Morgunblaðið - 20.06.2019, Side 58

Morgunblaðið - 20.06.2019, Side 58
58 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019 50 ára Ívar er úr Kópa- vogi en býr í Garðabæ. Hann er lærður fram- reiðslumaður en var tryggingaráðgjafi hjá TM þar til í síðustu viku. Maki: Aldís Hafsteins- dóttir, f. 1968, vinnur hjá Garra heild- verslun. Börn: Ástrós Rut, f. 1988, Garibaldi, f. 1998, og Rúrik Lárus, f. 2003. Barnabarn: Emma Rut Bjarkadóttir og Ástrósar. Foreldrar: Bragi Ingason, f. 1933, mat- reiðslumaður, og Erla Óskarsdóttir, f. 1936, hjúkrunarkona. Þau eru búsett í Kópavogi. Ívar Bragason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það getur verið erfitt að láta skyn- semina ráða þegar tilfinningarnar ólga. Nú færðu launaðan greiða sem þú varst búinn að steingleyma. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú átt að taka frumkvæðið í þínar hendur í stað þess að láta reka fyrir at- hugasemdum annarra. Framlag þitt fer ekki framhjá yfirmönnum þínum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það fer ekki vel á því að blanda saman vinnu og einkalífi. Reyndu að skapa ró í kringum þig og einbeittu þér að því að slaka á. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samræður við maka og/eða nána vini koma hugsanlega lagi á eitthvað sem þér er kært. Þú færð ósk þína uppfyllta. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú álítur þig mjög hagsýna/n, en ein- hver mun draga fram aðra hliðina á þér. Bíddu til morguns með að gera ferðaáætl- anir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér finnst þú enn eiga margt ógert en mundu að veraldlegum hlutum má auð- veldlega skjóta á frest. Eitt af því besta sem við getum gert fyrir ástvini okkar er að halda heilsu og jafnvægi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Láttu það eftir þér að njóta dagsins með vinum þínum. Þú færð upplýsingar sem þú ert ekki ánægð/ur með. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér er óhætt að tjá þig ef þú heldur þig innan ákveðinna marka. Einhver lítur á þig sem velgjörðarmann sinn í dag. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Láttu ekki slúður vinnufélag- anna hrófla ró þinni. Allt er fertugum fært, það sannast á þér. Betur má ef duga skal í markmiðasetningunni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Notaðu daginn til að slappa af. Nýttu þér hjálp fagfólks til að bæta sam- skipti þín við systkini þín. Láttu ekki undan freistingum af nokkru tagi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ræddu málin til hlítar, það getur komið þér í koll ef þú ætlar að skauta bara á yfirborðinu. Mestu erfiðleikarnir eru yfir- stignir og þú sérð fram á betri daga. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur svo mikla orku að þú verð- ur að eyða hluta hennar í líkamsæfingar. Ljúktu því sem þú þarft að gera í dag þann- ig að þú getir leikið þér á morgun. alltaf mikið fjör í kringum þessar konur og þær höfðu gaman af vinnunni og lífinu og er ég ákaflega þakklátur fyrir þeirra óeigingjörnu störf“. Árið 1986 seldi Sigurður Klapparholtið og einnig gróðrar- stöðina með Skagamold. Flutti fjöl- skyldan að Ási í Melasveit og ein- beitti sér að framleiðslu á græn- meti. Sigurður var einn af stofnendum sölufyrirtækisins Ágæti sem seldi grænmeti um allt land. Sigurður hefur ávallt verið sinn eigin herra eins og hann orðar það, en hann hefur aldrei unnið sem launamaður fyrir utan þessi þrjú ár í olíustöðinni meðan hann jafnaði sig á berklunum. „Samt sem áður skorti aldrei neitt og manni tókst að láta enda ná saman þó að það hafi oft verið mikil vinna.“ Fjölskylda Eiginkona Sigurðar var Guð- munda Runólfsdóttir, f. 31.10. 1930, d. 28.4. 2002. Foreldrar hennar voru hjónin Runólfur Guðmunds- Þegar fór að þrengjast um land- rými í Klapparholti þá byggði Sig- urður að Smiðjuvöllum bæði Skaga- mold og Gróðurval. Hélt starfsemin þar áfram og var blómleg. Í öll þessi ár þá voru 10-15 konur sem unnu hjá Sigurði. Sigurður minnist þeirra tíma með ánægju. „Það var S igurður Gunnarsson fæddist á Steinsstöðum á Akranesi, sem var við Óðinsgötu 36, en í dag er þetta Kirkjubraut 26. Sigurður fluttist með fjölskyldunni að nýbýlinu Steinsstöðum sem þá voru rétt fyrir utan Akranes en eru nú við Eyrarflöt. Sigurður fór ung- ur að Lambhaga í Hvalfjarðarsveit til sumardvalar. Sigurður gekk í barnaskóla á Akranesi. Um 18 ára aldur ætlaði Sigurður að læra járnsmíði hjá Ein- ari Vestmann en þá greindist hann með berkla og þurfti að dveljast á Vífilsstöðum í 8-9 mánuði. Eftir að þeirri dvöl lauk tók við tími þegar lítið mátti gera. Þá annaðist Sig- urður bústörf með Gunnari föður sínum ásamt því að vinna í olíu- stöðinnni í Hvalfirði næstu þrjú ár. Sigurður hefur alltaf haft gaman af söng og söng hann í tvöföldum kvartett sem í voru átta félagar og vinir af Akranesi og Innesinu. Það var einmitt á einni slíkri skemmtun sem hann kynnist Guðmundu Run- ólfsdóttur ættaðri frá Gröf, þau fella hugi saman og giftast 26. maí 1956. Saman byggja þau Klappar- holt 1957 og hefja búskap. Klappar- holt stendur við Tindaflöt á Akra- nesi í dag. Búskapurinn samanstóð af hænsnarækt og sauðfé. Í 25 ár voru þau með hænsnarækt og sáu Skagamönnum og nærsveitum fyrir eggjum en í kringum 1970 var Sig- urður með stærsta varphænubú landsins að Klapparholti. Einnig var selt í Eggjasamlagið sem sá um að selja egg til hersins á Kefla- víkurflugvelli. Fljótlega bættu þau við garðrækt sem átti eftir að verða þeirra aðalatvinna. Ræktað var grænmeti, blóm og tré og muna Skagamenn eftir því að hafa komið að Klapparholti til að kaupa sum- arblóm og grænmeti á haustin. Grænmetisverslun ríkisins keypti einnig af Sigurði og seldi í búðir um allt land og blómin voru einnig seld um allt land. Mikið fór til Vest- mannaeyja eftir gos og var gerður góður rómur að blómunum sem komu af Skaganum. son, f. 3.4. 1887, d. 2.12. 1985, bóndi og sjómaður í Gröf í Skilmanna- hreppi, og Þórunn Jónína Markús- dóttir, f. 3.10. 1884, d. 11.9. 1970, húsfreyja. Sigurður átti fyrir soninn 1) Sig- urð Pétur, f. 22.3. 1949, rennismið- ur, giftur Kolbrúnu Gunnarsdóttir, þau eru bús. í Reykjavík. Börn Sig- urðar og Guðmundu eru 2) Run- ólfur Þór f. 9.1. 1957, bygginga- tæknifræðingur, í sambúð með Soffíu Örlygsdóttur, þau eru bús. á Akranesi; 3) Guðmundur Gísli, f. 15.2. 1957, ofngæslumaður, í sam- búð með Kristínu Guðrún Jóns- dóttur, þau eru bús. á Akranesi; 4) Sigmundur Garðar, f. 24.8. 1962, smiður, giftur Guðríði Guðmunds- dóttur, þau eru bús. á Akranesi; 5) Sigurlín Margrét, f. 23.4. 1964, þula í táknmálsfréttum og ferðaþjón- ustufrömuður, í sambúð með Magn- úsi Sverrissyni, þau eru bús. í Kópavogi; 6) Helga, f. 8.10. 1965, þjónustufulltrúi, í sambúð með Halldóri Karlssyni, þau eru bús. í Reykjavík; 7) Guðráður Gunnar, f. Sigurður Gunnarsson, fyrrverandi garðyrkjumaður og bóndi í Klapparholti – 90 ára Hjónin Guðmunda og Sigurður stödd í einu af gróðurhúsum sínum um miðjan 9. áratuginn. Ávallt verið sinn eigin herra Garðyrkjubóndinn Sigurður. 30 ára Elín er Vest- mannaeyingur og er fædd þar og upp- alin. Hún er kjóla- klæðskeri að mennt frá Tækniskóla Ís- lands og er sjálf- stætt starfandi með eigin stofu, sem heitir Einstök sauma- stofa. Maki: Arnar Ingólfsson, f. 1988, bif- reiðasmiður í Bragganum. Börn: Ingólfur Máni, f. 2014, og Gunnar Dagur, f. 2018. Foreldrar: Árni Gunnar Gunnarsson, f. 1950, rafvirki, og Erna Ingólfsdóttir, f. 1952, leikskólakennari. Þau eru búsett í Vestmannaeyjum. Elín Árnadóttir Til hamingju með daginn Vestmannaeyjar Gunnar Dagur Arnarsson fæddist 8. nóvember 2018. Hann vó 2.665 g og var 48 cm langur. Foreldrar hans eru Arn- ar Ingólfsson og Elín Árnadóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.