,4 m. 1,2 m. 949.700 979.400 1,1 m. 906.600 Tyrkland Pakistan Úganda Líbanon Íran Þýskaland Bangladess Súdan 1,1 m. Sýrland Afganistan Suður-Súdan Búrma Sómalía Súdan Austur-Kongó Mið-Afríkulýðveldið 6,7 m. 2,7 m. 2,3 m. 1,1 m. 949.700 724.800 720.300 590.900 Líbanon Jórdanía Tyrkland Úganda Tsjad Súdan 25Svíþjóð Suður-Súdan 67% þeirra sem hafa flúið heimkynni sín koma frá fimm löndum Helstu tölur skv. nýrri skýrslu Flóttamannastofnunar SÞ Flóttamannavandinn í heiminum Heimild: Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNHCR Tyrkland 3,7 milljónirVenesúela3,4 milljónir manna höfðu flúið landið í lok síðasta árs Rúmar 70 milljónir manna á flótta Fjölþjóðleg rannsóknarnefnd sakaði í gær fjóra menn um manndráp vegna árásar á farþegaþotu Malaysian Air- lines, MH17, sem var skotin niður yfir Úkraínu í júlí 2014. 298 manns létu líf- ið þegar þotan hrapaði. Rannsóknarnefnd undir forystu Hollendinga kvaðst ætla að ákæra þrjá rússneska ríkisborgara – Ígor Gírkín, Sergej Dúbínskí og Oleg Púlatov – og Úkraínumanninn Leoníd Khartsjenkó. Réttarhöld yfir mönn- unum eiga að hefjast í Hollandi 9. mars á næsta ári, en líklegt er að sak- borningarnir verði ekki viðstaddir réttarhöldin vegna þess að yfirvöld í Rússlandi framselja ekki rússneska ríkisborgara sem ákærðir eru í öðrum löndum, að sögn fréttaveitunnar AFP. Stjórnvöld í Moskvu neituðu því að Rússar væru viðriðnir árásina og Gírkín sagði í gær að ekkert væri hæft í því að uppreisnarmenn í austurhéruðum Úkraínu hefðu grandað farþegaþotunni. Upp- reisnarmennirnir hafa notið stuðn- ings Rússa. Wilbert Paulissen, yfirlögreglu- þjónn ríkislögreglunnar í Hollandi, sagði að gefin yrði út handtökutilskip- un á hendur mönnunum fjórum og þeir yrðu settir á alþjóðlega lista yfir eftirlýsta menn. Kom frá rússneskri herstöð Rannsóknarnefndin komst að þeirri niðurstöðu fyrir rúmu ári að BUK-flugskeyti, sem skotið var á þot- una, hefði áður verið flutt frá herstöð í borginni Kúrsk í Rússlandi. Hollenski saksóknarinn Fred Westerbeke sagði að mennirnir fjórir yrðu ákærðir fyrir að flytja vopnið, sem grandaði þot- unni, á yfirráðasvæði uppreisnar- manna í Úkraínu. Saksóknarar segja að Gírkín sé fyrrverandi foringi í rússnesku ör- yggislögreglunni FSB. Hann var titl- aður varnarmálaráðherra í „Alþýðu- lýðveldinu Donetsk“ í Austur-- Úkraínu. Dubínskí var áður í leyniþjónustu rússneska hersins, GRU, Púlatov er fyrrverandi liðsmað- ur rússneskrar sérsveitar og Khart- sjenkó fór fyrir vopnaðri sveit upp- reisnarmanna í Austur-Úkraínu. Þotan var á leiðinni frá Amsterdam til Kúala Lúmpúr þegar hún var skot- in niður. bogi@mbl.is AFP Fjórmenningar ákærðir Wilbert Paulissen yfirlögregluþjónn skýrir frá sak- sókn á hendur fjórum mönnum í tengslum við rannsókn á árásinni á MH17. Fjórir ákærðir fyrir manndráp  Saksóttir fyrir árásina á MH17 Rory Stewart, ráðherra þróunar- aðstoðar, féll út úr leiðtogakjöri Íhaldsflokksins í atkvæðagreiðslu í gær og þar með voru fjögur leið- togaefni eftir. Gert er ráð fyrir að tveir til viðbótar heltist úr lestinni í einni eða tveimur atkvæðagreiðslum í þingflokki íhaldsmanna í dag. Skráðir félagar í flokknum kjósa síðan á milli tveggja leiðtogaefna í póstkosningu í næsta mánuði. Boris Johnson, fyrrverandi utan- ríkisráðherra, fékk flest atkvæði í gær, 143, nær þrefalt fleiri en helstu keppinautar hans. Jeremy Hunt utanríkisherra varð í öðru sæti, með 54 atkvæði. Michael Gove umhverfisráðherra fékk 51 atkvæði, Sajid Javid innanríkisráðherra 38 og Stewart 27. Fyrir atkvæðagreiðsluna í gær kvaðst Stewart hafa rætt við Gove um að þeir tækju höndum saman í leiðtogakjörinu til að tryggja að annar þeirra kæmist í lokaumferð leiðtogakjörsins. Allir frambjóðend- urnir nema Stewart höfðu sagt að þeir vildu hefja viðræður við leið- toga Evrópusambandsins um nýjan samning um útgöngu Bretlands úr sambandinu. Stewart hafði sagt að þetta væri óraun- hæft markmið þar sem leiðtogar ESB hefðu ekki léð máls á nýjum samningi og kvaðst vilja finna leið til að tryggja að fyrirliggjandi brexit-samningur yrði samþykktur á þinginu. Það hefur þó hafnað hon- um þrisvar. Raab styður Johnson Dominic Raab, fyrrverandi ráð- herra brexitmála, sem féll út úr leið- togakjörinu í fyrradag, og nær allir stuðningsmenn hans í þingflokknum greiddu atkvæði með Boris Johnson í gær. Johnson sagði í sjónvarpskapp- ræðum leiðtogaefnanna í fyrrakvöld að hann stefndi að því að Bretland gengi úr ESB 31. október og sagði það „mjög svo gerlegt“. Hvorki hann né keppinautar hans réttu upp hönd þegar þeir voru beðnir um að gera það ef þeir teldu að þeir gætu tryggt brexit 31. október. bogi@mbl.is Fjórir eftir í leiðtogakjörinu  Dregur til úrslita í þingflokknum í dag Boris Johnson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.